Sorpvæðing íbúðahverfa og horfin tré

Benedikt Sigurðarson

Benedikt Sigurðarson

Í snjóum skammdegisins hef ég farið ofurlítið um hverfi Akureyrar. Tvennu hef ég veitt sérstaka eftirtekt. Hið fyrra er hvernig bæjaryfirvöld hafa skapað aldeilis ömurlega aðkomu að fjölmörgum húsum með því að mæla svo fyrir að sorptunnur skuli varða aðkomu og innganginn að íbúðarhúsum. Heilar íbúðagötur eru þannig rammaðar inn af sorptunnum – sem standa mismunandi skakkar og útúrfullar og faðma snjóinn. Ég hef haft efasemdir um þessa sorpvæðingu – líka þótt sett séu lok á blokkirnar sem steyptar hafa verið utan um tunnurnar. Ekki lítur nú betur út þegar raðhús og fjölbýli stækka sorpílátin og sundurleitir gámar eru það fyrsta sem mætir gestum sem að húsunum koma.
Undarlegir skilmálar, satt að segja – að áskilja tiltekna stystu fjarlægð sorpíláta frá götu. Það var áður kannski hálf-umhendis að setja allar sorptunnur bakvið hús í kjallaratröppur eða í kjallarakompur – vegna þess hversu erfitt gat verið að sækja sorpið og koma því á bíla til losunar.
Sorpílátið er það fyrsta sem mætir gestum og gangandi og sama þótt menn hafi þokkalegan vilja til að ganga vel um sitt sorp þá verður þetta aldrei annað en óyndisleg aðkoma. Þegar heilar götur eru varðaðar sorpi er bærinn búinn að breyta um ásýnd, er ekki lengur hreinn og snyrtilegur.

Ég óttast að í þessa breytingu hafi ekki verið ráðist vegna sérstakrar tillitssemi við starfsmenn Akureyrarbæjar - sem lengi sinntu sorphirðunni – og grunar miklu frekar að rekja megi hana til verktakavæðingarinnar sem krefst þess að hægt sé að hagnast að einhverju marki með verktökunni.

Horfin tré og endurvakinn skafrenningur
Á Akureyri hefur trjágróður þrifist sérstaklega vel eftir því sem gerist á Íslandi. Eldri hverfin hafa orðið skjólsæl og römmuð í grænt allt sumarið. Sérstaklega hefur Alaskaöspin orðið vöxtugleg – en sennilega gróðursett miklu þéttar á árunum milli 1960 og 1990 heldur en seinna var ráðlagt - enda vöxturinn langt umfram björtustu vonir ræktunarfólks. Vindálag og veðrun húsa hefur minnkað stórlega - og það er skjól bæði sumar og vetur. Skafrenningurinn var hættur að ríkja á vetrarhríðum. Það var ekki bara Innbærinn og Eyrin, og Neðri-Brekkan heldur voru Glerárhverfið Lundahverfið og Síðuhverfið býsna gróin.

Um nokkurra ára skeið hefur geysað hér í bænum eitthvert óskiljanlegt fár – og áróður gegn trjágróðri í görðum. Sérstaklega hafa aspirnar orðið illa úti í áróðrinum. Þær hafa verið miskunnarlaust toppklipptar og felldar. Rökstuðningurinn hefur verið að það sé kominn skuggi í allan garðinn eða að þær séu að eyðileggja frárennslið.

Á síðustu misserum hef ég veitt því athygli að fleiri og fleiri garðar sem áður voru skjólsælir og grónir líta nú út eins og á svæðum sem hafa orðið fyrir hamförum. Myndir frá Chernobyl og hrjáðum svæðum SA-Asíu minna mann á hvernig skelfingar leika gróður og eyðileggja allt sem fyrir verður. Nú eru því miður aðeins örfáar stóru aspirnar eftir við Hamarsstíginn og eftir því sem grisjunin gengur lengra þeim mun hættara er á að þau tré sem eftir standa stök falli í stórviðrum allra árstíða. Akureyri er klárlega ekki sami græni, skjólsæli bærinn eftir þessar hamfarir. Hér er kominn tími til að staldra við áður en miklu lengra verður gengið.

