Föstudaginn 1. mars átti hörmulegt bílslys sér stað í Skagafirði þar sem að ungur drengur, Blængur Mikael Bogason, sem búsettur var að Strandgötu 25 á Akureyri, lét lífið.
Tían, bifhjólaklúbbur Norðuramts, hefur ákveðið að setja af stað söfnun fyrir Emmu, móður Blængs, til að reyna að létta undir með henni fjárhagslega á þessum erfiðu tímum.
Allir sem geta og vilja leggja sitt að mörkum til stuðnings Emmu geta lagt inn á reikning númerið 0565-14-403145, kennitala 591006-1850.





























