Netníðingarnir eru norðlenskir

Netníðingarnir eru norðlenskir

Myndin af Þórlaugu sem var breytt og sett á vefinn

Fyrir stuttu var mikið rætt um síðu á Facebook sem gekk undir nafninu Karlar eru betri en konur. Um var að ræða síðu sem birti mikið af myndum og texta sem niðurlægði konur. Síðan vakti fyrst athygli landsmanna þegar Þórlaug Ágústsdóttir varð fyrir grófum nauðgunarhótunum ásamt því að birt var mynd af henni sem breytt var í myndvinnsluforriti og birt á síðunni með textanum: „Konur eru eins og gras, það þarf að slá þær reglulega“.

Flestir fjölmiðlar landsins fjölluðu um síðuna og baráttu Þórlaugar við að fá myndina fjarlægða en forsvarsmenn Facebook höfðu þá ekki sinnt ítrekuðum beiðnum frá fjölda fólks um að fjarlægja myndina. Málið komst í hámæli og um það var fjallað víða um heim, til dæmis í tímaritinu Der Spiegel, á dönsku sjónvarpsstöðinni TV2, í sjónvarpi í Suður-Ameríku og Miðjarðarhafslöndunum og víðar. Facebook fjarlægði myndina og forsvarsmenn fyrirtækisins báðust afsökunar á því að hafa ekki brugðist betur við. Það var þó ekki svo að um tilviljun væri að ræða að aðstandendur síðunnar ákváðu að birta mynd af Þórlaugu því hún hafði í nokkurn tíma átt í samskiptum við þá á Facebook þar sem hún hafði reynt að rökræða við þá um jafnréttismál og skaðsemi svokallaðrar „nauðganamenningar“. Einnig höfðu þessir sömu aðilar hótað Hildi Lilliendahl og orðið þess valdandi að ítrekað var Facebookaðgangi hennar lokað.

Í gegnum tíðina hefur ekki verið hlaupið að því að komast að hverjir hafa staðið á bak við síður sem þessa en Þórlaug hefur ásamt fleirum unnið að því að komast að því hver eða hverjir það eru sem standa á bak við síðuna og sú vinna hefur leitt í ljós að um er að ræða drengi á aldrinum 15-20 ára sem búsettir eru á Norðurlandi, flestir í foreldrahúsum. Þórlaug hefur nú þegar tilkynnt barnaverndarnefnd á Húsavík um málið en hefur ekki lagt fram kærur vegna þess. „Þetta er mál sem ég vil helst ekki þurfa að fara með til lögreglunnar. Þessir strákar eru rafrænir „góðkunningjar lögreglunnar“ og þegar þeir búa í foreldrahúsum þá finnst mér augljóst að um ákveðið foreldravandamál sé að ræða,“ segir Þórlaug og biðlar til foreldra á Norðurlandi að ræða við börn sín um hegðun á netinu og virðingu fyrir öðrum.

„Eitt gott hefur þó komið út úr þessu, og það er að jafnréttismál hafa fengið verðskuldaða umræðu, en málið snýst samt ekki um um einhverja baráttu kynjanna hvort gegn öðru, heldur það að við sem samfélag höfnum ofbeldi – hvar svo sem það fyrirfinnst, á netinu eða innan veggja okkar eigin heimilia,“ segir Þórlaug að lokum.

snjorvegur

Stórhríð víða á Norðurlandi

„Stórhríð er á Siglufjarðarvegi og mikil veðurhæð, og fólk eindregið varað við að vera þar á ferð,“ segir á vef Vegagerðarinnar nú undir kvöld. Norðaustan- og austanlands ... Lesa »

Arndís Bergsdóttir

Jafnrétti á gervigrasi

Íslendingar eru allt í einu orðnir bestir í hópfimleikum! Nei, útskýrði kona í morgunþætti einnar útvarpsstöðvar í vikunni. Íslendingar urðu ekki „allt í einu” bestir heldur ... Lesa »

Edward H. Huijbens

Af hverju að virkja Glerá frekar?

Um nokkurt skeið hafa verið uppi hugmyndir um að koma upp nýrri vatnsaflsvirkjun í Glerá. Þær eru svo sem ekki nýjar af nálinni. Allt frá því áin var fyrst virkjuð 1922 hafa verið ... Lesa »

Takmörkun eignarhalds á fjölmiðlum

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur mælt fyrir frumvarpi um breytingu á lögum um fjölmiðla. Þar er kveðið á um rýmri heimildir en áður til að takmarka fákeppni og grípa inn í ... Lesa »

Erill hjá björgunarsveitum á Norðurlandi í nótt

Björgunarsveitir á Norðurlandi hafa verið kallaðar út vegna óveðurs í nótt og í morgun. Á Siglufirði var Björgunarsveitin Strákar á vaktinni í húsi í nótt og sinnti fjölda ... Lesa »

Ósanngjarn rógburður

„Hann reyndist samferðamönnum sínum í heimskautaferðum illa, frægast er að hann skildi þá eftir í ferð á skipinu Karluk. Fjöldi þeirra dó eftir mikla hrakninga,“ ritar Egill ... Lesa »

snjorvegur

Víkurskarð og Öxnadalsheiði lokuð

Ófært er yfir Víkurskarð og beðið með mokstur vegna veðurs en mjög hvasst er á skarðinu. Öxnadalsheiði er ófær en mokstur hefur tafist en mokstursbíllinn fór útaf veginum í ... Lesa »

