Niðurskurður hafi kostað mannslíf

Niðurskurður hafi kostað mannslíf

Lögreglubíll. Mynd úr safni

Koma hefði mátt í veg fyrir andlát manns á Kópaskeri þegar hann varð úti að loknu þorrablóti. Þetta segir lögreglumaður á Þórshöfn. Hann segir algjört ófremdarástand ríkja í löggæslu- og heilbrigðismálum á norðausturhorni landsins. Mannmargar samkomur fari nú fram í dreifðum byggðum án þess að lögregla hafi tök á að gæta öryggis borgara með viðhlítandi hætti.

Í lok janúar varð fertugur maður úti rétt fyrir utan heimili sitt á Kópaskeri. Jón Stefánsson, lögreglumaður á Þórshöfn, segist ekki í vafa um að bjarga hefði mátt lífi mannsins ef lögregla hefði haft tök á að vera á staðnum þetta kvöld. Lögregla eigi að gæta borgara á mannmörgum samkomum eins og þorrablótum en þetta sama kvöld hafi verið þorrablót á Húsavík sem lögreglumenn þar hafi þurft að sinna og sjálfur hafi hann verið einn á vakt vegna fjölmenns þorrablóts á Þórshöfn. Vegna niðurskurðar og undirmönnunar í löggæslu hafi því enginn lögreglumaður komist á blótið á Kópaskeri.

„Við lögreglumenn höfum rætt það og erum 99% vissir á því að maðurinn hefði aldrei dáið ef löggæsla hefði verið á staðnum. Þarna var slæmt veður og í slíkum tilfellum aðstoðar lögregla fólk að komast heim. Við erum í bílnum, við erum á ferðinni, keyrum um götur og fylgjumst með. Þessi maður hefði aldrei farið fram hjá okkur ef við hefðum verið þarna, við hefðum fundið hann,“ segir Jón.

Hann segir að viðvarandi ástand bjóði frekari slysum heim. Vandinn einskorðist ekki við norðausturhornið þótt þar ríki sérstakt ófremdarástand. Krafan sé aukið fjármagn, fleiri lögreglu- og læknastörf og aukin virðing fyrir íbúum dreifðra byggða. Sjá bls. 2 í blaði vikunnar

Nei hættu nú alveg á Akureyri

Nei hættu nú alveg - Spurningaleikur Villa naglbíts sem skemmt hefur hlustendum Rásar 2 á sunnudagsmorgunum, á meðan lambasteikin kraumar í ofninum og dósir af rauðkáli og grænum baunum ... Lesa »

Hús vikunnar: Lundargata 12; Gamli Iðnskólinn

Í síðustu viku vorum við stödd á Oddeyrartanga við Sláturhús KEA eftir Sveinbjörn Jónsson en nú færum við okkur ofar á Eyrina, nánar tiltekið á Lundargötuna og kíkjum á annað ... Lesa »

Svæði á Hólmsheiði frátekið fyrir flugvöll

Rúv greindi frá því í kvöldfréttum rétt í þessu að samkvæmt úttekt verkfræðistofunnar Mannvits sé Hólmsheiði ásættanlegur staður fyrir flugvöll. Tekið hefur verið frá land á ... Lesa »

Fjarkinn er kominn í lag

Stólalyftan - Fjarkinn - í Hlíðarfjalli er aftur kominn í gang eftir að hún bilaði um helgina. Veðrið er nú bjart og fallegt og lyftur verða opnar til kl. 19. Meðfylgjandi mynd var tekin ... Lesa »

„Milli þess að komast yfir og lifa við liggur hundurinn grafinn“

Steinunn Sigurðardóttir fjallar um skáldsögur sínar Jójó og Fyrir Lísu í ljósi nýrra afhjúpana um barnaníð á Íslandi, í Hofi fimmtudaginn 14. mars kl 17:00. Steinunn fjallaði um ... Lesa »

Allt of mörg ferðaþjónustufyrirtæki vanrækja öryggismálin

„Í ferðaþjónustu á íslandi eru fjölmörg fyrirtæki sem sinna öryggismálum af mikilli ábyrgð en því miður eru allt of margir sem vanrækja þennan þátt algjörlega og úr því þarf ... Lesa »

Skagfirðingar leiðandi

Nýlega undirrituðu Stoð ehf. verkfræðistofa og Ísmar ehf. samstarfssamning um uppsetningu og rekstur GPS leiðréttingastöðvar í Skagafirði. Leiðréttingarstöðin verður á landsvísu, ... Lesa »

Umhverfisstofnun fjölgar á Akureyri

Starfsmönnum hjá Umhverfisstofnun á Akureyri hefur fjölgað síðastliðin misseri. Árið 2008 störfuðu sjö manns hjá Umhverfisstofnun á Borgum, Akureyri en þeir voru 10 árið ... Lesa »

Sigrún Sigurðardóttir

Hvers vegna er Aflið mikilvægt?

