Fjöldi manns hefur síðustu daga verið að störfum í Kringlumýrinni við gerð sjónvarpsauglýsingar á vegum Republik ehf. Kaupandi auglýsingarinnar fæst ekki upp gefinn en vettvangsstjóri upplýsir að um dekkjaauglýsingu sé að ræða.
Gerð auglýsingarinnar fer fram með leyfi lögreglu og bæjaryfirvalda og einnig þurfti leyfi íbúa 27 húsa við Kringlumýri til að hægt væri að breyta heimkynnum fólksins í vettvang fyrir sjónvarpsauglýsingu. Nokkur röskun fylgir daglegu lífi íbúanna vegna gerðar auglýsingarinnar. Þegar undirbúningur stóð sem hæst og Akureyri vikublað leit við voru snjóbyssur úr Hlíðarfjalli í notkun og mikill hávaði sem þeim fylgdi. Áhorfendur hafði drifið að og fylgdist fólk spennt með. Einn íbúi sem hafði samband við blaðið sagðist ósáttur yfir að þegar hann kom heim í hádeginu á þriðjudag hefði snjóbyssu verið beint að húsinu hans. „Það var ekki búið að kynna það fyrir okkur að þetta yrði svona. Ég þurfti að byrja á að mölva klaka af hurðinni til að komast inn og núna sé ekki út um glugga, hvorki í austur né suður,“ sagði íbúinn.
Óskar Óskarsson, vettvangsstjóri hjá Republik sem ber ábyrgð á framkvæmd auglýsingarinnar, segist ekki hafa heyrt annað en gleði meðal íbúa í götunni, enda sé framleiðsla auglýsingarinnar ákveðið ævintýri. Ef einhver sé ósáttur vilji hann gjarnan að viðkomandi hafi beint samband við sig. Óskar segir umhverfisvænt að notast við alvöru snjó en ekki frauð eða mjöl eins og oft sé gert þegar skapa á snjóstemningu í auglýsingum.
„Það er fullt af mannskap sem hefur atvinnu af þessu hérna í bænum og ég hef ekki mætt öðru en vinalegu viðmóti fólks, þetta er ævintýri í hversdagleikanum, falleg gata og hún fær fallega umgjörð.“
Aðaltökudagur fór fram í gær.






