Í mörg horn að líta við undirbúning Afmælisvöku

Í mörg horn að líta við undirbúning Afmælisvöku

Sigríður Stefánsdóttir kynnir dagskrána fram undan, með eitt helsta stolt og kennileiti Akureyrar í bakið – fjallið Súlur.

Undirbúningur fyrir Afmælisvöku Akureyrar stendur nú sem hæst en hann hófst fyrir rúmu hálfu öðru ári þegar bæjarráð skipaði sérstakra afmælisnefnd til að skipuleggja hátíðarhöld allt árið 2012 í tilefni 150 ára afmælis kaupstaðarins. Þá um leið var Sigríður Stefánsdóttir skipuð framkvæmdastjóri afmælisársins og hefur mikið á henni mætt undanfarið. Hvert var leiðarljós og helstu markmið afmælisnefndarinnar og þeirra sem helst koma að skipulagningu hátíðarhaldanna?

Afmæli allra bæjarbúa
„Helstu markmið okkar hafa verið að fá sem flesta til samstarfs og búa svo um hnútana að þetta væri afmæli allra bæjarbúa, fá sem flesta til að leggja sitt af mörkum, njóta dagskrárinnar og eiga hlut í hátíðarhöldunum. Ég held sannast sagna að það hafi tekist mjög vel. Það hefur verið mjög góð þátttaka í þeim viðburðum sem að baki eru og augljóst að bæjarbúar eru svo sannarlega í afmælisskapi.,“ segir Sigríður.

„Einnig má nefna annað leiðarljós okkar sem er að efla samhug, rifja upp söguna, hvetja til nýsköpunar á sem flestum sviðum og horfa til framtíðar um leið og við metum hvert við stefnum.“

Afmælisnefndin
Í afmælisnefnd bæjarins eiga sæti Tryggvi Þór Gunnarsson, formaður, Helena Þ. Karlsdóttir og Úlfhildur Rögnvaldsdóttir. Auk Sigríðar eru starfsmenn nefndarinnar Hulda Sif Hermannsdóttir og Pétur Bolli Jóhannesson. Guðrún Þórsdóttir hefur einnig lagt gjörva hönd á plóg við undirbúning hápunkts afmælisársins, sjálfrar Afmælisvökunnar sem stendur frá 24. ágúst til 2. september.

„Við Hulda Sif og Guðrún höfum borið hitann og þungann af vinnu við dagskrá hátíðarhaldanna og ýmsan annan undirbúning, ásamt Ragnari Hólm Ragnarssyni sem hefur séð um kynningarmálin. En að sjálfsögðu hafa miklu fleiri komið þar að sem of langt mál yrði upp að telja. Allt þetta fólk á skilið miklar þakkir.

Fánar og hvítar perur
Ég vil koma því á framfæri við bæjarbúa að gleðjast allir saman með gestum bæjarins sem búast má við að skipti þúsundum. Einnig eru bæði íbúar og fyrirtæki hvött til að hreinsa vel til og fegra bæinn fyrir hátíðarhöldin. Mælst er til þess að garðar og hús verði skreytt með hvítum útiperum og að íslenska fánanum verði flaggað á afmælisdaginn og um seinni helgi hátíðarhaldanna.

Akureyri hefur oft verið kölluð fegursti og snyrtilegasti bær landsins og við viljum að sjálfsögðu njóta þess sæmdarheitis sem lengst og standa undir því á þessum merkilegu tímamótum þegar stórafmæli bæjarins er fagnað,“ sagði Sigríður Stefánsdóttir framkvæmdastjóri afmælisársins.

