Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt konu frá Ólafsfirði í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir þjófnað. Konan hnuplaði laugardaginn 5. október 2013, ísskápsseglum, ofnhönskum, svampi, kryddkvörnum og Remington dömurakvél, samtals að verðmæti 19.665 krónum í versluninni Bykó við Óðinsnes á Akureyri. Þá tók hún brjóstahaldara að verðmæti 4.990 krónum í verslun Hagkaupa við Furuvelli á Akureyri ófrjálsri hendi miðvikudaginn 18. desember síðastliðinn. Fulltrúi sýslumanns sótti málin.
„Til þess ber að líta að ákærða játaði brot sín við lögreglurannsókn málsins og var þýfinu komið til skila á brotavettvangi til eigenda. Afrakstur brota ákærðu var einnig harla rýr. Þá lýsti ákærða fyrir dómi iðran vegna gjörða sinna. Að þessu virtu og með hliðsjón af viðeigandi ákvæðum 70. gr. almennra hegningarlaga verður refsing ákærðu bundin skilorði,“ segir í dómsorði.
Engan sakarkostnað leiddi af rekstri málsins samkvæmt yfirlýsingu fulltrúa lögreglustjóra.
-BÞ







