Akureyri Vikublað

Þúfnatal í Flóru
Guðbrandur Siglaugsson

Guðbrandur Siglaugsson, skáld og tónlistarmaður mun lesa upp úr nýjustu bók sinni Þúfnatali í Flóru, Hafnarstræti 90 á Akureyri fimmtudaginn 20. júní kl. 17:45.

Þúfnatal er 12. ljóðabók Guðbrands og kom út fyrr á þessu ári hjá Uppheimum. „Guðbrandur Siglaugsson býr að afar persónulegu og heillandi ljóðmáli sem nýtur sín til fulls í þessari nýju bók og gestir Flóru fá að njóta þess á fimmtudaginn,“ segir í tilkynningu um viðburðinn.

Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir.

Flóra er verslun, viðburðarstaður og vinnustofur og menningardagskrá Flóru hlaut styrk úr Menningarsjóði Akureyrar á þessu ári.

Plötusnúðar í hár saman
Félagarnir saman á með allt lék í lyndi

Í yfirlýsingu sem N3 plötusnúðar sendu frá sér nú í kvöld kemur fram að Dynheimaballið um næstu verslunarmannahelgi sé í uppnámi vegna samstarfsörðugleika N3 plötusnúða við Hólmar Svansson og Þórhall Jónsson en saman hafa þeir staðið fyrir hinum vinsælu Dynheimaböllum í Sjallanum.

N3 plötusnúðar eru félagarnir Davíð Rúnar Gunnarsson, Sigurður Rúnar Marinósson og Pétur Guðjónsson sem allir voru á sínum tíma plötusnúðar á unglingaskemmtistaðnum Dynheimum á níunda áratug síðustu aldar.

Yfirlýsingin hljóðar svo í heild sinni:

Undanfarin ár höfum við haldið nostalgíuböll, þar sem fólk gleðst saman og miklir endurfundir heilu árganganna eiga sér stað. Þessir dansleikir hafa verið haldnir undir nafninu Dynheimaball. Fyrir þessa dansleiki höfum við sameinað krafta okkur við Hólmar Svansson og Þórhall Jónsson sem eru gamlir Dynheimaplötusnúðar. Nú stendur yfir undirbúningur á Dynheimaballi fyrir næstu verslunarmannahelgi, sem er fimmta verslunarmannahelgin í röð sem við höldum þetta ball. Og þar sem fólkið sem var í Dynheimum eldist þá vildum við taka næsta skref. Hingað til hefur verið 30 ára aldurstakmark á Dynheimaböllin en í ár vildum við breyta því.

Hugmyndin sem við lögðum fram var að skipta Dynheimaballinu á tvo dansleiki sitt hvort kvöldið um versló. Á föstudagskvöldinum vildum við hafa 25 ára aldurstakmark og spila 90´s tónlist. Á laugardagskvöldinu vildum við hafa sömu tónlist og hefur verið með 35 ára aldurstakmarki.

Í hádeginu í dag, 18.júní kynntum við þessa hugmynd fyrir þeim Hólmari og Þórhalli. Eftir stuttar útskýringar á hugmyndinni greip Þórhallur fram í fyrir okkur og sagði að svona yrði þetta ekki. Við reyndum í vinsemd að útskýra þetta en allt kom fyrir ekki. Hólmar og Þórhallur ruku þá á dyr og sögðust vera hættir að starfa með okkur, þeir myndu bara gera þetta sjálfir. Þess vegna sjáum við okkur knúna til að senda frá okkur þessa yfirlýsingu.

N3 plötusnúðar eru upphafsmenn af Dynheimaböllum í þeirri mynd sem þau eru. Þrátt fyrir að Hólmar og Þórhallur hafi spilað í Dynheimum í gamla daga þá eru breyttir tímar og þeir trúlega hættir að skilja út á hvað þetta gengur sökum aldurs.

Við lýsum því hér með yfir að VIÐ munum halda Dynheimaball í ár og verður það haldið á tveimur kvöldum, föstudagskvöldinu og laugardagskvöldinu um verslunarmannahelgina. Öll önnur auglýst Dynheimakvöld eru vörusvik.

