Um akureyrivikublad.is

Um akureyrivikublad.is

Vefmiðillinn akureyrivikublad.is er stofnaður 1. apríl 2012 og er í nánu samstarfi við blaðið Akureyri vikublað sem gefið er út af Fótspori ehf og ritstýrt af Birni Þorlákssyni.

Eigendur vefmiðilsins eru Sóley Björk Stefánsdóttir (kt: 090773-3489) og Völundur Jónsson (kt: 060484-2959)

Ritstjóri er Sóley Björk Stefánsdóttir

Efnistök vefmiðilsins eru þríþætt: Blaðamaður Akureyrar vikublaðs sér um fréttaöflun og úrvinnslu að mestu leyti. Aðsendar greinar geta birst bæði í Akureyri vikublaði og vefmiðlinum. Annað efni er unnið af eða er á ábyrgð ritstjóra vefmiðilsins.

Vefmiðillinn er rekinn af þeirri samfélagslegu hugsjón að bæta aðgengi bæjarbúa að fjölbreytilegum upplýsingum sem þá varða og hvetja til umræðu um málefni bæjarins og bæjarbúa. Allar tekjur miðilsins koma af sölu auglýsinga.

Ekki er tekið við auglýsingum sem ganga gegn lögum s.s. með vísun í áfengi.

Ritstjóri miðilsins er fjölmiðlafræðingur, lauk stúdentsprófi af listnámsbraut Borgarholtsskóla, með margmiðlunarhönnun sem kjörsvið (2002), B.A. gráðu í fjölmiðlafræði frá Háskólanum á Akureyri (2009) og kennslufræði til kennsluréttinda frá Háskólanum á Akureyri (2011).

Hugleiðing ritstjóra vefjarins um hagsmunatengsl