Í kvöld er einn lögreglumaður á vakt á Norðaustur-landi á svæði sem spannar frá Víkurskarði og austur á Bakkafjörð. „Ég er eini lögreglumaðurinn á vakt í Þingeyjarsýslu. Og það eru ekki til peningar til að leysa menn af. Ef að ég myndi veikjast þá yrði bara lokað. Þá yrðu menn bara ræstir út ef upp kæmu neyðartilvik,“ segir lögreglumaður á vakt á Húsavík í samtali við visir.is
Vegna niðurskurðar vantar í tvær stöður hjá lögreglunni á norðausturlandi, annars vegar á Þórshöfn og hins vegar á Húsavík. Í ofanálag við það hefur einni lögreglustöð verið lokað á Raufarhöfn. Þar að auki hefur vantað mann í eina stöðu vegna veikinda síðastliðinn mánuð. Ekki er til fjármagn til að ráða afleysingamenn og því er einn maður á vakt á kvöldum sem venjulega hefðu verið þrír, einn á Þórshöfn og tveir í Húsavík. Um þessar mundir eru þúsundir ferðamanna á svæðinu, ef ekki tugþúsundir.
„Það eru 160 km austur á Bakkafjörð sem þýðir að við værum komnir þangað í neyðarakstri eftir klukkutíma og tuttugu mínútur,“ segir hann og bætir við að mögulega yrði þá maður kallaður út frá Vopnafirði, en hann yrði engu að síður 40 mínútur á leiðinni.
Frá þessu greinir Vísir.is



