Með vinsemd og virðingu:

N3 plötusnúðar:

Davíð Rúnar Gunnarsson, Sigurður Rúnar Marinósson og Pétur Guðjónsson

Norðurland í þriðja sæti hjá Lonely Planet
Sérstaklega mælir Lonely Planet með Jarðböðunum við Mývatn í stað Bláa lónsins

Í dag var birtur listi yfir þá tíu staði í Evrópu sem ferðahandbókaútgefandinn Lonely Planet mælir með. Þar var Norðurland í þriðja sæti á eftir borginni Búdapest í Ungverjalandi og borginni Porto ásamt Douro dal í Portúgal.

Sagt er frá vinsældum Íslands sem áfangastaðar ferðamanna en þar sem Lonely Planet reynir iðulega að benda sínum lesendum á áhugaverða staði þar sem ekki er mikið um ferðamenn er fólki ráðlagt að fara lengra en á suðurlandið til að njóta norðurljósa á Akureyri og skoða hraunbreiður, „fossa eins og þú hefur ekki getað ímyndað þér þá, hestaferðir og frábæra hvalaskoðun frá Húsavík.

Sérstaklega er svo bent á Jarðböðin við Mývatn sem sé „mini útgáfa“ af Bláa lóninu – án ferðamannanna.

Þessi tilnefning mun án efa hafa mikla þýðingu fyrir markaðssetningu Norðurlands sem ferðamannastaðar.

Jafnrétti kynjanna í Evrópu rætt á hádegisfundi á KEA
Agnés Hubert

Kynjajafnrétti er eitt af grundvallaratriðum Evrópusamrunans og þarf að samþætta það inn í öll stefnumarkmið ESB og hefur Evrópusambandið haft töluverð áhrif á þróun jafnréttismála innan aðildarríkja sinna.

Agnès Hubert, sérfræðingur um jafnréttismál innan ESB, heldur erindi á opnum fundi á Hótel KEA fimmtudaginn 20. júní kl. 12-13.

„Flestir eru sammála um að ESB hafi haft mikil áhrif á þróun jafnréttismála í aðildarríkjum ESB, en krafan um launajafnrétti hefur verið til staðar í sáttmálum sambandsins frá árinu 1958 og frá þeim tíma hefur ESB markvisst þróað stefnu um jafnréttismál kynjanna,“ segir í fréttatilkynningu um fundinn.

Agnés Hubert heldur því fram að kynjajafnrétti hafi verið mikilvægur þáttur í samruna Evrópu og sé jafnvel enn mikilvægari nú en áður ef horft er til þeirra efnahagslegu, félagslegu og pólitísku áskorana sem ESB stendur frammi fyrir. Í erindinu verður fjallað um hvernig áhrif frá stofnunum, háskólasamfélaginu og fleiri aðilum hafa mótað stefnu ESB í jafnréttismálum, helstu skref sem hafa verið tekin innan hennar og árangurinn metinn.

Agnès Hubert er hagfræðingur og stjórnmálafræðingur og starfar við stefnumótun í Evrópumálum hjá framkvæmdastjórn ESB. Hún hefur einnig starfað sem sérfræðingur hjá Evrópuþinginu og sem blaðamaður með efnahagsmál sem sérsvið.

Fundurinn er öllum opinn og eru allir áhugasamir hvattir til að mæta.

Tjaldafjölskylda sækir Háskólann á Akureyri
Tjaldafjölskyldan við Háskólann á Akureyri. Mynd af vef skólans

Tjaldapar hefur sl. 15 ár haldið til á þaki Háskólans á Akureyri og nú spókar parið sig ásamt ungum sínum í grasinu við skólann.

