Uppselt er á tónleika til heiðurs Freddie Mercury í Hofi 8. september nk. Vegna mikillar eftirspurnar hefur verið bætt við aukatónleikum sama kvöld kl. 22 og hefst miðasala í fyrramálið kl. 9, föstudaginn 10. ágúst.
Yfir 8.000 ánægðir tónleikagestir – þetta verða allra síðustu tónleikarnir. Tryggðu þér miða!
Stórskotalið íslenskra tónlistarmanna stígur á stokk og flytur lög Mercury með sínu nefi. Með aðal söng hlutverk fara Eiríkur Hauksson, Magni, Friðrik Ómar , Eyþór Ingi og Matthías Matthíasson.
Gestasöngkona verður Hulda Björk Garðarsdóttir óperusöngkona. 12 manna rokkhljómsveit og raddsveit.
Nánari upplýsingar hér og í miðasölu Hofs s. 450 1000.
Fréttatilkynning frá Menningarhúsinu Hofi





