Á haustdögum árið 2002 var Aflið stofnað af nokkrum kjörkuðum konum, konum sem sumar eru enn starfandi þar jafnvel með litlum sem engum hléum nú í tæp 11 ár. Starfið tekur sinn toll og ... Lesa »

Undirskriftum safnað fyrir Regnbogann víðar en á Flugkaffi á Akureyrarflugvelli

Þeir sem lagt hafa leið sína um kaffiteríu flugvallarins á Akureyri hafa margir hverjir orðið varir við það að Baldvin Sigurðsson veitingamaður hefur þar safnað undirskriftum fyrir ... Lesa »

Björgunarsveitir af Norðurlandi á leið að sækja slasaðan vélsleðamann

Björgunarsveitir af Norðurlandi eru nú á leið í Unadal fyrir ofan Hofsós þar sem vélsleðamaður slasaðist fyrir tæplega klukkustund. Ók hann fram af hengju og fékk sleðann yfir sig. ... Lesa »

Aftur skelfur í Eyjafjarðarál

Klukkan 01:13 í nótt (10. mars) varð jarðskjálfti 3,8 að stærð, um 14 kílómetrum NV af Gjögurtá í svonefndum Eyjafjarðarál þar sem stór skjálfti (5,6) varð í október s.l. Nokkrir ... Lesa »

Þorgerðartónleikar á mánudag í Hofi

Á morgun, mánudaginn 11. mars kl. 18, verða haldnir tónleikar í Hofi til styrktar minningarsjóði um Þorgerði S. Eiríksdóttur. Þorgerður lauk burtfararprófi frá Tónlistarskólanum á ... Lesa »

Kvartett á norðurhjara

Það er ekki títt, að kostur gefist á því að hlýða á klassískan strengjakvartett skipaðan eingöngu hljóðfæraleikurum, sem starfa á Akureyri og nærsveitis. Sannast sagna man ... Lesa »

Íþróttapistill manneðlisfræðings

Ég hef mikla ánægju af því að hreyfa mig. Í raun var það heilmikil opinberun fyrir mig þegar ég loks áttaði mig á því að hreyfing væri ekki bara keppni, fram að því hafði ég ... Lesa »

Fljótlegar eggjabökur

50gr beikon, fínsaxað 1 lítill laukur, fínsaxaður 1 hvítlaukrif, fínsaxað olía 75 gr spínat, grófsaxað 1/4 paprika, fínsöxuð 4 egg 100gr ostur, rifinn salt og ... Lesa »

Ný sýning opnar á Listasafninu

Í dag, laugardaginn 9. mars kl. 15, verður opnuð í Listasafninu á Akureyri sýning á verkum þeirra Guðrúnar Einarsdóttur og Rögnu Róbertsdóttur en þessar listakonur eiga það ... Lesa »

Hólmsteinn Snædal

Húsmæðraskólinn á Akureyri

Bréf til þeirra sem vilja láta sig málið varða. Málefni húss við Þórunnarstræti sem kallað hefur verið Húsmæðraskólinn, hefur verið í umræðu síðustu vikur. Undirritaður ... Lesa »

Vilborg Þórarinsdóttir og Guðjón H. Hauksson

Uppeldi í tölvuvæddum heimi

Samtaka, svæðisráð foreldra nemenda í grunnskólum Akureyrarbæjar, í samstarfi við Guðjón H. Hauksson, þjónustustjóra tölvudeildar MA og Gunnlaug Guðmundsson, forvarnarfulltrúa hjá ... Lesa »

Hjörleifur Hallgríms

Dagatalsdömurnar í Freyvangi

Freyvangsleikhúsið hefur sannarlega ekki ráðist síðustu árin á garðinn, þar sem hann er lægstur í leikritavali, enda þrisvar sinnum verið verðlaunað með boði um að sýna í ... Lesa »

Það er fátt frábærara en útivist í snjónum en það er nauðsynlegt að setja öryggið á oddinn. Mynd af Facebooksíðu Hlíðarfjalls

Lögreglan varar útivistarfólk við snjóflóðahættu á Tröllaskaga

„Nú er þessari hríð að ljúka og útlit fyrir gott veður um helgina. Óbyggðirnar kalla og líklegt er að vélsleðamenn, skíðafólk og annað útivistarfólk hugsi sér að nýta sér ... Lesa »

Birgitta Jónsdóttir

Píratar kynna starfsemi sína í Keilunni

Birgitta Jónsdóttir, ein af stofnendum stjórnmálaflokksins Pírata mun kynna starfsemi flokksins og málefni í Keilunni Akureyri á morgun, laugardaginn 9. mars kl. 20. „Píratar eru ... Lesa »

Alexander Örn Ómarsson

Lesskilningi unglinga hrakar

Lestur unglinga hefur dregist mikið saman undanfarin ár og lesskilningur hefur þannig versnað til muna. Í dag eiga flest allir tölvur og snjallsíma og skoða meira netið sér til afþreyingar ... Lesa »

Kaffi Björk

Kaffi Björk og leikstjóri Leigumorðingjans tilnefnd til menningarverðlauna

Í dag var tilkynnt um tilnefningar til Menningarverðlauna DV fyrir árið 2012 sem afhent verða 13. mars nk. Meðal þeirra sem tilnefnd eru er arkítektastofan Kollgáta fyrir Kaffihúsið Björk ... Lesa »

Mynd af vef Norðurorku

Íbúum í Svalbarðsstrandarhreppi ráðlagt að sjóða allt neysluvatn

Síðdegis í dag voru borin út bréf frá Norðurorku til íbúa í Svalbarðsstrandahreppi þar sem þeim er ráðlagt að sjóða allt neysluvatn vegna mengunarhættu. Ástæða mengunarinnar ... Lesa »

Skoða meira