Á vef Háskólans er eftirfarandi frásögn og myndir:

Að venju gleður tjaldurinn starfsfólk Háskólans á Akureyri. Árleg heimsókn og sumardvöl tjaldapars háskólans stendur nú yfir og í fyrstu héldu menn að einungis tveir ungar hefðu komið úr eggi að þessu sinni. Laugardaginn 15. júní, sama dag og brautskráning fór fram við HA, sást til unga sem hafði látið sig vaða niður af þakinu og var með öðru foreldri sínu í ormaleit í runnabeði á meðan annar sást kúra sig enn uppi á þaki. En annað koma á daginn, því það eru þrír ungar sem fylgja foreldrum sínum um lóðir háskólans og náðist þessi mynd af fjölskyldunni við kennslustund í ætisleit.

Eitthvað fældust nú greyin á meðan starfsfólk E-húss fylgdist með fjölskyldunni út um gluggann og náðist markaðs- og kynningarstjóri á mynd þar sem hún hljóp um með myndavél. Þrátt fyrir að vera í nokkurs konar felubúningi urðu fuglarnir hennar varir og spöruðu ekki varúðarköllin.

Parið byrjaði búskap á þakinu fyrir rúmum 15 árum og fylgist starfsfólk jafnan spennt með þegar foreldrarnir útskrifa ungviðið um mitt sumar, ýta þeim fram af þakinu og út í hinn stóra heim. Tjaldurinn heldur sig yfirleitt nálægt sjó, enda vaðfugl en hann fúlsar þó ekki við hagfelldum aðstæðum inn til landsins á borð við húsþakið á Háskólanum á Akureyri. Tjaldurinn er einkvænisfugl og getur orðið meira en þrjátíu ára gamall. Það er því aldrei að vita hversu lengi parið mun sækja háskólann heim, nema einhver unganna taki við og viðhaldi hefðinni.

Fleiri myndir má sjá á vef Háskólans

Hús vikunnar: Hátún, Sólvangur og Gamli Glerárskóli; Árholt.
Nú finnst mér alveg kominn tími á að færa mig yfir Gleránna en Þorpið hefur e.t.v. orðið dálítið útundan hjá mér. Í Glerárþorpi er fjöldi gamalla og sögufrægra bygginga ekkert síður en sunnan ár. Nú eru það nokkur eldri hús við Höfðahlíð.

Hátún

Fyrsta húsið í þessari umfjöllun er Hátún en það stendur við Höfðahlíð 4. Hátún er byggt 1926, einlyft steinsteypuhús með lágu risi á lágum kjallara. Alla tíð hefur húsið verið íbúðarhús og trúlega hafa einhverjar fleiri byggingar fylgt í upphafi (útihús e.t.v.) en það er þá allt löngu horfið. Gatan Áshlíð byggðist norður frá húsinu uppúr 1965. Húsið og allt umhverfi þess hefur verið tekið vel í gegn síðustu ár, byggt við að norðanverðu og einnig byggður stæðilegur bílskúr austan við. Allar hafa þessar endurbætur heppnast vel, húsið lítur vel út og til mikillar prýði í Höfðahlíðinni.

Hátún

Sólvangur

Höfðahlíðin tekur sveigju upp hjá Ásnum, að því að heita má samsíða Gleránni. Á gilbarminum ofan gömlu brúarinnar, á mótum Höfðahlíðar og Lönguhlíðar og Háhlíðar stendur Sólvangur. Er það steinsteypt hús frá 1944, undir áhrifum frá funkis-stíl. (Ekki tel ég þó útilokað að húsið sé byggt úr r-steini.) Það er með lágu skúrþaki og sennilega eru bílskúr á bakhlið og sólskáli á suðurhlið seinni tíma viðbyggingar. Sólvangur stendur á vel gróinni lóð, þarna eru mikil lerki- og birkitré áberandi og um hásumarið er húsið að heita má hálffalið undir lauf- og barrskrúði.

