Ósonlagið í þynnra lagi - mikilvægt að passa börn og unga sérstaklega

Í Akureyrarlaug

Sumarblíðan á landinu virðist engan endi ætla að taka og landsmenn allir flykkjast nú í sundlaugar og aðra útivistarstaði til að njóta veðurblíðunnar. Það er þó ástæða til að vara við of mikilli sólardýrkun því þessa dagana er ósonlagið þynnra en oft áður og því enn meiri ástæða til að hafa varan á fyrir sólbruna

Svokallað UV (ultra violet) eða ÚF (útfjólublátt) gildi mældist yfir 5 á Íslandi klukkan 12:30 í dag en þetta er fjórði dagurinn í röð sem gildið fer svo hátt upp.

Ástæða þess að gildið fer svo óvenjulega hátt upp er sú að ósonlagið yfir Íslandi er heldur undir meðaþykkt þessa dagna ásamt því að himininn er heiðskýr og loftið tært. Allt þetta samanlagt gerir það að verkum að sólin hefur mun meiri áhrif á húðina en mörg okkar halda.

Það er þó ekki um neina sérstaka þynningu á ósonlaginu að ræða núna því sveiflur eru eðlilegar en á myndinni hér fyrir neðan má sjá kort sem sýnir þéttni ósonlagsins. Það má í raun hugsa sér að ósonlagið sé ósýnilegt ský, stundum þykknar og stundum þynnist það og hreyfist til. En yfir Íslandi þessa dagana er það þynnra en í meðallagi, sem er um 375 stig.

Gervihnattarmynd af ósonlaginu

Á vef húðlæknarstöðvarinnar má sjá töflu yfir UV/ÚF gildi hvers dags og í dag kemur fram að hæsta gildi sé yfir fimm sem er óvenju hátt á þessum árstíma þó það sé ekki einsdæmi. En þegar gildið fer svona hátt er ekki ráðlegt að vera úti í sólinni án góðrar sólarvarnar lengur en 60 mínútur og ekki lengur en 25 mínútur ef húðin er viðkvæm.

Það er þó fleira sem getur breytt því hversu mikil áhrif geislar sólarinnar hafa á okkur. Til dæmis aukast áhrifin ef þeir endurkastast af vatni, snjó, hvítum vegg eða glugga. Þá erum við að fá sólina beint á okkur og að auki endurkast frá umhverfinu. Einnig eru áhrifin meiri eftir því sem við erum hærra stödd yfir sjávarmáli.

Það er sérstaklega mikilvægt að verja börn og ungt fólk vel fyrir sólinni vegna þess að eftir því sem aldurinn færist yfir hefur líkaminn framleitt meira af litafrumum, sem eru okkar náttúrulega vörn gegn sólinni. En börn og ungmenni eiga eftir að byggja þessa vörn upp.

Samkvæmt spám veðurstofunnar mun varla sjá ský á himni á Norðurlandinu fyrr en eftir næstu helgi. Svo það er um að gera að birgja sig upp af sólarvörn og njóta sumarblíðunnar.

Vaðlaheiðargöng – kostir fleiri en gallar

Ég veit ekki hversu oft ég hef keyrt yfir Víkurskarðið í brjáluðu veðri og verið mjög hrædd. Á veturna er þessi vegur alveg stórhættulegur. Afi minn ... Lesa »

Þorvaldur Lúðvík leystur undan starfsskyldum

Á fundi AFE í dag varð stjórn við þeirri beiðni Þorvalds Lúðvíks Sigurjónssonar, framkvæmdastjóra, um leyfi frá starfsskyldum framkvæmdastjóra. Þetta ... Lesa »

Gunnar Gíslason endurgreiði styrkinn

Gunnar Gíslason, fræðslustjóri Akureyrarbæjar, þarf að greiða námsstyrk til baka sem hann fékk frá Akureyrarbæ, að mati Ingu Þallar Þórgnýsdóttur, ... Lesa »

Sölu á Deiglunni frestað?

Logi Már Einarsson, S-lista, lagði fram tillögu á Bæjarráðsfundi í dag um að fresta sölu á Deiglunni og gestavinnustofu í Listagilinu. Vildi ... Lesa »

Stjórn AFE kemur saman til fundar vegna ákæru

Stjórn Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar kemur saman til fundar nú kl 14:00 til að ræða nýuppkomna stöðu framkvæmdastjóra félagsins. Þorvaldi Lúðvík ... Lesa »

Ófært um Öxnadalsheiði

Björgun á Öxnadalsheiði

Vala Hauksdóttir sem lenti í því að bíll hennar bilaði á Öxnadalsheiðinni sl. laugardag segist þakklát vegfarendum sem björguðu henni og annarri konu ... Lesa »

Norðurorka

Brúnt vatn í krönum íbúa

Í gær fór að bera á leirlituðu hitaveitu vatni í Eyjafjarðarsveit austanverðri. Leirveggur losnaði úr borholu við Laugaland sem smitaði kerfið. Í ... Lesa »

Vísbendingar um nýja nýlendustefnu

Í ritrýndri grein sem doktor Edward Huijbens skrifaði í félagi við annan fræðimann í Current Issues in Tourism árið 2013 fer hann yfir vandamál sem ... Lesa »

Tekist á um störf og námsleyfi

Gunnar Gíslason, sigurvegari sjálfstæðismanna í prófkjöri á Akureyri, átti fund með bæjarstjóra í fyrradag um stöðu Gunnars sem fræðslustjóra. Gunnar ... Lesa »

Framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar ákærður

Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, fyrrverandi bankastjóri Saga Capital, hefur verið ákærður fyrir þátt í Stím-málinu svokallaða. RÚV greindi frá þessu í ... Lesa »

Björn Þorláksson

Úthýst frá áhrifum?

Kannski er til marks um að mikið vanti upp á jafnrétti að allar þær konur sem hafa setið í bæjarstjórn Akureyrar þetta kjörtímabil hyggist víkja af ... Lesa »

Orkusamningur klár fyrir kísilver á Bakka

Landsnet og PCC semja um orkuflutning fyrir kísilver á Bakka Landsent hefur undirritað samkomulag um raforkuflutninga við PCC BakkiSilicon hf., ... Lesa »

Viðburðadagatal Fjallabyggðar 2014

Fjallabyggð, sveitarfélag sem samanstendur af þéttbýliskjörnunum Ólafsfirði og Siglufirði, hefur sett saman viðburðadagatal fyrir allt árið 2014. Þar ... Lesa »

Maðurinn er fundinn

Lögreglan á Akureyri lýsti eftir þessum manni vegna rannsóknar máls sem þeir eru með í vinnslu. Lögrelgan hefur náð tali af ... Lesa »