Fjölbreytt dagskrá Afmælisvöku kynnt

Fjölbreytt dagskrá Afmælisvöku kynnt

Fyrir stuttu var dagskrá Afmælisvöku Akureyrar formlega kynnt um borð í eikarbátnum Húna II á Polllinum við Akureyri. Afmælisvakan stendur í 10 daga frá 24. ágúst til 2. september en sjálft 150 ára afmæli bæjarins er miðvikudaginn 29. ágúst. Ungir sem aldnir leggja hönd á plóg við að gera hátíðarhöldin sem eftirminnilegust.

Helgina 24.-26. ágúst verður megináhersla lögð á ungu kynslóðina með ýmsum uppákomum, svo sem Götulistahátíðinni Hafurtask og Ung-Fest, útitónleikum unga fólksins, og tónleikum Bravó Bítlanna og Brákar.

Á sjálfan afmælisdaginn 29. ágúst safnast skólabörn saman í miðbænum og gefa bænum einstaka afmælisgjöf. Bæjarstjórn Akureyrar heldur hátíðarfund í Hofi og Afmæliskór Akureyrar flytur Tónagjöf til bæjarbúa, ný verk nokkurra tónskálda sem tengjast bænum.

Mikið verður um að vera seinni helgina, 30. ágúst til 2. september, og má þar nefna frumsýningu á Borgarinnunni, sögu Vilhelmínu Lever, raftónleika í Listagilinu, Rökkurró í Lystigarðinum, hátíðarsamkomu á Akureyrarvelli, kjötkveðjuhátíðina Lyst með List í Listagili og sérstaka Afmælistónleika í Gilinu þar sem fram koma Akureyrarhljómsveitir liðinna ára s.s. Baraflokkurinn, Skriðjöklar og 200.000 naglbítar. Loks verður flugeldasýning á Pollinum.

 

Nokkur helstu dagskráratriði birt með fyrirvara um viðbætur og breytingar.

Fyrri helgin 24.–26. ágúst:

Föstudagur:          
Íslandsklukkan við Háskólann á Akureyri – klukknahljómur.
Laugardagur:     
Götulistahátíðin Hafurtask og Ung-Fest, útitónleikar unga fólksins. Bravó Bítlarnir og Brák, ungmennasveitir fyrr og nú.
Varðskipið Þór leggst að bryggju og verður til sýnis.
Sunnudagur:     
Gestir út um allt í beinni útsendingu úr Hofi.
Tónleikar í Hofi: Lögin hans Óda (Óðins Valdimarssonar).
Rokkmessa í Akureyrarkirkju.

Afmælisdagurinn, miðvikudagurinn 29. ágúst:
Fyrir hádegi safnast öll skólabörn í bænum saman og afhenda bænum einstaka afmælisgjöf á Ráðhústorgi.
Eftir hádegi verður hátíðarfundur bæjarstjórnar haldinn í Hofi.
Opnun sýningarinnar “Arsborealis” – Menning, list og saga á norðurhveli jarðar.
Nýtt öldrunarheimili við Vestursíðu. Lyklar afhentir og nafnagjöf.
Opið hús á Öldrunarheimilinu Hlíð í tilefni 50 ára afmælis.
Um kvöldið verður tónagjöf í Hofi. Afmæliskór Akureyrar flytur ný verk nokkurra tónskálda sem öll tengjast bænum.

Fimmtudagur 30. ágúst:
Frumsýning á nýju leikriti eftir Sögu Jónsdóttur í Samkomuhúsinu.

 

Seinni helgin 31. ágúst–2. september:

Föstudagskvöld: 
Rökkurró í Lystigarðinum.
Exodus: Raftónlist í Gilinu.
Ég sé Akureyri: Kynning á geisladiski með Akureyrarlögum í Hofi.
Draugaslóð í Innbænum.
Miðnætursigling með Húna II og söngskemmtun um borð.

Laugardagur:   
Um morguninn verða afmæliskort föndruð á Amtsbókasafninu og farin sönguganga um Lystigarðinn.
Eftir hádegi verður safnast saman í skrúðgöngur á tveimur stöðum í bænum og hist á Akureyrarvelli þar sem hátíðarsamkoma hefst kl. 14. Aðalræðumaður verður Páll Skúlason, fyrrverandi háskólarektor. Fjölbreytt dagskrá og tónlist.
Kl. 15–18: Líf og fjör í miðbænum, Listagili og Hofi. M.a. Barnagaman á Ráðhústorgi, kjötkveðjuhátíðin Lyst með List í Listagili, dans frá ýmsum heimshornum á götum úti, upplestur undir yfirskriftinni “Fyrsta hjálp í Akureyrarbókmenntum” svo fátt eitt sé nefnt.
Kl. 16–17: Hátíðarsöngvar til þín. Tónleikar þriggja tenóra í Hofi.
Um kvöldið verða Afmælistónleikar í Gilinu þar sem fram koma ýmsar Akureyrarhljómsveitir, þ.á m. Baraflokkurinn, Skriðjöklar og 200.000 naglbítar. Hvanndalsbræður kynna og tónleikarnir verða sendir út beint á Rás 2.
Hymnodia flytur óperuna Dido og Aeneas í Hofi.
Flugeldasýning verður á Pollinum.
Söngleikja– og leikhústónlist í Hofi.

