Félagsskapurinn Hinsegin Norðurland ætlar að halda gleðigöngu um verslunarmannahelgina á Akureyri. Í tilkynningu frá hópnum segir að gengið verði með fána á lofti og hamingju í fyrirrúmi. Lagt verður af stað á morgun, laugardaginn 4. ágúst, frá Akureyrarkirkju kl. 15:50!
Um að gera að mæta fyrr og komast í gírinn! „Mætið með fána, hatta, merki og allt sem þið eigið og að sjálfsögðu hamingjuna og góða skapið!“ segir hópurinn.
Gengið verður niður kirkjutröppurnar og niður á Ráðhústorg. Þar mun meðal annarra Páll Óskar stíga á svið og taka nokkur vel valin lög.
„Við hvetjum ykkur eindregið til að ganga með okkur eða koma og horfa á og styðja okkur!“ segir í tilkynningu frá Hinsegin Norðurland.





























