Ein með öllu…og við fögnum afmæli!

Ein með öllu…og við fögnum afmæli!

Ein með öllu á Akureyri. Mynd: Þórhallur

Hér eftir sem hingað til eru það bros gestanna sem gilda og áhersla er lögð á að hafa dagskrána fjölbreytta og skemmtilega, þar sem allir finna eitthvað við sitt hæfi. Ein með öllu…og við fögnum afmæli! hefst fimmtudaginn 2. ágúst og nær hámarki sunnudagskvöldið 5. ágúst með Sparitónleikunum á Samkomuhúsflötinni og flugeldasýningu af Pollinum.

Á Fimmtudagsfíling í göngugötunni verða útitónleikar sem sjónvarpsstöðin N4 stendur fyrir og fram koma Mannakorn, Ingó veðurguð, Jón Jónsson, Eyþór Ingi, Hvanndalsbræður og fleiri.

Fjöldi dagskrárliða hefur fest sig í sessi meðal gesta hátíðarinnar og eru tveir þeirra á föstudeginum 3. ágúst; Óskalagatónleikar Eyþórs Inga og Óskars Péturssonar sem fram fara í Akureyrarkirkju og Kirkjutröppuhlaupið. Mömmur og möffins í Lystigarðinum verða laugardaginn 4. ágúst, þar sem á sama tíma er hægt að styrkja fæðingardeild Sjúkrahússins á Akureyri og njóta þess að borða ævintýralega fallegar möffinskökur. Hið eina sanna Dynheimaball þar sem þessi gömlu góðu lög fá að njóta sín, Ein með öllu…rauðkáli og kók í bauk verður í boði í notalegheitum við Iðnaðarsafnið, svo ekki sé minnst á Sparitónleikana á flötinni fyrir framan Samkomuhúsið, þar sem fólk kemur sér makindalega fyrir með teppi og tilheyrandi, hlýðir á góða tóna og virðir fyrir sér flugeldasýningu af Pollinum í lok tónleikanna. Í tilefni 150 ára afmælis Akureyrar munu blöðrur skipa ákveðinn sess á Sparitónleikunum enda ómögulegt að halda afmæli án þess að hafa blöðrur!

Af nýjum dagskrárliðum á Einni með öllu…og við fögnum afmæli! má nefna viðburð þar sem pabbar bæjarins láta ljós sitt skína á sama tíma og þeir styrkja gott málefni. Þetta er viðburður sem hefur yfirskriftina „Pabbar og pizzur“ – áhugasamir pabbar taka þátt með því að reima á sig svuntur, fletja út pizzadeig og raða hráefninu listilega á. Hver pizza kostar 1000 krónur en telji menn pizzuna sína vera nánast listaverk má greiða hærra verð fyrir hana. Allt hráefni er gefið og upphæðin sem safnast verður gefin til Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis.

Helstu söngbarkar þjóðarinnar munu ekki láta sig vanta á Eina með öllu á Akureyri. Til afmælisbæjarins leggja leið sína m.a. Sálin hans Jóns míns, Paparnir, Hjálmar, Dúndurfréttir, XXX Rottweiler hundar, Steindi JR, Skytturnar, hljómsveitin Bravó, vinsælasti söngvari þjóðarinnar Páll Óskar Hjálmtýrsson og fleiri.

Auk tónlistarinnar verður hægt að fara á skautadiskó, kaupa og selja gamalt og gott á flóamarkaði, njóta ævintýralandsins að Hömrum, fylgjast með fjölskyldudagskrá á Ráðhústorgi með dansi og söng, skella sér í tívolí, taka þátt í söngkeppni ungs fólks á vegum HBI Vocalist og fl.

Þetta er aðeins brotabrot af dagskrá fjölskylduhátíðarinnar Ein með öllu…og við fögnum afmæli! – dagskrána í heild sinni er að finna á slóðinni www.einmedollu.is og einnig er hægt að fylgjast med á Facebooksíðunni www.facebook.com/einmedollu

Það eru Vinir Akureyri í samvinnu við Akureyrarstofu sem standa fyrir hátíðinni og helstu bakhjarlar eru Norðlenska-Goði, Vífilfell-Coca Cola og sjónvarpsstöðin N4.

Texti úr fréttatilkynningu.

