Föstudagsfreistingar Tónlistarfélags Akureyrar verða í Ketilhúsinu 8. mars 2013 kl. 12:00. Þar flytur Tígulkvartettinn Strengjakvartett op. 18 nr. 1 í F dúr eftir Ludwig van Beethoven. Kvartettinn í F-dúr er fyrsti í röð sex kvartetta op. 18.
Annar þáttur kvartettsins er saminn undir áhrifum frá grafarsenunni í harmleik Shakespeares um Rómeó og Júlíu þar sem Rómeó ákveður að taka líf sitt til þess að geta dáið í örmum sinnar heittelskuðu Júlíu.
Gestum býðst súpa, brauð og kaffi á meðan tónleikum stendur.
Tígulkvartettinn skipa: Zsuzsanna Bitay fiðla, Tomasz Kolosowski fiðla, Pawel Kolosowski viola og Ásdís Arnardóttir selló
Aðgangseyrir kr. 2000. Eldri borgarar greiða kr. 1500. Tökum ekki við greiðslukortum.





