Sólvangur

Gamli Glerárskóli

Beint á móti Sólvangi, uppi á hól undir Ásnum, við Háhlíð stendur Gamli Glerárskóli. Það er einlyft steinsteypt bygging með söðulþaki, byggð 1938. Var húsið byggt sem skólahús fyrir Glerárþorp en skólahald hafði þá verið um 30 ára skeið í Ósi við Sandgerðisbót. Þetta hús var ein allra stærsta og veglegasta bygging Glerárþorps á sínum tíma- en húsið var notað til skólahalds allt til 1974 er Glerárskóli (nýi) var reistur, um 100 metra norðvestan við þetta hús. Þá var farið að fjölga all verulega í Glerárþorpi frá því sem var 1938, margar stórar íbúðablokkir komnar og Holtahverfi u.þ.b. fullbyggt. Það sem helst setur svip á húsið eru stórir og miklir gluggar sem snúa á móti suðri og því hefur væntanlega verið mjög bjart í kennslustofunum. Eftir að húsið lauk hlutverki sínu sem skólahús var þarna m.a. um langt skeið leikskóli en nú er þarna dagvistunarheimilið Árholt.

Gamli Glerárskóli, Árholt

Svo er annað sem ég er duglegur að koma að í hvert skipti sem ég fjalla um Þorpið, að mér finnst stórlega vanta sögurit um Glerárþorp á borð við t.d. Húsakönnunarbækur sem til eru um Oddeyrina og Innbæinn. Bók þar sem hægt væri að fletta upp á hverju gömlu býli og þar kæmi fram byggingarár, hver byggði og “létt” söguágrip. Eitt er víst að sú bók myndi verða í miklu uppáhaldi hjá mér.

Arnór Bliki Hallmundsson

Stórviðburður í listalífinu undirbúinn
Þessa dagana eru margar hendur á lofti við undirbúning á stórviðburði í menningarlífi Akureyringa en það er opnun á tíu listsýningum í sjö sýningarrýmum í og við Listagilið á Akureyri.

Stóri dagurinn verður laugardaginn 22. júní en það er listamaðurinn Aðalheiður S. Eysteinsdóttir sem í tilefni af fimmtugasta afmælisdegi sínum mun opnar tíu listsýningar í Listasafninu, Ketilhúsi, Deiglunni, Mjólkurbúðinni, Populus Tremula, sal Myndlistarfélagsins og Flóru sem staðsett er í Hafnarstræti 90. Athygli vekur að opnunin er kl. 22 um kvöldið.

„Samhliða opnun sýninganna verður boðið til mikils fagnaðar í Listagilinu þar sem vel verður veitt. Gleðin  verður við völd og listagyðjurnar heiðraðar með sjónlist, tónlist, gjörningum o.fl. Viðburður þessi verður að teljast einstakur þar sem ekki er vitað til þess að nokkru sinni áður hafi einn listamaður sýnt samtímis á jafn mörgum stöðum,“ segir í kynningu frá Sjónlistamiðstöðinni.

Sýningarnar, sem unnar eru með þátttöku fjölda listamanna af svæðinu, marka hápunktinn í dagskrá Sjónlistamiðstöðvarinnar á árinu 2013 og eru hluti af endapunkti verkefnisins Réttardagur 50 sýninga röð, sem staðið hefur yfir, á vegum Aðalheiðar, síðan 23. júní 2008.

Umfjöllunarefni sýninganna er íslenska sauðkindin og menning henni tengd þar sem markmiðið er að byggja brú milli listsköpunar og raunveruleikans með samstarfi við fjölda skapandi fólks. Að mati Aðalheiðar eru listir sá samfélagsspegill sem nauðsynlegur er til eflingar og afreka, ekki síður en nýsköpun og uppfinningar. Með því að túlka bændasamfélagið og þann óendanlega mannauð sem við höfum yfir að ráða vonast hún til að opna fyrir flóðgáttir hugmynda og færa áhorfandann nær hamingjunni.

Reynir Albert Þórólfsson, starfsmaður Sjónlistamiðstöðvarinnar, tók þessar myndir af undirbúningi herlegheitanna.

