Stundum fallast manni hendur. Það er svo margt í umhverfinu sem þarfnast skoðunar en á sama tíma er blaðamannastéttin fámenn og lífvænleiki fjölmiðla að nokkru leyti bundinn því að vera hress og fjalla bara um krútt.
Þversögn samfélagsins er að þótt við efumst ekki um mikilvægi þess að taka á spillingu, fordómum, mismunun, fátækt og óréttlæti spyr bæjarsálin gjarnan þegar „neikvæð“ fréttaumfjöllun á sér stað: „Þarf alltaf að velta sér upp úr soranum?“
Akureyri vikublað hefur stundum skapað gárur í hinu friðsæla norðri með fréttum blaðsins. Það hefur leitt til umræðu um lögmæti héraðsmiðla til að fjalla um viðkvæm mál. Í síðustu viku var birt umfjöllun um meint vændi á Akureyri. Í rafrænu ummælakerfi blaðsins fór mesta púðrið í að gera grín að þeim sem neyðast til að selja líkama sinn. Um kaupendurna, um að til væri hópur karlmanna (að langmestu leyti) sem teldi það ekki eftir sér að kaupa vændisþjónustu (sem þó er ekki bara siðlaust heldur refsivert) féllu engin ummæli. Það kann að segja meira um samfélagið en þá sem selja líkama sína vegnar neyðar.
Efnisgreining myndi sýna að langstærstur hluti af innihaldi Akureyrar vikublaðs fjallar um manneskjuna, menninguna, allt það góða og uppbyggilega sem á sér stað í ágætum samfélögum norðlenskum, en það breytir ekki því að Akureyri vikublað leitast við að miðla gagnrýni þegar þess er þörf. Fyrir vikið fáum við áhöfn blaðsins stundum að heyra að „sorinn virðist okkur hugleikinn“.
Því var góð tilbreyting fyrir aðstandendur blaðsins að lesa hrós vikunnar sem hið merkilega menningarframtak Grenndargralið á Akureyri kastaði út fyrir nokkrum dögum, en svo segir á heimasíðu Grenndargralsins: „Gral vikunnar fær Akureyri-vikublað. Blaðið hefur frá því í nóvember 2011 birt reglulega greinar eftir grunnskólanemendur á Akureyri, ýmist í blaðinu sjálfu, netútgáfu eða hvoru tveggja. Greinarnar eru orðnar tæplega tuttugu talsins og hafa vakið nokkra athygli. Ekki hefur tíðkast að rödd unglinga heyrist með þessum hætti í fjölmiðlum. Því gætti ákveðins óöryggis við upphaf vegferðarinnar. Nú, rúmu ári síðar, hafa greinaskrif grunnskólanemenda vonandi fest sig í sessi og eðli málsins samkvæmt á Akureyri-vikublað stóran þátt í því. Krakkarnir hafa öðlast sjálfstraust og sjá að þeir eiga erindi inn á þennan vettvang ekki síður en þeir sem eldri eru. Með framtaki sínu hefur Akureyri-vikublað opnað leið fyrir unga fólkið til að koma skoðunum sínum á framfæri og þannig lagt sitt af mörkum við að efla menningu heimabyggðar.“
Við þökkum hrósið en það eru krakkarnir sjálfir sem eiga mesta hrósið skilið.
Björn Þorláksson
Ritstjóri





























