Bæjarstjóri vill sveitarfélög inn í nýja samráðshópinn

Bæjarstjóri vill sveitarfélög inn í nýja samráðshópinn

politikusar„Þetta samkomulag gerir lítið annað en að fresta ákvörðun um málið. Menn hafa líklega ekki treyst sér til að afgreiða málið í andstöðu við meirihluta borgarbúa,“ segir Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri á Akureyri vegna millilendingar um framtíð Reykjavíkurflugvallar.

Hann segist telja mikilvægt að nýta tímann vel og gæta þess að ekki verði til enn ein skýrslan sem ágreiningur verði síðan um. „Ég vil sjá fulltrúa Sambands íslenskra sveitarfélaga í samráðshópnum enda hafa fjölmargar bæjar- og sveitarstjórnir haft skoðun á málinu og áhrif á feril þess þ.m.t. bæjarstjórn Akureyrar sem hefur unnið ötullega í þessu máli allt þetta kjörtímabil. Undirskriftalistinn hefur örugglega líka haft sín áhrif,“ segir Eiríkur og vísar til Hjartans í Vatnsmýrinni. Þá segir bæjarstjóri: „Ég hefði viljað sjá í samkomulaginu úrbætur strax í aðstöðu fyrir starfsfólk flugvallarins og flugfarþega.“

Njáll Trausti Friðbertsson, annar tveggja talsmanna Hjartans í Vatnsmýrinni, segist telja að fjölmennasta undirskriftasöfnun á Íslandi sem varði íslenskt málefni hafi haft mikil áhrif á þróun þessa máls. Áður var reiknað með að einungis ein flugbraut yrði í Vatnsmýrinni eftir 2016. Nú hafi líftími norður-suður brautarinnar a.m.k verið lengdur til 2022 og skipuð nefnd undir forsæti Rögnu Árnadóttir sem fær rúmt ár til að skoða hvaða kostir fyrir flugvallarstæði eru í stöðunni til framtíðar. „Það er okkar skilningur að ekki verði ráðist í neinar þær framkvæmdir sem geta hamlað þróun Reykjavíkurflugvallar í Vatnsmýrinni á þeim tíma sem nefndin starfar. Einnig að flugvöllurinn verði til framtíðar í Vatnsmýrinni nema að það komi til nýtt jafngott flugvallarstæði á höfuðborgarsvæðinu.“

Hins vegar sé ljóst að talsverð vinna fari fram áður en endaleg niðurstaða fæst í málið. „Tímaramminn til að ná utan um málið er stuttur þannig að hér þarf að vinna hratt og vel og ljóst að mikilvæg vinna þarf að fara fram í Reykjavík á næsta kjörtímabili þar sem ljóst er að stórar ákvarðanir verða teknar.“

Andrea Hálmsdóttir, bæjarfulltrúi VG á Akureyri, segir að samkomulagið hljóti að teljast áfangasigur fyrir flugsamgöngur milli höfuðborgarinnar og landsbyggðanna og því beri að fagna.

„Með samkomulaginu er mikilvægi flugvallar í höfuðborginni viðurkennt með afgerandi hætti og við hljótum að binda miklar vonir við að störf þeirrar nefndar sem á að skipa skili farsælli niðurstöðu fyrir alla landsmenn og taki tillit til byggðaþróunar og sérstöðu landsbyggðanna,“ segir Andrea.

Ólafur Jónsson, fulltrúi sjálfstæðismanna í bæjarstjórn Akureyri segir: „Þetta er áfangasigur og eyðir í bili þeirri óvissu sem ríkti um framhald málsins. Sú óvissa var mjög íþyngjandi fyrir landsbyggðina og flugrekstraraðila. Nú er mikilvægt að sú nefnd sem falið var að kanna möguleikana á öðru flugvallarstæði innan bæjarmarka höfuðborgarinnar vinni hratt og örugglega. Það er nauðsynlegt að fá niðurstöðu sem fyrst því átta ár eru ekki langur tími þegar svona stórt mál er undir. Hér þarf að horfa til margra hluta s.s. bættrar aðstöðu og endurnýjun flugvéla. Allt stórar ákvarðanir sem þurfa ákveðinn undirbúning.“
„Ég nefndi í umræðu í bæjarstjórn, sem ég hafði óskað eftir um stöðu Reykjavíkurflugvallar, að ég óttaðist að framtíð Reykjavíkurflugvallar yrði að stóru kosningamáli í höfuðborginni í vor. Nú hefur því verið afstýrt og gefst vonandi andrými til að skoða málið að nýju ofan í kjölinn,“ segir Ólafur.

