Aðalfundur Veiðifélags Mývatns fór fram í Seli um síðustu helgi. Þar bar Bragi Finnbogason upp ályktun um að Bjarnarflagsvirkjun yrði mótmælt og hlutaðeigandi og fjölmiðlum yrði í kjölfarið send ályktun aðalfundarins. Tillagan var svohljóðandi:
„Veiðifélag Mývatns skorar á sveitarstjórn Skútustaðahrepps og aðra sem koma að leyfisveitingum á vegum sveitarfélagsins að veita ekki frekari leyfi til framkvæmda við jarðgufuvirkjanir í næsta nágrenni Mývatns.
Svæðið er á rauðum lista umhverfisyfirvalda vegna áforma um Bjarnarflagsvirkjun, mengandi frárennslis frá mannabyggð og hnignunar kúluskíts.
Bleikjuveiðin, löngum stórfelld hlunnindi vatnsbænda í Mývatnssveit, er að engu orðin. Í þrjú ár hefur bleikjuveiði aðeins verið heimil í tvær vikur að vetri undir ís. Urriðaveiði hefur einnig verið takmörkuð og nú eru jafnvel horfur á að takmarka verði hana enn frekar. Rannsóknir á lífríki svæðisins hafa staðið í áratugi og leitt í ljós að litlar breytingar geta valdið kollsteypum, samspil einstakra þátta er flókið og lítt fyrirsjáanlegt.
Þau áhrif gufuvirkjunar í Bjarnarflagi sem mestum áhyggjum valda eru minna hitastreymi til vatnsins vegna kólnunar og/eða minna rennslis og eiturefnamengun af borholuvökva.
Aðalfundur Veiðifélags Mývatns fer fram á að varúðarreglan gildi og hætt verði við öll áform um jarðfuguvirkjanir og aðra mengandi starfsemi í næsta nágrenni Mývatns.“
Miklar umræður urðu um tillöguna á fundinum og komu ýmis og ólík sjónarmið fram. Gengið var til leynilegrar atkvæðagreiðslu um málið og var tillagan naumlega felld með 18 atkvæðum gegn 14.
Í hópi þeirra sem töluðu gegn ályktuninni voru sveitarstjóri Mývetninga og verktaki við undirbúningsframkvæmdir vegna fyrirhugaðrar Bjarnarflagsvirkjunar.
Á dögunum var stofnað félag í Mývatnssveit sem ætlað er að efla sjálfbærni svæðisins og vernda lífríki náttúrunnar, enda sé um einstæða náttúrperlu í veröldinni að ræða, sem beri að njóta vafa þegar virkjunarframkvæmdir séu annars vegar.
-BÞ








