Sjálfsagt eru fáir sem tengja iðnaðarhverfi við sögufrægar eða merkar og glæsilegar byggingar. En það vill nú svo til að í rótgrónum iðnaðarhverfunum leynast oftar en ekki miklar perlur byggingar- og iðnaðarsögunnar sem eiga fullt erindi til varðveislu og skoðunnar þó fegurðar- og skrautgildið sé e.t.v. ekki endilega í fyrirrúmi.
Neðan Hjalteyrargötu, austast á Oddeyrinni er gamalgróið iðnaðarsvæði. Þar hafa síðustu áratugina verið athafnasvæði ÚA, Strýtu, fóðurvörudeildar KEA (nú Bústólpa) svo fáein stór nöfn iðnaðarsögu Akureyrar séu nefnd að ógleymdri Kjötiðnaðarstöð KEA sem síðar varð Norðlenska. En þar berum við niður í þessari færslu.
En húsið á myndinni, Gamla Sláturhúsið, er ein elsta byggingin á svæði Norðlenska á Oddeyrartanga. Sláturhúsið var reist árið 1928 og er eitt af stórvirkjum byggingarmeistarans Sveinbjarnar Jónssonar, en hann teiknaði húsið og hafði umsjón með byggingu þess. Húsið er steinsteypt og fylgir sögunni að sandurinn í húsið var fenginn af hafsbotni. Var danskt dæluskip, Uffe, notað til verksins.
Húsið er 25 metrar á breidd og hæð upp á gafl um 10 m skv. teikningum, en þær er að finna á bls. 87 í bókinni Byggingarmeistari í stein og stál. Eins og oft tíðkaðist á iðnaðarhúsum á fyrstu tugum 20. aldarinnar voru gluggar með margskiptum rúðum og bogadregnir og á teikningum er stór bogadregin skrautrúða fremst á húsinu fyrir miðju, og sjá má móta fyrir henni á myndinni.
Húsið var eitt stærsta og fullkomnasta sláturhús landsins á þeim tíma, búið nýjustu og fullkomnustu tækni og var um áratugaskeið eitt það fullkomnasta. Enn er húsið í fullri notkun hjá Norðlenska þó ekki sé slátrað þar lengur. Líklega er þetta einhverskonar vinnslusalur í dag en húsið er ekki mikið breytt að utan frá fyrstu gerð, þó það sé nú orðið hluti af stærri húsasamstæðu. Húsið virðist í góðri hirðu. Ekki veit ég hvort húsið njóti friðunar en ég hefði sagt að auðvitað ætti svo að vera. Ég tók meðfylgjandi mynd á léttri sunnudagsgöngu um Eyrina þann 18.11. 2012.
Arnór Bliki Hallmundsson
Heimildir: Friðrik Olgeirsson, Halldór Reynisson, Magnús Guðmundsson. 1996. Byggingameistari í stein og stál. Reykjavík: Fjölvi.





























