KHG European Hospitality Partners, félag sem bauð hæst eða 384 milljónir króna í eignina Skútustaðaskóla í Mývatnssveit á uppboði í síðustu viku, er með lögheimili í Lúxemborg. Þetta sýnir rannsókn Akureyrar vikublaðs. Skútustaðaskóli hefur gegnt hlutverki hótels síðari ár undir nafninu Hótel Gígur. Sá sem er skráður fyrir öllum hlutum félagsins í Lúxemborg er Íslendingur og sonur fyrrum eiganda.
Gerðarbeiðendur á uppboðinu voru Byggðastofnun og Stafir Lífeyrissjóður. Hótel Mývatn ehf. var þinglýstur eigandi fasteignarinnar sem fjárfestingarfélagið KHG European Hospitality Partners keypti. KHG European Hospitality Partners var stofnað seint á síðasta ári. Í stjórninni, sem samanstendur af fimm einstaklingum, er einn Íslendingur, Sveinn Jónatansson lögmaður í Reykjavík. Hlutir félagsins eru hundrað. Þeir eru allir í eigu annars Íslendings, Valdimars Jónssonar, sem búsettur er í Prag. Valdimar Jónsson er sonur fyrrum eiganda húsnæðisins, Jóns Ragnarssonar. Jón Ragnarsson keypti eignina á sínum tíma á tuttugu milljónir króna af Skútustaðahreppi og breytti í hótel. Jón reisti m.a. Hótel Örk og rak Hótel Valhöll um tíma.
Fjórir buðu í hótelið á uppboðinu sem fram fór í Skútustaðaskóla í síðustu viku. Innlendu bjóðendurnir töldu fyrirfram að kaupverðið færi ekki svo hátt. Svavar Pálsson, sýslumaður á Húsavík, sem stýrði uppboðinu segir að frestur til að standa við boðið renni út 6. mars næstkomandi. Til að kaupin gangi í gegn þarf KHG að uppylla ýmsar lagalegar skyldur s. s. hafa rétt á að eignast fasteign á Íslandi. Ef félagið fer þá leið að borga með evrum gæti heildarkostnaður við kaupin orðið tugmilljónum lægri en ef Íslendingar innanlands ættu í hlut. Sjá nánar í blaðinu í fyrramálið
-BÞ / SA