Mikið vælt á Bíladögum
Frá bíladögum. Mynd: Fjölnir Örn

Nú er einni af stærstu ferðamannahelgunum á Akureyri lokið en mikið af gestum sóttu bæinn heim bæði í tengslum við Bíladaga sem haldnir eru á vegum Bílaklúbbs Akureyrar og Shell en ekki síður í tengslum við útskrift í Menntaskólanum á Akureyri en hefð er fyrir því að stúdentar frá MA sæki Akureyri heim um þessa helgi.

Daníel Guðjónsson hjá Lögreglunni á Akureyri segir helgina heilt yfir hafa gengið vel. „Það komu engin stórmál upp, engin alvarleg líkamsárás, engin nauðgun tilkynnt og engin stórfelld eignaspjöll. Það var hins vegar mikil ölvun í bænum en með góðri löggæslu tókst okkur að halda öllu í skefjum.“

Daníel segir íbúa Akureyrar hafa kvartað þónokkuð yfir hávaða í bílaumferð seint á kvöldin og nóttunni. „Það er erfitt að ráða við þetta spól á götum og plönum út um allan bæ, við getum bara ekki verið allsstaðar og þeir sem ætla sér að spóla þeir fylgjast bara með því hvar við erum. Það er mjög hljóðbært á kyrrum góðviðrisnóttum eins og nú um helgina og þá veldur þetta íbúum enn meiri ama.“

Daníel segir þó hafa orðið mikla breytingu til batnaðar eftir að dagskrá Bíladaganna færðist upp á svæði Bílaklúbbsins. „Það er ekkert verið að spóla á daginn eins og áður var, og svo sjáum við líka mikinn mun á því að ölvun er ekki lengur áberandi yfir daginn eins og var fyrir nokkrum árum. Það eru færri að sækja hátíðina, nú eru það bílaáhugamenn sem eru að sækja þennan viðburð en ekki eins mikið af fólki sem er að sækjast eftir útihátíðarstemmningunni. Við sjáum mikinn mun á yfirbragðinu nú frá því fyrir nokkrum árum og þetta er góð þróun.“

Hér má sjá myndband sem Fjölnir Örn tók á drift-keppninni á Bíladögum

85 ára afmælisár Léttis
Kátir A úrslita hestar og knapar í töltkeppninni í Afmælis-mótaröðinni. Mynd: Ólafur Ólafsson

Nú á 85 ára afmælisári Léttis verður mikið um að vera og þessa dagana er í gangi mótaröð sem nefnist afmælismót Léttis. Keppt var í tölti 13. júní sl og þann 25. júní verður 100 metra skeið og gæðingaskeið og svo verður keppt í fjórgangi þann 27. júní. Mótaröðin endar svo á keppni í fimmgangi 4. júlí nk.

„Á þessum mótum ætlum við að rifja upp sögu félagsins á milli atriða og í pásum. Í töltkeppninni var farið yfir stofnendur Léttis, formenn, heiðursfélaga og gull/silfurmerkishafa,“ segir á vefsíðu Léttis. En hluta sögunnar og lista yfir formenn, heiðursfélaga og merkishafa er hægt að finna á vefsíðunni.

18-23. júlí verður haldið Íslandsmót yngri flokka og er stjórn Léttis á fullu við að undirbúa það. „Hlakkar okkur mikið til að fá í heimsókn til okkar framtíðarknapa landsins og eigum við von á hörku keppni,“ segir á vef Léttis. Skáning er hafin á Íslandsmótið í veflæga mótakerfinu Sportfeng og er fólk hvatt til að skrá á mótið áður en ferðalög hefjast.

Á Akureyrarvöku í lok ágúst ætla Léttisfélagar að vera sýnilegir og taka þátt í menningarviðburðum á vegum bæjarins.

„Hestamannafélagið Léttir var stofnað 5. nóvember 1928 og munum við því halda veglega uppskeru og afmælishátíð í kringum þá dagssetningu. Þar munum við halda áfram með upprifjunina og sýna gamlar myndir ásamt fleiru skemmtilegu og er undirbúningur fyrir hátíðina hafinn“.