 

Kátir A úrslita hestar og knapar í töltkeppninni í Afmælis-mótaröðinni. Mynd: Ólafur Ólafsson

85 ára afmælisár Léttis

Nú á 85 ára afmælisári Léttis verður mikið um að vera og þessa dagana er í gangi mótaröð sem nefnist afmælismót Léttis. Keppt var í tölti 13. júní sl og þann 25. júní verður ... Lesa »

Við afhendingu hinnar íslensku fálkaorðu í dag

Jóna Berta Jónsdóttir sæmd fálkaorðunni

Akureyringurinn Jóna Berta Jónsdóttir, fyrrverandi matráðskona, var meðal þeirra níu sem Forseti Íslands sæmdi heiðursmerki hinnar íslensku fálkorðu við hátíðlega athöfn á ... Lesa »

Hildur Eir Bolladóttir

Candy floss og helíumblöðrur eru samstöðutákn

Gleðilegan þjóðhátíðardag kæru vinir. Í fljótu bragði  man ég ekki til þess að hafa fundist sautjándi júní neitt sérstaklega skemmtilegur dagur, þegar ég lít til baka finnst ... Lesa »

Akureyri gömul mynd

Kvennasöguganga um Oddeyrina

Í tilefni kvenréttindadagsins, miðvikudaginn 19. júní, verður boðið upp á fyrstu kvennasögugönguna um Oddeyrina. Saga kvenna á eyrinni er mörgum hulin og því gefst hér kjörið ... Lesa »

Við Víti.

Landeigendur loka gönguleiðum í kringum Víti og Leirhnjúk

Stjórn Landeigenda Reykjahlíðar ehf. í Mývatnssveit hefur ákveðið að loka alveg svæðinu við Leirhnjúk, norðvestur af Kröflu, fyrir ferðamönnum frá og með morgundeginum, 17. júní, ... Lesa »

Hilmir Gauti Garðarsson

Foreldrar verða að setja reglur

Ég hef eytt mörgum tímum fyrir framan tölvuskjáinn, bæði á internetinu og í tölvuleikjum og eyðilagt smá fyrir sjálfum mér. Tölvur geta komið sér vel en svo getur þú gleymt þér ... Lesa »

Heyrst hefur …

Heyrst hefur að blíðviðrið á Akureyri síðustu daga hafi haft þau áhrif að von sé á metfjölda til bæjarins um sautjánda júní helgina sem nú fer í hönd. Margir munu leggja leið ... Lesa »

Kristján Helgason

Málverk – Nýsköpun

Síðasti sýningardagur málverkasýningar Hjördísar Frímann í Ketilhúsinu er sunnudagurinn 16. júní. Drífið ykkur. Hjördís er í flokki bestu málara landsins og sýningin er fjölbreytt, ... Lesa »

Uglan café

Grænlensk list og fjölbreytt bakkelsi á Uglunni

Nú um helgina er fyrsti opnunardagur kaffihússins Uglunnar sem staðsett er í Gamla barnaskólanum að Skógum í Fnjóskadal en það er Agnes Þórunn Guðbergsdóttir sem rekur kaffihúsið í ... Lesa »

Þorgeirskirkja

Þorgeirskirkja opnuð

Þorgeirskirkja er svokölluð Vegkirkja á sumrin en hún verður frá og með í gær opin alla daga frá 15. júní-15. ágúst kl. 10-16. Lokað verður þó mánudaginn 17. ... Lesa »

Frá heimsókn Félagsvísindadeildar HÍ

Harðgert háskólalíf

Dagana 15. til 29. júní tekur Háskólinn á Akureyri á móti góðum gestum, bæði nemendum og kennurum úr Háskólunum í Reading á Englandi, Pamplona á Spáni og Medellín í Kólumbíu. ... Lesa »

Útskriftarnemar á hug- og félagsvísindasviði

Konur 80% útskriftarnema við HA

Í dag voru 289 kandídatar brautskráðir á Háskólahátíð Háskólans á Akureyri. Háskólaárið 2012-2013 stunduðu um 1600 nemendur nám á þremur fræðasviðum við Háskólann á ... Lesa »

Þjóðhátíðarsýróp

Þjóðhátíðarsíróp

Þetta sýróp er dásamlegt út í ískalt vatn með fullt af klaka og myntu, eða sítrónusneið. Þú getur líka notað það minna þynnt út og búið til frostpinna eða sorbet. Það kemur ... Lesa »