-BÞ

_MG_0823

Hættutímar fara í hönd

Síðastliðið sumar dæmdi Héraðsdómur Norðurlands vestra tvo menn í skilorðsbundið fangelsi vegna manndráps af gáleysi eftir að vöruflutningabíll lenti í árekstri við annan bíl í Langadal með þeim ... Lesa »

Lof og last

Lof og last vikunnar

Last fá þeir ökumenn sem ekki taka tillit til vatnsflaums á götum Akureyrar undanfarið, segir lesandi í bréfi. „Mikið er leiðinlegt að fá yfir sig gusur frá þeim bifreiðarstjórum sem ekki kunna sig. ... Lesa »

Það var glatt á hjalla þegar tímamótin fóru fram síðastliðinn föstudag.

Yngsti kúabóndinn ræsti nýja ostalínu MS á Akureyri

Formlega hefur verið tekin í notkun ný og fullkomin vinnslulína til ostagerðar hjá MS Akureyri. Áætlaður kostnaður við vinnslulínuna auk tengdra framkvæmda í húsnæði mjólkurstöðvarinnar, þ.m.t. 300 ... Lesa »

Kirkjukór Möðruvallaklaustursprestakalls flytur föstudagsfreistingar í dag

Föstudagsfreistingar í Akureyrarkirkju

Föstudagsfreistingar verða í Akureyrarkirkju í dag, 1. nóvember kl. 12:00 en þá mun Kirkjukór Möðruvallaklaustursprestakalls flytja tónlist við texta Davíðs Stefánssonar og Jónasar Hallgrímssonar. Á ... Lesa »

Hölli Vals

Hölli Vals á Græna hattinum

Dalvíkingurinn Hölli Vals snýr aftur heim eftir nokkurra ára tónleika hlé á Íslandi með Sýrublús og Hipparokk í anda Jimi Hendrix, Stevie Ray Vaughn, The Doors, Eric Clapton, BB King, Santana ofl. ... Lesa »

politikusar

Bæjarstjóri vill sveitarfélög inn í nýja samráðshópinn

„Þetta samkomulag gerir lítið annað en að fresta ákvörðun um málið. Menn hafa líklega ekki treyst sér til að afgreiða málið í andstöðu við meirihluta borgarbúa,“ segir Eiríkur Björn Björgvinsson, ... Lesa »

Ragnar Hólm

Lofa skal það sem vel er gert

„Illgjarnir öfunda og hata; þannig sýna þeir aðdáun sína.“ Svo mælti franski rithöfundurinn Victor Hugo og augljóslega er í þessu fólginn sannleikur. Þeir sem á einhvern hátt skara fram úr og sýna ... Lesa »

Jón Óðinn Waage

Rós

Þegar ég var 18 ára menntaskólanemi þá fór ég sumarlangt í fiskvinnu austur á fjörðum. Konurnar í frystihúsinu voru oft harðar við okkar strákana, ráku á eftir okkur miskunnarlaust ef við vorum ekki ... Lesa »

Undirritun samningsins í Glerárkirkju í síðustu viku. Birna Vilbergsdóttir fulltrúi Hjálpræðishersins á Akureyri, Vilborg Oddsdóttir hjá Hjálparstarfi kirkjunnar, Sigurveig S. Bergsteinsdóttir f.h. Mæðrastyrksnefndar Akureyrar og Hafsteinn Jakobsson f.h. Rauða krossins.

Samstarf um jólaaðstoð á Eyjafjarðarsvæðinu

Skrifað hefur verið undir samstarfssamning um jólaaðstoð á Eyjafjarðarsvæðinu. Fern samtök munu vinna saman í ár að þessu verkefni. Þau eru: Hjálpræðisherinn á Akureyri, Hjálparstarf kirkjunnar, ... Lesa »

Mikið fjölmenni sótti málþing á Hótel KEA á kvennafrídeginum.

Betra að vera strákastelpa en stelpustrákur

Kvennafrídagsins var minnst með ýmsum hætti sl. fimmtudag. Fjölmargir fyrirlesarar fluttu erindi á fundi Jafnréttisstofu og Akureyrarbæjar og vakti margt athygli. Boðað var til fundarins undir ... Lesa »

Naglar stóðu út úr höndum Lenu Margrétar. Mynd af Facebooksíðu Lenu Margrétar

FSA harmar tilvik sem olli ama siglfirskrar konu

Sigurður E. Sigurðsson, framkvæmdastjóri lækninga og handlækningasviðs, Sjúkrahúsinu á Akureyri, segir að stofnunin harmi öll tilvik þar sem notendur læknaþjónustu kunni að hafa fengið óskýra ... Lesa »

Stúdentar við Háskólann á Akureyri. Mynd af vef FSHA

Atvinnumöguleikar stúdenta ræddir

Gestur G. Gestsson, forstjóri Advania, Gunnar Haugen, framkvæmdastjóri Capacent ráðninga og Guðrún Geirsdóttir, bologna sérfræðingur um gæðamál háskóla verða meðal frummælenda á málþingi um ... Lesa »

Steingrímur á Norðurpólnum

Frásögn af för minni og ólympíueldsins á Norðurpólinn

Á morgun, föstudaginn 1. nóvember, kl. 12:35 í stofu M102 á Sólborg mun Dr. Steingrímur Jónsson flytja erindið sitt: Frásögn af för minni og ólympíueldsins á Norðurpólinn. Steingrímur hélt nýverið ... Lesa »

Fjörutíu til fimmtíu starfsmenn vinna þessa dagana hörðum höndum í því skyni að Norðlendingar sjái ljósið við enda ganganna áður en yfir lýkur.

