Langanesbyggð reynir nú í annað sinn að fá risahöfn og alþjóðaflugvöll inn á aðalskipulag en Skipulagsstofnun lagðist gegn því í fyrra og taldi áformin þá ekki raunhæf.
Ráðamenn Langanesbyggðar ætla samfélaginu þar engin smáræðis umsvif í framtíðinni. Í Gunnólfsvík eru þeir búnir að láta teikna langstærstu höfn á Íslandi, með allt að tíu kílómetra viðleguköntum. Við Þórshöfn gera þeir ráð fyrir að flugvöllurinn verði stækkaður svo mikið að hann verði sá næststærsti á landinu, á eftir Keflavíkurflugvelli.
Sjá alla fréttina á vef Vísis




























