Norðurljósarannsóknir í Reykjadal yfirskin?

Pascal Heyman, fyrrum yfirmaður hjá Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu

Pascal Heyman, sem nýlega lauk störfum sem verkefnastjóri hjá Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu, varar Íslendinga við norðurljósarannsóknum Kínverja í Reykjadal í Þingeyjarsýslu.

„Kínverjar gera ekkert nema það sé vel ígrundað. Það að Kínverjar komi hingað og vilji rannsaka himininn fyrir ofan Ísland lítur grunsamlega út. Við vitum af áhuga þeirra á norðurslóðum og ásælni þeirra í ítök víðsvegar um heiminn. Íslendingar verða að stíga varlega til jarðar,“ segir Heyman í samtali við Akureyri vikublað.

„Til að mynda yrði afar auðvelt fyrir Kínverja að fylgjast náið með öllu því sem gerist yfir himninum á Íslandi með nútímatækni. Við verðum einnig að átta okkur á að lofthelgin yfir Íslandi er í raun lofthelgi NATÓ. Því verð ég að segja að menn ættu að fara afar varlega í þessum efnum.“

Heyman telur að Íslendingar ættu að styrkja samstarfið gríðarlega við grannríki sín í Skandinavíu. Norræna samstarfið sé gríðarlega öflugt og eftir því tekið innan alþjóðasamfélagsins. Hann varar einnig við okri í íslenskri ferðaþjónustu og segir það upplifun sína að nú þegar séu of margir ferðamenn yfir sumartímann á Íslandi við helstu náttúruperlur landsins.

Ítarlegt viðtal er við Pascal Heyman í Akureyri vikublaði sem kemur út á morgun.

Stofa til heiðurs fyrrum formanni framsóknar við HA

„Þau ánægjulegu tíðindi áttu sér stað að Ágúst Þór Árnason, deildarformaður lagadeildar Háskólans á Akureyri, tilkynnti formlega á málþinginu að sett ... Lesa »

Björn Þorláksson

Hvers konar rök eru þetta?

Í tilkynningu sem fjölmiðlum barst frá Vegagerðinni 26. febrúar síðastliðinn sagði að fækka yrði snjómokstursdögum á Möðrudalsöræfum „í bili“ og vegum ... Lesa »

KEA hótel eignast hótelbygginguna

KHG European Hospitality Partners, í eigu Valdimars Jónssonar, sonar Jóns Ragnarssonar, upphafsmanns hótelrekstrar á Skútustöðum, hefur framselt KEA ... Lesa »

Opinn borgarafundur SÁÁ í Hofi

SÁÁ, samtök áhugafólksum áfengisfíkn, efnir til opins borgarafundar um áfengis- og vímuefnavandann í Menningarhúsinu Hofi, í kvöld, miðvikudaginn 5. ... Lesa »

HA og AkureyrarAkademían í samstarf

Háskólinn á Akureyri og AkureyrarAkademían skrifuðu í gær undir samstarfssamning til næstu þriggja ára. Markmið samningsins er að efla samstarf og ... Lesa »

Konur fleiri en karlar í Fjallabyggð

Hagstofan hefur gefið út tölur um íbúa sveitarfélaga árið 2014. Þar kemur fram að Akureyringum fjölgar um 137 frá árinu 2013. Íbúum Eyjfjarðar fjölgar ... Lesa »

Sjálfstæðisflokkurinn

Sjálfstæðisflokkurinn samþykkir framboðslista

Sjálfstæðisflokkurinn hefur samþykkt tillögu kjörnefndar um framboðslista til sveitarstjórnarkosninganna í maí. Eins og áður hefur komið fram er ... Lesa »

Fékk að vita af fyrirhuguðum styrkveitingum á fundi með framsóknarmönnum

Fjarðabyggð fékk þrjá styrki frá forsætisráðuneytinu í tengslum við varðveislu menningarminja. Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar ... Lesa »

Margrét Kristín leiðir lista BF á Akureyri

Björt framtíð hefur gefið út hverjir skipa efstu þrjú sætin á framboðslistanum til sveitarstjórnarkosninga í vor. Fundur Bjartrar framtíðar stendur nú ... Lesa »

Hús vikunnar: Lundargata 13.

Lundargata 13 er af algengri gerð timburhúsa frá því um aldamótin 1900 og eitt margra samskonar húsa við götuna en mörg svipuð hús standa þar og við ... Lesa »

Dregið úr heimanámi í Giljaskóla

Meginhluti rannsókna staðfestir ekki gildi eða mikilvægi heimalærdóms. Þetta segir skólastjóri Giljaskóla, Jón Baldvin Hannesson. Hann segir ekki alla ... Lesa »

Tvær milljónir í óþekkt áhugamannafélag

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, hefur útdeilt styrkjum í nafni menningarminja fyrir 205 milljónir króna frá því hann tók við í ... Lesa »

Háskólinn á Akureyri

Sjö sóttu um stöðu Rektors við HA

Staða rektors við Háskólann á Akureyri var auglýst laus til umsóknar 31. janúar 2014. Umsóknarfrestur rann út 28. febrúar sl. Nú er ljóst að sjö ... Lesa »

Saurgerlar langt yfir viðmiðunarmörkum

Mikil saurgerlamengun mældist í Eyjafirði í mælingu heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra þann 21. janúar síðastliðinn. Mælingin var svo mikil að ... Lesa »