Jarðgöng ekki fyrir hvern sem er

Valgeir Bergmann, framkvæmda­stjóri Vaðlaheiðarganga, segir að jarðgangavinna sé ekki fyrir hvern sem er. 40-50 manns starfa nú við samgöngubótina en starfið sé hvorki laust við áhættu né óþægindi. ... Lesa »

Þessa mynd tók lögreglan á Akureyri í morgun

Mikill snjór á götum

Mikið hefur snjóað á Akureyri í gærkvöldi og nótt og eru ökumenn beðnir um að hreinsa vel snjó af bílum áður en lagt er af stað. Snjómokstur hófst mjög snemma í morgun og ekki ættu að vera vandræði ... Lesa »

Stefán B. Sigurðsson, rektor Háskólans á Akureyri

Sigrún hæfust og reglum fylgt segir rektor

Stefán B. Sigurðsson, rektor Háskólans á Akureyri, hafnar því að góðri stjórnsýslu hafi verið ábótavant þegar skipað var í stöðu deildarsforseta hjá skólanum á dögunum. „ Hvað varðar ferlið við ... Lesa »

unak

HA hafi ekkert fræðilegt gildi?

Stefán B. Sigurðsson, rektor Háskólans á Akureyri, hefur ekki svarað fyrirspurn Akureyrar vikublaðs um þá gagnrýni sem komið hefur fram í kjölfar skipunar forseta Hug- og félagsvísindasviðs skólans. ... Lesa »

Björn Þorláksson

Ráðist að rótum fátæktar

Akureyri er gott samfélag – líkt og önnur samfélög hér á landi. „Vor Akureyri er öllum meiri, með útgerð, dráttarbraut og Sjallans paradís. Við höfum Lindu, við höfum KEA og heilsudrykkinn Thule, ... Lesa »

Silja Björk

Þú skuldar!

Fyrir unga og upprennandi framakonu eins og mig ætti það nú að vera lítið mál að henda sér í sitt fínasta, skella sér út á lífið og hitta þar álíka upprennandi ungan mann, eiga við hann gott spjall og ... Lesa »

Gönguskíðabrautin verður opnuð í dag. Mynd úr safni, Auðunn Níelsson

Gönguskíðabrautin í Hlíðarfjalli opnuð í dag

Gönguskíðabrautin í Hlíðarfjalli, hin svokallaða Vetrarbraut, verður formlega opnuð seinnipartinn í dag. Bæjarbúar urðu vitni að því í gærkvöldi að flóðljósin við brautina voru tendruð en þá var verið ... Lesa »

Lögreglubíll. Mynd úr safni

Mikil hálka á götum

Mikil hálka er nú á götum Akureyrar og hafa tvö umferðaróhöpp orðið nú eftir hádegið vegna hálku. Árekstur varð milli vörubíls og fólksbíls á mótum Glerárgötu og Tryggvabrautar/Dalsbrautar, bílstjóri ... Lesa »

Þau eru margþætt störfin á öldrunarheimilum. Mynd úr safni

24 á biðlista eftir hjúkrunarrými

Á Akureyri hefur fólki á biðlista eftir hjúkrunarrýmum á öldrunarheimilum fjölgað en biðlisti eftir dvalarrýmum er nú mun styttri en fyrr á árinu. Samanlagður fjöldi á biðlista eftir hjúkrunar- eða ... Lesa »

Halldóra Eydís

Hannar skó sem minna á fegurð náttúrunnar

Halldóra Eydís Jónsdóttir skóhönnuður heldur fyrirlestur í Verkmenntaskólanum á Akureyri föstudaginn 1. nóvember kl. 15. Fyrirlesturinn fer fram í stofu M01. Halldóra Eydís, er fædd og uppalin í ... Lesa »

Heilög Barbara, verndardýrlingur námu- og gangnagerðarmanna

Göngin að ná kílómetra undir verndarvæng dýrlings

Vaðlaheiðargöngin eru nú við það að ná eins kílómeters lengd og reiknað er með að það markmið náist í vikunni. Líkneski heilagrar Barböru hefur verið komið upp við gangamunna en heilög Barbara er ... Lesa »

Nemendur í Myndlistarskólanum á Akureyri

Fjórtán sinnum fjölfeldi

Laugardaginn 2. nóvember kl. 14.00 opna fjórtán nemendur af Fagurlistadeild Myndlistaskólans á Akureyri sýningu í Populus tremula. Nemendurnir sýna afrakstur áfanga undir handleiðslu Hlyns Hallssonar ... Lesa »

Skoða meira