Frá árinu 1994 hefur íbúum á Raufarhöfn fækkað um rúman helming og er það ein mesta hlutfallslega íbúafækkun sem orðið hefur á landinu á þessu tímabili. Mest hefur fækkað í yngri aldurshópunum. Frá þessu var sagt á vef Rúv í dag.
Á tímabilinu hefur Raufarhafnarbúum fækkað úr á fjórða hundrað íbúa í 185. Fækkunin skýrist að miklu leyti af fækkun starfa í sjávarútvegi ásamt lélegum vegsamgöngum, sem hafa þó batnað mikið með lagningu vegar um Hófaskarð.
Í samtali við Rúv segir Bergur Elías Ágústsson, sveitarstjóri í Norðurþingi enga einfalda lausn við fækkuninnien sóknarfæri séu í ferðamennsku því Melrakkasléttan og svæðið í kringum Raufarhöfn sé einstakt og þar er til að mynda fjölskrúðugt fuglalíf.




