Sunnudagur:
Barnadagskrá í Hofi um morguninn.
Messa í Lystigarðinum.
Lyst með list heldur áfram í Listagilinu með alþjóðaeldhúsi í Listasafninu.
Ljóð og tónar á Sigurhæðum.
Öll söfn opin

Sandra Marín Kristínardóttir

Að vera aðstandandi kynferðisafbrotamanns

Ég skrifa þessa grein í ljósi mikillar umræðu sem hefur orðið á síðastliðnum mánuðum um kynferðisafbrot í samfélaginu. Umræðan um kynferðisafbrot er þarft málefni og henni er ... Lesa »

Ragnar Hólm Ragnarsson

Fjölskyldufjandsamleg flugfargjöld

Nú er svo komið vegna fargjaldahækkana í innanlandsflugi að ekki er lengur á færi venjulegra daglaunamanna að fljúga innanlands. Þetta segir Ragnar Hólm, upplýsingafulltrúi ... Lesa »

Í málverkum sínum kannar listakonan tengsl myrkurs og abstraktsjónar við upplifun okkar á stöðum.

Katherine Pickering sýnir í Populus tremula á Akureyri

  Laugardaginn 25. maí kl. 14.00 opnar Katherine Pickering myndlistarsýninguna Parts of a Waterfall as Seen at Night í Populus tremula á Akureyri. Katherine er fædd í ... Lesa »

Blöndulína

Stórsigur fyrir umhverfisvernd í landinu

Hjónin Ólafur Valsson og Sif Konráðsdóttir íbúar á Hólum í Öxnadal fagna því nú að í gær úrskurðaði umhverfis- og auðlindaráðherra um að kerfisáætlun Landsnets skuli sæta ... Lesa »

gestir

Síðasti þáttur vetrarins af Gestum út um allt

Eins og margir vita er útvarpsþátturinn Gestir út um allt á Rás 2 sendur út í beinni útsendingu frá menningarhúsinu Hofi einu sinni í mánuði. Í þættinum taka þau Margrét Blöndal og ... Lesa »

264593_10151651763836093_1387169229_n

Vetrarríki á Siglufirði

Það var fátt sem minnti Siglfirðinga á vorið þegar þeir fóru á fætur í morgun. Eins og sjá má af þessum myndum sem Guðmundur Ingólfsson tók á Siglufirði í morgun. ... Lesa »

Dagbjört Katrín Jónsdóttir

Hvað er svona hræðilegt við femínista?

Nú ætla ég að fara að röfla. Það er svo gaman. Því að ég er femínisti. Ég hirði ekkert um útlitið heldur nöldra endalaust vegna þess að ég er bitur. Ég vil skemma alla stemmingu ... Lesa »

Snjór og krapi í Dimmuborgum í maí 2013. Mynd af vef Umhverfisstofnunar. Myndataka: Bergþóra Kristjánsdóttir

Búið að opna stórahring í Dimmuborgum

Nú er búið að opna Stórahring í Dimmuborgum. Stórihringur er hringleið sem tekur 20-30 mínútur að ganga og liggur meðal annars að Gatkletti. Á vef Umhverfisstofnunar kemur fram að ... Lesa »

Nokkrir handhafar viðurkenninganna. Mynd af vef Akureyrarbæjar

Viðurkenningar fyrir æskulýðs- og tómstundastarf veittar í fyrsta skiptið

Í síðustu viku afhenti samfélags- og mannréttindaráð Akureyrarbæjar viðurkenningar fyrir starf á sviði æskulýðsstarfs og tómstunda. Veittar voru fimm viðurkenningar, þrjár til ... Lesa »

Jón Gunnar Þórðarson

Sumarleikhús í undirbúningi

Nú er hafinn undirbúningur Skapandi sumarstarfa sem er verkefni rekið af Akureyrarbæ og miðar að því að gera ungu fólki á Akureyri kleyft að starfa við skapandi og skemmtileg störf í ... Lesa »

Haglél af stærri gerðinni

Sögulegt haglél meiddi fólk á Akureyri

Haglél af stærri gerðinni féll á Akureyri fyrir stundu. Reyndar segja íbúar á Brekkunni að þeir minnist þess ekki að hafa séð eins stór högl falla á þessu svæði. Dæmi voru um að ... Lesa »

Haglél í Fururlundinum. Mynd: Rósa Hrefna Gísladóttir

Gengur á með hagléljum á Akureyri

  Vorið lætur víst enn bíða eftir sér en mörgum Akureyringum þótti nóg um þegar högl fóru að hrynja af himnum ofan um þrjúleytið. ... Lesa »