Félagarnir saman á með allt lék í lyndi

Plötusnúðar í hár saman

Í yfirlýsingu sem N3 plötusnúðar sendu frá sér nú í kvöld kemur fram að Dynheimaballið um næstu verslunarmannahelgi sé í uppnámi vegna samstarfsörðugleika N3 plötusnúða við ... Lesa »

Sérstaklega mælir Lonely Planet með Jarðböðunum við Mývatn í stað Bláa lónsins

Norðurland í þriðja sæti hjá Lonely Planet

Í dag var birtur listi yfir þá tíu staði í Evrópu sem ferðahandbókaútgefandinn Lonely Planet mælir með. Þar var Norðurland í þriðja sæti á eftir borginni Búdapest í Ungverjalandi ... Lesa »

Agnés Hubert

Jafnrétti kynjanna í Evrópu rætt á hádegisfundi á KEA

Kynjajafnrétti er eitt af grundvallaratriðum Evrópusamrunans og þarf að samþætta það inn í öll stefnumarkmið ESB og hefur Evrópusambandið haft töluverð áhrif á þróun ... Lesa »

Tjaldafjölskyldan við Háskólann á Akureyri. Mynd af vef skólans

Tjaldafjölskylda sækir Háskólann á Akureyri

Tjaldapar hefur sl. 15 ár haldið til á þaki Háskólans á Akureyri og nú spókar parið sig ásamt ungum sínum í grasinu við skólann. Á vef Háskólans er eftirfarandi frásögn og ... Lesa »

Hátún

Hús vikunnar: Hátún, Sólvangur og Gamli Glerárskóli; Árholt.

Nú finnst mér alveg kominn tími á að færa mig yfir Gleránna en Þorpið hefur e.t.v. orðið dálítið útundan hjá mér. Í Glerárþorpi er fjöldi gamalla og sögufrægra bygginga ekkert ... Lesa »

Aðalheiður S. Eysteinsdóttir

Stórviðburður í listalífinu undirbúinn

Þessa dagana eru margar hendur á lofti við undirbúning á stórviðburði í menningarlífi Akureyringa en það er opnun á tíu listsýningum í sjö sýningarrýmum í og við Listagilið á ... Lesa »

Frá bíladögum. Mynd: Fjölnir Örn

Mikið vælt á Bíladögum

Nú er einni af stærstu ferðamannahelgunum á Akureyri lokið en mikið af gestum sóttu bæinn heim bæði í tengslum við Bíladaga sem haldnir eru á vegum Bílaklúbbs Akureyrar og Shell en ... Lesa »

Kátir A úrslita hestar og knapar í töltkeppninni í Afmælis-mótaröðinni. Mynd: Ólafur Ólafsson

85 ára afmælisár Léttis

Nú á 85 ára afmælisári Léttis verður mikið um að vera og þessa dagana er í gangi mótaröð sem nefnist afmælismót Léttis. Keppt var í tölti 13. júní sl og þann 25. júní verður ... Lesa »

Við afhendingu hinnar íslensku fálkaorðu í dag

Jóna Berta Jónsdóttir sæmd fálkaorðunni

Akureyringurinn Jóna Berta Jónsdóttir, fyrrverandi matráðskona, var meðal þeirra níu sem Forseti Íslands sæmdi heiðursmerki hinnar íslensku fálkorðu við hátíðlega athöfn á ... Lesa »

Hildur Eir Bolladóttir

Candy floss og helíumblöðrur eru samstöðutákn

Gleðilegan þjóðhátíðardag kæru vinir. Í fljótu bragði  man ég ekki til þess að hafa fundist sautjándi júní neitt sérstaklega skemmtilegur dagur, þegar ég lít til baka finnst ... Lesa »

Akureyri gömul mynd

Kvennasöguganga um Oddeyrina

Í tilefni kvenréttindadagsins, miðvikudaginn 19. júní, verður boðið upp á fyrstu kvennasögugönguna um Oddeyrina. Saga kvenna á eyrinni er mörgum hulin og því gefst hér kjörið ... Lesa »

Við Víti.

