Amæliskortapóstkassi hefur verið settur upp í anddyri Amtsbókasafnsins en í hann verður safnað afmæliskveðjum sem berast Akureyri vegna 150 ára afmælisins.
Bókasafnið bendir öllum vinum Akureyrar, bæði nær og fjær, á að senda má Akureyri afmælikveðju í tilefni tímamótanna. „Við fögnum hverri kveðju en mest gaman er að fá heimagerð kort með persónulegri kveðju!“ segir starfsfólk bókasafnsins.
Senda má kort í pósti stílað á Amtsbókasafnið á Akureyri – Brekkugötu 17 – 600 Akureyri – en einnig má koma með kortið og stinga því beint í póstkassann.
Kortin verða öll sett upp á sýningu í lok árs.




























