„Afskaplega væri nú gott að geta hlegið að öllum mistökum lífsins. Sumum má strax hlæja að. Öðrum eftir á. Enn önnur verða bara ekki fyndin. Þau eru og verða neyðarleg. Þannig mistök gerðum við hjá Símanum þegar við ávörpuðum ykkur íbúa Sauðárkróks rangt í dreifibréfi sem barst inn á heimilin á dögunum. Það eina sem við getum gert er viðurkenna mistökin og að segja: Við biðjumst afsökunar.“ Svona hljómar póstur sem barst fréttavefnum feyki.is á Sauðárkróki í morgun.
Sagt var frá því í gær að Sauðkrækingar hefðu verið mjög ósáttir við að vera ávarpaðir Sauðkræklingar í dreifibréfi sem Síminn sendi á heimili þar í bæ til að kynna ljósnetþjónustu sína.
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir, upplýsingafulltrúi Símans vildi auðmjúk biðja Króksara nær og fjær afsökunar á þessum leiðu mistökum og fékk hún hjálp sr. Hjálmars Jónssonar fyrrum prest á Króknum til að færa afsökunarorðin í bundið mál.
Afturkalla ávarpið,
af iðrun rétt að springa.
Afsökunar ykkur bið
alla Sauðkrækinga.




