Bíllinn umræddi. Toyota Avensis

Skemmdarverk unnin á bíl í miðbæ Akureyrar

Aðfararnótt sunnudagsins 19. maí sl. milli kl. 01:45 og 03:30 stóð vínrauð Toyota Avensis bifreið á Geislagötu við pósthúsið. Þegar eigandinn kom að bílnum sá hann að búið var að ... Lesa »

Hildur Eir Bolladóttir

Frímúrarabarn

Það er til rosa vondur  brandari sem fjallar um Liverpoolaðdáendur og börn alkóhólista, ef fólk er ekki þegar farið að tengja þá er hann s.s. svona „hvað eiga Liverpoolaðdáendur og ... Lesa »

Margrét Blöndal tók við verðlaununum fyrir dóttur sína Sigyn Blöndal

Framúrskarandi ungur Norðlendingur verðlaunaður

Hið nýstofnaða félag JCI Norðurland stóð nýverið fyrir leitinni að Framúrskarandi ungum Norðlendingi 2013. Viðurkenningin var veitt laugardaginn 18. maí síðastliðinn í ... Lesa »

Helgi Jóhannesson forstjóri Norðurorku og Þorsteinn E Arnórsson formaður stjórnar Iðnaðarsafnsins á Akureyri

Norðurorka styður Iðnaðarsafnið

Norðurorka gerði sl. föstudag samstarfssamning við Iðnaðarsafnið á Akureyri en í honum felst að Norðurorka er bakhjarl safnsins. „Lögð er áhersla á að þeir fjármunir sem lagðir ... Lesa »

Stelpusveitin Hvítar rósir. Mynd: Anna Friðrika Árnadóttir

Stelpur rokka! á Akureyri

Dagana 10. til 14. júlí halda Stelpur rokka! rokksumarbúðir fyrir 12 til 16 ára stelpur. Þetta er í fyrsta skiptið sem rokksumarbúðirnar eru haldnar á Akureyri en það er gert í ... Lesa »

Kristján Jóhannsson er á meðal þeirra sem taka lagið á Sumartónleikum Þórs

Sumartónleikar Þórs

Sumartónleikar Íþróttafélasins Þórs verða haldnir sunnudaginn 2. júní klukkan 20 í Glerárkirkju. „Það verður notaleg stemmning í Glerárkirkju þegar ljúfir tónar frá ... Lesa »

Arnar Már Arngrímsson

Hugsað að morgni í maí

Ég er að hugsa um veturinn sem er að líða og af hverju, af hverju veturinn kýli mann alltaf kaldan. Hvað varð um gönguskíðaferðirnar, spilakvöldin, arineldinn og það allt? Vetur er bara ... Lesa »

sænskar

Söngvari og sellóleikari

Anna K. Larson og Sanna Andersson eru æskuvinkonur frá litlu þorpi í suður Svíþjóð. Þær mynda dúettinn "söngvari og sellóleikari" og hafa sett saman dagskrá þar sem þær blanda saman ... Lesa »

Screen shot 2013-05-19 at 11.07.30

Bridsarar búa sig undir Færeyjaferð

Mikill fjöldi bridgespilara af öllu landinu lagði leið sína til Akureyrar um síðustu helgi en þá fór fram kjördæma­ mótið í bridge. Reykvíkingar höfðu sigur, Suðurland varð í ... Lesa »

Jökull Guðmundsson

Hvað tók Jóhanna frá öldruðum?

„Ekkert smá sem ríkisstjórnin er búin að reyta af öldruðum og öryrkjum á kjörtímabilinu“. Þessi fullyrðing heyrðist oft dagana fyrir kosningar, en væri spurt hvað aldraðir hefðu ... Lesa »

Hluti útskriftarnema hjá Sjúkraflutningaskólanum

Fleiri konur útskrifast úr Sjúkraflutningaskólanum

Í gær, föstudaginn 17. maí fór útskrift nemenda Sjúkraflutningaskólans fram við hátíðlega athöfn á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Að þessu sinni útskrifuðust 72 nemendur þar af 58 ... Lesa »

Strætó Akureyri - Leið 57

Sumaráætlun Strætó fyrir landsbyggðina

Sumaráætlun Strætó fyrir landsbyggðina tekur gildi á morgun, sunnudaginn 19. maí 2013 og gildir til 14. september 2013. Eftirfarandi breytingar verða á ferðum á Norðurlandi: Leið 57 ... Lesa »

Vanillukaka með töfrum. Allskonar.is

Vanillukaka með töfrum

Þessi kaka er ótrúlega einföld og fljótleg. Hún er langbest þegar hún er köld og hægt að bera hana fram með berjum og ávöxtum, þeyttum rjóma eða vanillukremi eða heitri ... Lesa »

Skoða meira