Í síðustu viku opnaði verslunin Flóra í húsnæði sem áður hýsti verslunina Frúna í Hamborg. Það er Kristín Þóra Kjartansdóttir, félagsfræðingur og garðyrkjukona, sem hefur rekið Flóru í Listagilinu frá því í lok maí 2011 og hefur nú flutt sig um set í Hafnarstræti 90.
Í vöruvali Flóru er lögð áhersla á náttúruvörur, umhverfisvænar vörur, endurnýtingu og endurvinnslu og þar er hægt að kaupa bæði notað og nýtt. Til sölu eru vörur eftir ýmsa listamenn sem vinna með endurnýtingu, má þar nefna George Hollanders og Jón Laxdal og auk þess má í Flóru finna ýmsar matvörur og snyrtivörur unnar úr íslenskri náttúru, muni eftir íslenska hönnuði og erlenda og notaða muni og föt.
Húsið við Hafnarstræti 90 var byggt fyrir Pöntunarfélag Eyfirðinga, sem síðar varð KEA og segir Kristín góðan verslunaranda vera í húsinu og það sé gott að koma inn í þetta gamla og góða verslunarhúsnæði og Frúin í Hamborg hafi skilið eftir sig góða strauma.
„Það verða vinnustofur hérna í kjallaranum þegar búið er að koma honum í stand og ég vona að það verði til að hvetja skapandi fólk til að gera meira úr sköpunarstarfi sínu því ég finn mikinn áhuga hjá fólki á handunnum og endurnýttum vörum,“ segir Kristín og bætir því við að hluti af miðhæðinni verði líka leigður út sem vinnu- og söluaðstaða.
Í kjallara Flóru í Listagilinu var sýningarrými þar sem fjölbreyttar myndlistarsýningar hafa verið haldnar en nú verður sú breyting á að sýningarnar verða inni í rými verslunarinnar. Fyrsta sýningin opnar laugardaginn 25. ágúst, á Afmælisvöku Akureyrarbæjar en það er Jóna Hlíf Halldórsdóttir sem ríður á vaðið í nýju húsnæði Flóru. „Það er vel við hæfi að Jóna Hlíf sé með fyrstu sýninguna því hún hefur jú verið mikið hérna í kringum Frúna í Hamborg svo þetta verður einskonar brú milli starfsemi Frúarinnar og Flóru,“ segir Kristín.
„Svo erum við að fá inn í starfsnám þýska stúlku sem leggur stund á meistaranám í menningarstjórnun í Leibzig í Þýskalandi. Hún mun sjá um ýmsar uppákomur hér næstu mánuðina, það verður spennandi,“ segir Kristín.
- Flóra, Hafnarstræti 90
- Úr Flóru
- Útskorin dýr eftir George Hollanders
- Sófi í Flóru
- Húsið hýsti Kaupfélag Eyfirðinga
- Ýmsir smáhlutir
- Ýmsir smáhlutir
- Leirtau
- Pappakassi verður að klukku. George Hollanders
- Endurnýttar vínflöskur eftir Auði Helenu Hinriksdóttur
- Bók í Flóru
- Prjónaðir sokkar











