Já; og er samt ekki alveg örugglega bannað á Akureyri að fella tré yfir tiltekinni hæð nema með leyfi byggingafulltrúa? Kannski leyfir byggingafulltrúi að hvaða tré sem er sé sagað niður? Kannski er einmitt stefnan að rýma sem mest af trjám úr görðum til að sorptunnuvæðingin blasi sem allra best við? Eða vilja yfirvöldin að gamall skafrenningur nái aftur völdum í íbúðahverfum á Akureyri þannig að meira verði að gera við snjómoksturinn?

Hvað á maður svo sem að halda?
Benedikt Sigurðarson, framkvæmdastjóri

Frjáls eins og fuglinn

„Mig dreymdi allaf um að fljúga eins og fuglinn“ segir Gísli Steinar Jóhannesson, kennari í svifvængjaflugi hjá True Adventure. „Mér fannst ... Lesa »

Akureyri handboltafélag styrkist

Sex leikmenn skrifuðu undir samning við Akureyri Handboltafélag á Glerártorgi í gær, tveir af þeim voru að framlengja samning en það eru þeir ... Lesa »

Magnús Hlynur lærir sitt fag

Magnús Hlynur Hreiðarsson , fréttamaðurinn kunni á Stöð 2, er sestur á skólabekk. Eftir 20 ár í bransanum hefur hann ákveðið að læra sitt fag; ... Lesa »

Sjóðheitar typpabuxur

Sala á lopapeysum hefur verið léleg hjá handverksfólki í Öxarfirði þetta sumarið. Aðra sögu er þó að segja um flík sem löguð er að líkamsbyggingu ... Lesa »

Sigling færð nær sjónum

Í morgun var útilistaverkið Sigling eftir Jón Gunnar Árnason fært af horni Glerárgötu og Kaupvangsstrætis yfir í fjöruna við Pollinn á Akureyri, nánar ... Lesa »

Á kirkjan að skammast sín?

Aldrei hefði mig grunað þegar ég lauk guðfræðiprófi fyrir um áratug síðan með kandidatsritgerð um samskipti Jesú við samversku konuna sem hann leysti ... Lesa »

Fær barnið þitt heilan eða hálfan ávöxt?

Nú þegar grunnskólar landsins eru við það að hefjast hafa kennarar og starfsfólk skólanna verið í óðaönn að undirbúa komandi skólaár. Partur af ... Lesa »

Frá Akureyri til Gaza

Á morgun, miðvikudaginn 20. ágúst, verða haldir samstöðu- og styrktartónleikar fyrir íbúa Gaza svæðisins þar sem fram koma fjórar eyfirskar ... Lesa »

Ljóðapöntun og fleiri viðburðir hlutu styrk frá Landsbankanum

Landsbankinn hefur úthlutað styrkjum til tíu verkefna og viðburða á Akureyrarvöku en samtals voru veittar 400 þúsund krónur til verkefnanna. ... Lesa »

Frábær árangur UFA síðastliðna helgi (Myndasyrpa)

Dagana 16. og 17. ágúst var Meistaramót Íslands í aldursflokkunum 11-14 ára haldið á Þórsvellinum á Akureyri. UFA sigraði í heildarstigakeppninni sem ... Lesa »

Útivistarperla í innbænum

Á undanförnum dögum hafa starfsmenn á vegum Akureyrarbæjar unnið hörðum höndum við að klára göngu og útivistarstíginn meðfram drottningarbraut. Nú ... Lesa »

Merkingum breytt á upplýsingaskilti

Ekki virðast allir vera á eitt sáttir með merkingar á skiltunum við Hjartastíginn svokallaða. Einhver hefur tekið sig til og límt yfir Leiran og ... Lesa »

Gríðarstór samnorræn hátíð haldin á Akureyri

20. – 23. ágúst næstkomandi verður haldin norræn þjóðlistahátíð og ráðstefna á Akureyri sem hefur yfirskriftina Erfðir til framtíðar (Tradition for ... Lesa »

Með uppistand í Washington - myndband

  Fór út fyrir kassann Inga Hrönn Kristjánsdóttir er 38 ára Akureyringur, viðskiptafræðingur og þriggja barna móðir. Hún hefur undanfarin ... Lesa »

Close
Please support the site
Fylgstu með okkur á facebook líka!