Jóna Berta Jónsdóttir sæmd fálkaorðunni
Við afhendingu hinnar íslensku fálkaorðu í dag

Akureyringurinn Jóna Berta Jónsdóttir, fyrrverandi matráðskona, var meðal þeirra níu sem Forseti Íslands sæmdi heiðursmerki hinnar íslensku fálkorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag. Hlaut Jóna Berta riddarakross fyrir störf sín að mannúðarmálum.

Á hátíðarfundi bæjarstjórnar Akureyrar þann 29. ágúst sl. var Jónu Bertu veitt heiðursviðurkenning í tilefni af 150 ára afmæli bæjarins. Af því tilefni rakti Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri, sögu Jónu Bertu í stuttu máli og hljómaði hún svo: „Jóna Berta Jónsdóttir er fædd við Strandgötuna hér á Akureyri þann 6. október 1931. Hún er dóttir hjónanna Jóns Guðjónssonar bakarameistara sem starfaði í yfir 40 ár hjá Brauðgerð Kristjáns Jónssonar og Ingibjargar Þórhannesdóttur húsmóður. Jóna Berta missti móður sína þegar hún var aðeins 9 ára gömul en eignaðist síðar að stjúpmóður Þorgerði Einarsdóttur húsmóður og verkakonu. Alsystkini Jónu Bertu eru; Kristbjörn en hann fórst með Súlunni EA og Stella sem býr hér á Akureyri. Hálfsystir hennar er Hrafnhildur Jónsdóttir og fóstursystir Gréta Óskarsdóttir. Börn Jónu Bertu eru Þorgerður Jóna, Guðmundur Jóhann og Sigurður Hrafn.

Jóna Berta lauk skyldunámi og fór snemma að vinna fyrir sér. Þegar Jóna Berta var 15 ára smitaðist hún af berklum og dvaldi með hléum á Kristneshæli næstu 11 ár en hún var síðasti sjúklingurinn á Íslandi sem fékk þá læknismeðferð “að vera hogginn” sem var ein þeirra aðferða sem notuð var fyrir komu nýrra lyfja gegn þessum illvíga sjúkdómi.

Eftir að Jóna Berta náði heilsu starfaði hún hjá Sambandsverksmiðjunum í 35 ár, á FSA við ummönnun og sem matráðskona.

Jóna Berta sinnti félagsstörfum fyrir Einingu-Iðju og Samband íslenskra berklasjúklinga, SÍBS. Þekktust er Jóna Berta fyrir störf sín fyrir Mæðrastyrksnefnd Akureyrar í um 30 ár og þar af í yfir 20 ár sem formaður nefndarinnar. Akureyringar og Norðlendingar hafa áður þakkað og heiðrað Jónu Bertu fyrir hennar framlag því hún var kjörin Norðurlendingur ársins árið 2007“.

Aðrir sem hlutu fálkaorðuna í dag voru:

Árni Bergmann rithöfundur, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til  bókmennta og menningar

Gísli B. Björnsson grafískur hönnuður og fyrrverandi skólastjóri, Reykjavík, riddarakross fyrir brautryðjendastarf í íslenskri grafík og framlag til menntunar hönnuða

Hilmar Snorrason skólastjóri Slysavarnaskólans Sæbjargar, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til öryggismála sjómanna

Kristín Steinsdóttir formaður Rithöfundasambands Íslands, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskra bókmennta

Kristján Ottósson blikksmiðameistari og framkvæmdastjóri Lagnafélags Íslands, Reykjavík, riddarakross fyrir forystu í lagnamálum

Óli H. Þórðarson fyrrverandi framkvæmdastjóri Umferðarráðs, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til öryggismála og umferðarmenningar

Sigrún Einarsdóttir glerlistamaður, Kjalarnesi, riddarakross fyrir framlag til eflingar íslenskrar glerlistar

Valgerður Sigurðardóttir yfirlæknir, Reykjavík, riddarakross fyrir forystu á vettvangi líknarmeðferðar