Mér var nauðgað á Facebook

Sveinn Arnarsson

Einn alvarlegasti glæpur sem hægt er að gera nokkrum manni er að misnota hann kynferðislega. Nauðgun er talin einn alvarlegasti glæpur í íslensku dómskerfi. Það að verða fyrir grófri árás annars einstaklings veldur því að brotaþoli þarf að ganga í gegnum eld og brennistein þar sem sálarlíf hans er í rúst. Þessi árás, sem nauðgun er, er því ekkert sem á að hafa í flimtingum.

Aðgát skal höfð í nærveru sálar. Þú vilt engum svo illt að hann verði fyrir þess lags árás sem nauðgun er, vafalaust sú gerð árásar sem hefur hvað verst áhrif á sálarlíf brotaþola. Vafalaust þekkjum við öll einhvern einstakling sem hefur orðið fyrir slíkri árás. Við vitum það sennilega því öll, úr eigin fjölskyldu, hversu mikil áhrif þess konar árás getur haft á daglegt líf einstaklings.

Þetta hugtak, „nauðgun“, er samt enn þann dag í dag notað manna á millum eins og eitthvað léttvægt grín. Mýmörg dæmi eru úr bandarískum dósahlátursþáttum þar sem hugtakið er upptaktur brandara, til þess eins að vekja upp hlátur áhorfandans. Þessi grófasta árás á einstakling sem hægt er að hugsa sér er þar með notað í samfélaginu á þann máta að gert er lítið úr.

Ég hef oft á tíðum séð hugtakið „Face-rape“ notað af ungu fólki í dag. Það á við þegar einhver vinur eða kunningi kemst inn á facebook síðu annars manns, og fremur einhvern hrekk þar. Það er einmitt það sem það er: hrekkur. Þessi hugtakanotkun veldur mér miklum áhyggjum. Hún bendir til þess að nauðgun sé eitthvað sem hægt er að hlægja að; góðlátlegt grín, sem veldur örlitlum skammvinnum skaða. Eitthvað sem hægt er að laga með því að segja „nei djók, þetta var ég“. Veröldin er, þótt ótrúlegt megi virðast, ekki svona barnslega einföld.

Við eigum ekki að draga úr vægi nauðgunar í íslenskri umræðuhefð. Nauðgun er dauðans alvara og hefur oft á tíðum gríðarleg áhrif á þann sem verður fyrir árásinni til langs tíma. Við verðum að passa okkur hvernig við notum hugtök.

Það að leika sér á facebook síðu annars manns, er ekki nauðgun, heildur heimskupör, kjánaskapur, hrekkur eða þvíumlíkt. Vil ég því biðla til lesenda um að koma með heppilegt „nýyrði“ á þetta handónýta hugtak „face-rape“.

Sveinn Arnarsson
@Sveinn_A

Feiri Pistlar eftir sama höfund:
Sunnudagsmorgunn og Rúv: Sjónvarp allra landsmanna?
Jafnrétti í kennslubókum

Jón Óðinn Waage pistlahöfundur skrifar

Bílar og ég

Mér finnst fínt að nota bíla en ég skil þá ekki. Ef bílvél væri fyrir framan mig þá myndi ég ekki vita hvernig hún ætti að snúa. Ég hef reynt að setja ... Lesa »

Samherji of öflugur?

Á fundi frambjóðenda til sveitarstjórnarkosninga með kennurum í verkfalli sagði Logi Már Einarsson, oddviti Samfylkingar, að það væri ekki gott ef ... Lesa »

Frekjan á kaffistofunni – míkrópólitískt sjónarhorn

Flestir hafa starfað í fyrirtækjum þar sem einn eða fleiri starfsmenn stjórna stofnanamenningunni með skapsveiflum eða lélegum samskiptum. Í ... Lesa »

Heyrst hefur

Heyrst hefur

Heyrst hefur að dularfullt mál sé komið upp innan Veðurstofu Íslands. Ráðgátan varð opinber þegar Pétur Snæbjörnsson, hótelstjóri í Reynihlíð, ... Lesa »

Allir í strætó!

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin WHO segir í nýrri skýrslu að af öllum umhverfisþáttum, standi mönnum mest ógn af mengun andrúmslofts. Dauðsföll af ... Lesa »

Gott fólk á að nýta

Fjárhagsaðstoð Akureyrarbæjar til íbúa hefur þrefaldast á 10 árum. Fjárhagsáætlun ársins 2014 gerir ráð fyrir 156 milljónum til þessa málaflokks en ... Lesa »

Vistvænir straumar á handverkshátíð

Vistvæn hráefni setja sterkan svip á Handverkshátíð 2014 sem haldin verður í 22. sinn í Eyjafjarðarsveit 7.-10. ágúst. Mikill fjöldi umsókna hefur ... Lesa »

Frjálslega farið með staðreyndir

Undirritaður er starfsmaður Vegagerðarinnar en eftirfarandi, að undanskyldum beinum tilvitnunum, eru mínar skoðanir: Að gefnu tilefni vegna greinar ... Lesa »

Fjársjóður sem margfaldast

Í stóru húsi við Hjalteyrargötu 20 hafa um 60 manns vinnustofur. Í húsinu voru áður skrifstofur Slippsins, lager og verkstæði. Það er félagið Grasrót ... Lesa »

Lín Design stækkar við sig á Glerártorgi

Lín Design opnar á morgun, laugardaginn 5. apríl, nýja, stærri og bjartari verslun á Glerártorgi á Akureyri en verslunin opnaði fyrst í ... Lesa »

Fósturfeðgar dæmdir eftir ofbeldi

Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt tvo menn í fangelsi eftir að þeir réðust á lögreglumenn við skyldustörf um verslunarmannahelgina 2012. Annar ... Lesa »

Hætt verði við Bjarnarflagsvirkjun

Aðalfundur Fjöreggs, félags um náttúruvernd og heilbrigt umhverfi í Mývatnssveit, skorar á umhverfis- og auðlindaráðherra og Alþingi að taka ... Lesa »

Loftslagsbreytingar eru tækifæri fyrir Íslendinga

Miðað við nýlega skýrslu Vísindanefndar Sameinuðu þjóðanna liggur við að ýmis sóknarfæri séu að skapast fyrir Íslendinga. Skýrslan varpar skýru ljósi ... Lesa »

Manneskjulegt umferðarskipulag óskast

Vísað er til greinar Friðleifs Inga Brynjarssonar sem birtist hér í blaðinu þann 20. mars síðastliðinn. Í þeirri grein var einhliða fjallað um ... Lesa »

Close
Please support the site
Fylgstu með okkur á facebook líka!