Björn Þorláksson

Akureyri – allt öðruvísi en Reykjavík

Það hefur að ýmsu leyti reynst áhugavert að lesa hér í opnuviðtölum blaðsins síðustu þrjú misseri hvernig fólk sem flytur til Akureyrar sér kosti bæjarins. Í síðustu viku var ... Lesa »

snjorvegur

Ekki gott ferðaveður á Norðurlandi

Veðurfræðingur Vegagerðarinnar varar við því að skil mjög djúprar lægðar fari norður í kvöld og nótt með vaxandi vindi og austan- og norðaustanstormi. Snjókoma og skafrenningur ... Lesa »

Mikil loftmengun

Vefur Akureyrar vikublaðs birti sl. þriðjudag frétt þar sem fram kemur að rangar upplýsingar hafi birst á heimasíðu Akureyrarbæjar um styrk svifryks. Rekstur beggja svifryksmælanna á ... Lesa »

Halldór Helgason slasaðist á X Games

Mesti snjóbrettakappi Akureyrar, Halldór Helgason, missti meðvitund þegar hann lenti illa eftir að hafa reynt þrefalt aftur á bak heljarstökk en misreiknaði sig og fékk ... Lesa »

Þið ættuð að skammast ykkar!

Nú hefur framkvæmdadeild Akureyrarbæjar hafið hertar aðgerðir gegn óskráðum köttum í bænum. Þeir virðast vera að fara yfir allar skráningar á dýrum, eyrna- og örmerki og senda út ... Lesa »

ég er frjáls, ég er frjáls

Það var eins og mig grunaði að það yrði engin venjuleg bíóferð að setjast niður í félagsheimili Mývetninga, Skjólbrekku, sl. mánudag. Ekkert popp, ekkert kók, heldur spenna, andakt, ... Lesa »

Herverk sem breytti Íslandi

Hann segist hafa verið hræddur þegar myndin var frumsýnd, eini sprengimaðurinn sem lifir. Akureyri vikublað heimsótti Arngrím Geirsson kennara og hestabónda á Álftagerði. Hann rýfur loks ... Lesa »

Sækjum fram – tökum þátt

Á morgun, laugardag, verður prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi þar sem valið verður á framboðslista flokksins fyrir alþingiskosningarnar 27. apríl næstkomandi. Í ... Lesa »

Lið MA í Gettu Betur

Slagur milli MA og MR

Lið Menntaskólans á Akureyri vann lið Framhaldsskólans á Húsavík í seinni umferð Gettu betur á Rás 2 og keppir í fyrsta leik Sjónvarpsins þetta árið, nánar tiltekið 8. febrúar. ... Lesa »

VMA býður nemendum upp á sálfræðimeðferð

VMA er að öllum líkindum fyrsti framhaldsskólinn á landinu sem ræður sálfræðing til þess að sinna geðheilbrigði nemenda sinna. Á þessu sviði er Ísland töluvert langt að baki hinum ... Lesa »

Rikke Flensberg í Populus tremula

Á morgun, laugardaginn 26. janúar, kl. 14.00 opnar danska listakonan Rikke Flensberg myndlistarsýninguna THE LUME í Populus tremula. Rikke, sem dvelur í Gestavinnustofu Gilfélagsins, vinnur ... Lesa »

Lof og last

Lof og last vikunnar

Lof fá Snorri Guðvarðarson og félagar – öðru nafni hljómsveitin Hlíðin mín fríða fyrir að sjá um lifandi tónlist á öllum kráarkvöldum á Öldrunarheimilum Akureyrar frá upphafi. ... Lesa »

Ástar– og fjölgunarátak í Húnavatnshreppi

Í kjölfar umræðna um nauðsyn þess að fjölga börnum í skólum og íbúum almennt í Húnavatnshreppi hafa tvær konur tekið að sér það hlutverk að hvetja íbúa hreppsins til ástar og ... Lesa »

Yngri fái að kaupa áfengi

Kristján Þór Júlíusson, sem etur kappi við Tryggva Þór Herbertsson í baráttu um 1. sætið hjá Sjálfstæðisflokki í NA-kjördæmi um helgina telur ekki útilokað að skipta verði um ... Lesa »

Barnafjölskyldum mismunað

Reykjavík veitir 75% systkinaafslátt á leikskólum en Akureyri 30%. Sé miðað við að grunngjald á mánuði án fæðis sé um 24.000 kr. hjá báðum sveitarfélögum borgar Reykvíkingur um ... Lesa »

Nýtt fiskvinnslu­fyrirtæki á Dalvík

Nýtt fiskvinnslufyrirtæki mun á næstu dögum hefja starfsemi á Dalvík, Marúlfur ehf. Að stofnun félagsins koma bæði einstaklingar og fyrirtæki í sveitafélaginu. Unnið hefur verið að ... Lesa »

Við styðjum Erlu

Erla Sigríður Ragnarsdóttir sem býður sig fram í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar hefur vakið athygli okkar. Það er óneitanlega ... Lesa »

Hvað eru sviðslistir?

Fyrirlestrar á vordögum nefnist fyrirlestraröð Listnámsbrautar VMA og Sjónlistamiðstöðvarinnar sem hefst á morgun, föstudaginn 25. janúar, kl. 14:30 í Ketilhúsinu með fyrirlestri ... Lesa »

Skoða meira