Kennarar við Menntaskólann á Akureyri annars vegar, og kennarar og starfsfólk við Menntaskólann á Tröllaskaga hins vegar, hafa sent frá sér ályktanir vegna kjaraviðræðna F.F. við ríkið. Þessi félög hafa miklar áhyggjur af stöðunni og greinilegt að engan bilbug er á þeim að finna í kjaraviðræðunum.
Ljóst er að það stefnir í nokkuð harða rimmu. Ef þiðnar ekki í viðræðunum blasir verkfall menntaskólakennara við.
Ályktun Kennarafélags MA:
„Kennarafélag Menntaskólans á Akureyri lýsir furðu sinni og vonbrigðum yfir gangi viðræðna milli Samninganefndar ríkisins og Félags framhaldsskólakennara nú þegar kjarasamningur hefur runnið út. Kennarar lýsa yfir fullum stuðningi við þær kröfur sem samninganefnd Félags framhaldsskólakennara hefur sett fram. Framhaldsskólakennarar hafa frá árinu 2006 dregist háskalega mikið aftur úr samanburðarhópum hvað laun og kaupmátt varðar. Á sama tíma hafa fjárframlög ríkisins til framhaldsskólanna verið skert markvisst svo launaliður þeirra er nú langt undir því sem telst raunverulegur launakostnaður. Ef borið er saman við
önnur OECD ríki vex skömmin enn frekar.
Kennarar við Menntaskólann á Akureyri munu standa þétt saman og styðja forystu Félags framhaldsskólakennara ef grípa þarf til aðgerða til verndar kennarastarfinu og menntun ungmenna á Íslandi.“
Ályktun kennara og stjórnenda Menntaskólans á Tröllaskaga:
„Kennarar og stjórnendur í Menntaskólanum á Tröllaskaga krefjast þess að nýir kjarasamningar framhaldsskólakennara við ríkið feli í sér raunverulegar kjarabætur.
Að lágmarki ætti nýr samningur að fela í sér að bætt verði kjararýrnun sem framhaldsskólakennarar hafa orðið fyrir umfram viðmiðunarstéttir. Munurinn mælist 17% á dagvinnulaunum og 10% á heildarlaunum á tímabilinu 2006 til 2013. Þar að auki er þörf á að bæta starfsaðstæður og kjör ef mögulegt á að vera að auka gæði menntunar.
Slæm starfskjör ógna nýliðun í stéttinni. Margir munu hætta vegna aldurs á næstu árum en aðsókn í kennaranám hefur hins vegar minnkað og er ekki að efa að slök launakjör og lenging námsins eru aðalástæður þess.“