Frá skíðagöngu. Mynd úr safni. Mynd: Hilmar Friðjónsson

17. júní skíðaganga

Eftir langan, skemmtilegan og snjóríkan skíðavetur í Hlíðarfjalli ætlar Skíðafélag Akureyrar að halda "skíðagöngumót" á 17. júní. Þetta er engin keppni, heldur ætlar fólk að ... Lesa »

Íslenski-fáninn

17. júní dagskráin á Akureyri

  17. júní hátíðarhöldin á Akureyri verða fjölbreytt að venju. Frá klukkan 12.45 – 13.30 verður hátíðardagskrá í Lystigarðinum, þar sem Blásarasveit Tónlistarskólans á ... Lesa »

Hraun í Öxnadal. Mynd: Ingibjörg Óskarsdóttir

Fífilbrekkuhátíð að Hrauni í Öxnadal

Sunnudaginn 16. júní verður árleg Fífilbrekkuhátíð haldin að Hrauni í Öxnadal. Hátíðin hefst með göngu frá Hrauni að Hraunsvatni og til baka. Lagt af stað kl. 9:00 frá ... Lesa »

download

Skíðaganga á 17. júní

Eftir langan, skemmtilegan og snjóríkan skíðavetur í Hlíðarfjalli ætlar Skíðafélag Akureyrar að halda "skíðagöngumót" á 17. júní. „Þetta er engin keppni, heldur ætlar fólk að ... Lesa »

_D5A8673

Fimm ára gömul í fréttasettinu

Dagmar Ýr Stefánsdóttir hefur haft í nógu að snúast undanfarið. Hún starfar að markaðs- og kynningarmálum hjá Háskólanum á Akureyri auk fleiri starfa innan stofnunarinnar og nú er ... Lesa »

1006120_10200894925748729_1523400360_n

Allt með kyrrum kjörum á Bíladögum

Engin útköll hafa verið hjá lögreglu í kvöld vegna bíladaga og aðeins einn tekinn fyrir of hraðan akstur nú í kvöld. Það er mat þeirra sem fylgst hafa með bíladögum í kvöld að ... Lesa »

Sjúkrahúsið á Akureyri

Ný röntgentæki á FSA

Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra heimsótti Sjúkrahúsið á Akureyri við Eyrarlandsveg í gær þar sem hann ræddi við starfsfólk og kynnti sér starfsemina. Hann kynnti sér ... Lesa »

Frá Akstursíþróttasvæði B.A. Mynd af vef félagsins

Mikill hraðakstur umhverfis Akureyri

Umferð hefur verið að þyngjast í kringum Akureyri í dag og á eftir að þyngjast enn að sögn lögreglunnar á Akureyri sem er með mikið umferðareftirlit í kringum bæinn og hafa nú ... Lesa »

Héraðsdómur Norðurlands Eystra

Falsaði undirskrift mömmu og ömmu

Ungur maður hefur í Héraðsdómi Norðurlands eystra verið sakfelldur fyrir skjalafals með því að hafa falsað nöfn mömmu sinnar og ömmu sem sjálfskuldaábyrgðaraðila þegar gefið var ... Lesa »

Reykjahlíðarþorp. Mynd: Petr Brož

Vill að Íbúðalánasjóður geri könnun

Ekki er rétt sem fram kom í Akureyri vikublaði í síðustu viku í frétt um Íbúðalánasjóð að hótelstjórinn í Reynihlíð hafi ætlað að kaupa hús í Reykjahlíðarþorpi til að ... Lesa »

IMG_3316

Skáld í Kakalaskála í Skagafirði

Nú er sumardagskráin á Sturlungaslóð í Skagafirði að rúlla af stað.  Margt er í boði og nú í júní er leikþátturinn Skáld og gönguferð þar sem horft verður yfir ríki ... Lesa »

Lof og last

Lof og last vikunnar

Last fær Akureyrarbær/Sjónlistamiðstöðin svonefnda, skrifar listelskur bæjarbúi sem sendi blaðinu bréf. Í bréfinu segir að fáir viti í reynd fyrir hvað Sjónlistamiðstöðin standi, ... Lesa »

Skoða meira