Þeir Akureyringar sem vilja hætta að reykja eiga kost á námskeiði hjá Viðari Aðalsteinssyni mannræktarráðgjafa en hann býður einstaklingum upp á Reykstopp með árangri 16.- 20. mars og einnig 6. og 7 apríl n.k.
Viðar notar m.a. sjálfsdáleiðslusefjun, skapandi uppbyggjandi hugsýnir, jákvæðar innsetningar og orkujöfnun ásamt einbeittri meðvitaðri öndun og öðrum nálgunum til að ná árangri í vinnu sinni með fólki í reykstoppi.






























