Á morgun, mánudaginn 6. ágúst kl. 14 hefst klassísk tónlistarhátíð á Dalvík sem ber heitið Bergmál. Þetta er í þriðja sinn sem hátíðin er haldin í menningarhúsinu Bergi og er dagskráin í ár fjölbreytt og glæsileg. Hátíðin stendur til fimmtudagsins 9. ágúst.
Aðstandendur hátíðarinnar eru Hafdís Vigfúsdóttir flautuleikari, Grímur Helgason klarinettuleikari og Kristján Karl Bragason píanóleikari en auk þeirra kemur Tríó Lyrico fram og á lokatónleikunum, sem eru tileinkaðir þýska tónskáldinu Kurt Weill, mun Sigríður Thorlacius söngkona takast á við fjölbreytta arfleifð Kurt Weill og konu hans söngkonunnar Lotte Lenya og samtímamanna þeirra.
Nánari upplýsingar um hátíðina, dagskrá og miðaverð má finna á vef Bergmáls.





























