Götulistahátíðin Hafurtask á Akureyri 20.-25. ágúst
Hugmyndin að Hafurtaski kviknaði á milli tveggja vina í lest á leiðinni frá Helsingjaborgar til Kaupmannahafnar sumarið 2011. Þessir tveir vinir, skólasystkini úr Menntaskólanum á Akureyri, bæði rétt skriðin yfir tvítuginn , voru jafnframt stofnmeðlimir Leikhópsins Þykistu og höfðu þegar hér kemur við sögu erindrekast í tvær vikur í borg Hamlets á alþjóðlegu götulistahátíðinni Passage11.
„Afhverju gerum við þetta ekki heima?“
„Gerum það“
Með vindinn í fangið og heimsyfirráð á to-do listanum gengu vinirnir inn á næsta fund Leikhópsins Þykistu þar sem hugmyndin að Götulistahátíð á Akureyri sumarið 2012 skyldi seld hinum meðlimunum. Neistar kviknuðu, stormar geisuðu í höfðum, pennar hripuðu og fólk sló sér á lær. Ákveðið var að láta slag standa og láta áherslur þessa stærsta verkefnis Leikhópsins hingað til endurspegla tilgang og markmið Þykistu– að skapa vettvang fyrir ungt fólk til að læra, skapa og koma sér og verkum sínum á framfæri. Verkefnið fékk nafnið „Götulistahátíðin Hafurtask“ og áhersla lögð á sviðslistir utan sviðs – allt hafurtask ungra Akureyringa skal borið út á götur og sýnt hverjum sjáandi. Gréta Kristín Ómarsdóttir og Svava Björk Ólafsdóttir tóku að sér framkvæmdastjórn Hafurtasks og hafa leitt vagninn síðan.
Gengið var á náðir Menningarráðs Eyþings og Evrópu Unga fólksins til að fjármagna verkefnið – og Þykista fékk skjól yfir höfuðstorma sína og athvarf til athafna í Ungmennahúsinu í Rósenborg, Menningarhúsinu Hofi og Tónlistarskólanum á Akureyri.
Ráðnir voru fimm faglærðir snillingar til að annast listasmiðjur sem verða dagana 20.-25. ágúst – þar sem öllum á aldrinum 15 til 30 ára er boðið að skrá sig til leiks og taka þátt í því að búa til sýningar fyrir Götulistahátíðina Hafurtask.
Þessir snillingar eru Arna Valsdóttir með RÖDD Í RÝMI – safaríka, leikræna raddgjörningasmiðju.
Anna Richardsdóttir með DANS INN ÚT – einlæga og orkumikla dansspunasmiðju.
Guðrún Daníelsdóttir (Garún) með RÁÐGÁTULEIKHÚS – krefjandi og krassandi leiklistarsmiðju
Heimir Ingimarsson með HLJÓÐAKÓRINN – nýstárlega og lærdómsríka kórasmiðju
Ragnar J. Ragnarsson (Humi) með TÓNSJEIK – sjúklega grúvaða og skemmtilega tónlistarspunasmiðju.
Upplýsingar og skráning í smiðjurnar er enn í gangi á hafurtask.is
Að mati Þykistu hefur ungmenni Akureyrar lengi vantað opinn vettvang eins og Götulistahátíðina Hafurtask – þar sem ekki einungis er boðið upp á tækifæri til að drekka í sig þekkingu, efla færni sína og víkka sjóndeildarhringinn undir handleiðslu fagfólks – heldur gefst ungu fólki einnig færi á að sýna sig og sanna á eigin forsendum. Öllum ungmennum stendur til boða að koma fram á Hafurtaski, sér að kostnaðarlausu – hvort sem þau tilheyra formlegum hóp, óformlegum eða engum hóp. Þykista aðstoðar alla hópa við kynningar og undirbúning sinna atriða.
Þegar hafa skráð atriði Nemendafélag TónAK, Hjólabrettafélag Akureyrar, Fjöllistahópurinn Fönix, Lopabandið, Eikverjar og margir, margir fleiri – Bæði einstaklingar og hópar. Þetta er einstakt tækifæri fyrir upprennandi listafólk Norðurlands og ómetanleg reynsla sem hlýst af þátttöku.
Götulistahátíðin Hafurtask 25. ágúst verður allsherjar uppskeruhátíð hæfileika, sköpunar og metnaðar ungs fólks á Akureyri og öllum er boðið að mæta til veislunnar.
Gréta Kristín Ómarsdóttir, einn aðstandenda Hafurtasks.





























