Nýr söngleikur sem ber nafnið Berness & franskar á milli verður frumsýndur í byrjun október en í dag fara fram áheyrnarprufur í Sjallanum fyrir söngvara, dansara og hljóðfæraleikara.
Ívar Helgason er leikstjóri söngleiksins en höfundar hans eru Pétur Guðjónsson og Jóhanna Guðný Birnudóttir. „Þetta var búið að vera í býgerð í sjö ár en Pétur og Jokka ákváðu að láta verða af þessu núna í tilefni af 150 ára afmæli Akureyrar,“ segir Ívar þegar blaðamaður nær sambandi við hann stuttu áður en fyrsti hluti áheyrnarprufanna hefst.
Pétur Guðjónsson er vel þekktur sem einn af N3 plötusnúðunum en hann starfar skemmtanastjóri í Sjallanum og viðburðarstjóri og skipulagði nýliðna Eina með öllu hátíð um verslunarmannahelgina. Pétur hefur einnig starfað með Freyvangsleikhúsinu.
Jóhanna Guðný Birnudóttir, betur þekkt sem Jokka, er fjöllistakona sem hefur lagt stund á söng og leiklist ásamt eldgleypingum og fleiru ævintýralegu. Hún hefur m.a. stýrt hópum í Skapandi sumarstörfum fyrir Akureyrarbæ.
„Sagan gerist á Bíladögum á Akureyri en flakkað er á milli tveggja tímasetninga, milli 1963, árið þegar Sjallinn opnaði og til dagsins í dag. Í sögunni eru nokkrir okkrir skemmtilegir karakterar sem þurfa að takast á við hitt og þetta og einn þeirra ákveður að heimsækja afa sinn sem hefur frá ýmsu að segja. Lögin í sýningunni eru ýmis lög sem tengjast Akureyri á einhvern hátt, þau eru misþekkt og Akureyringar tengja örugglega betur við sum þeirra heldur en ég,“ segir Ívar sem er nýfluttur til Akureyrar með konu sinni og þremur börnum.
Ívar lærði klassískan söng við tónlistarskólann í Hafnarfirði og Söngskólann í Reykjavík og flutti svo til Austurríkis þar sem hann nam við söngleikjadeild tónlistarskólans í Vínarborg. „Ég starfaði við söngleiki í Austurríki, Sviss, Ítalíu og Þýskalandi til 2007 en það var erfitt fyrir fjölskyldulífið, við eigum þrjú börn, svo við ákváðum að flytja aftur heim.“ Eftir heimkomuna starfaði Ívar við Þjóðleikhúsið þar sem hann tók þátt í uppfærslum söngleikjanna Skilaboðaskjóðunni, Ástin er diskó, lífið er pönk og Óliver, ásamt því að hann kenndi við Söngskólann í Reykjavík. „Ég kom hingað norður og tók þátt í uppsetningunni á Hárinu og bara heillaðist af Akureyri og langaði að flytja hingað. Ég fékk svo tilboð um að kenna við tónlistarskólann hér svo við bara létum þetta gerast og erum núna að koma okkur fyrir í krúsilegu 80 ára gömlu húsi á Eyrinni.
„Verkið er eins akureyrskt og hægt er og margt sem rifjast upp fyrir fólki á þessu tímaflakki. Ég komst mjög fljótt að því að Berness og franskar á milli eru mikilvægir hlutir hér á Akureyri,“ segir Ívar og hlær.
Eins og áður sagði verða áheyrnarprufur haldnar í dag í Sjallanum. Hljóðfæraleikarar mæta milli kl. 16-18 en söngvarar og dansarar milli kl. 20-22





