Landeigendur loka gönguleiðum í kringum Víti og Leirhnjúk

Stjórn Landeigenda Reykjahlíðar ehf. í Mývatnssveit hefur ákveðið að loka alveg svæðinu við Leirhnjúk, norðvestur af Kröflu, fyrir ferðamönnum frá og með morgundeginum, 17. júní, ... Lesa »

Hilmir Gauti Garðarsson

Foreldrar verða að setja reglur

Ég hef eytt mörgum tímum fyrir framan tölvuskjáinn, bæði á internetinu og í tölvuleikjum og eyðilagt smá fyrir sjálfum mér. Tölvur geta komið sér vel en svo getur þú gleymt þér ... Lesa »

Heyrst hefur …

Heyrst hefur að blíðviðrið á Akureyri síðustu daga hafi haft þau áhrif að von sé á metfjölda til bæjarins um sautjánda júní helgina sem nú fer í hönd. Margir munu leggja leið ... Lesa »

Kristján Helgason

Málverk – Nýsköpun

Síðasti sýningardagur málverkasýningar Hjördísar Frímann í Ketilhúsinu er sunnudagurinn 16. júní. Drífið ykkur. Hjördís er í flokki bestu málara landsins og sýningin er fjölbreytt, ... Lesa »

Uglan café

Grænlensk list og fjölbreytt bakkelsi á Uglunni

Nú um helgina er fyrsti opnunardagur kaffihússins Uglunnar sem staðsett er í Gamla barnaskólanum að Skógum í Fnjóskadal en það er Agnes Þórunn Guðbergsdóttir sem rekur kaffihúsið í ... Lesa »

Þorgeirskirkja

Þorgeirskirkja opnuð

Þorgeirskirkja er svokölluð Vegkirkja á sumrin en hún verður frá og með í gær opin alla daga frá 15. júní-15. ágúst kl. 10-16. Lokað verður þó mánudaginn 17. ... Lesa »

Frá heimsókn Félagsvísindadeildar HÍ

Harðgert háskólalíf

Dagana 15. til 29. júní tekur Háskólinn á Akureyri á móti góðum gestum, bæði nemendum og kennurum úr Háskólunum í Reading á Englandi, Pamplona á Spáni og Medellín í Kólumbíu. ... Lesa »

Útskriftarnemar á hug- og félagsvísindasviði

Konur 80% útskriftarnema við HA

Í dag voru 289 kandídatar brautskráðir á Háskólahátíð Háskólans á Akureyri. Háskólaárið 2012-2013 stunduðu um 1600 nemendur nám á þremur fræðasviðum við Háskólann á ... Lesa »

Þjóðhátíðarsýróp

Þjóðhátíðarsíróp

Þetta sýróp er dásamlegt út í ískalt vatn með fullt af klaka og myntu, eða sítrónusneið. Þú getur líka notað það minna þynnt út og búið til frostpinna eða sorbet. Það kemur ... Lesa »

Frá skíðagöngu. Mynd úr safni. Mynd: Hilmar Friðjónsson

17. júní skíðaganga

Eftir langan, skemmtilegan og snjóríkan skíðavetur í Hlíðarfjalli ætlar Skíðafélag Akureyrar að halda "skíðagöngumót" á 17. júní. Þetta er engin keppni, heldur ætlar fólk að ... Lesa »

Íslenski-fáninn

17. júní dagskráin á Akureyri

  17. júní hátíðarhöldin á Akureyri verða fjölbreytt að venju. Frá klukkan 12.45 – 13.30 verður hátíðardagskrá í Lystigarðinum, þar sem Blásarasveit Tónlistarskólans á ... Lesa »

Hraun í Öxnadal. Mynd: Ingibjörg Óskarsdóttir

Fífilbrekkuhátíð að Hrauni í Öxnadal

Sunnudaginn 16. júní verður árleg Fífilbrekkuhátíð haldin að Hrauni í Öxnadal. Hátíðin hefst með göngu frá Hrauni að Hraunsvatni og til baka. Lagt af stað kl. 9:00 frá ... Lesa »

download

Skíðaganga á 17. júní

Eftir langan, skemmtilegan og snjóríkan skíðavetur í Hlíðarfjalli ætlar Skíðafélag Akureyrar að halda "skíðagöngumót" á 17. júní. „Þetta er engin keppni, heldur ætlar fólk að ... Lesa »

_D5A8673

Fimm ára gömul í fréttasettinu

Dagmar Ýr Stefánsdóttir hefur haft í nógu að snúast undanfarið. Hún starfar að markaðs- og kynningarmálum hjá Háskólanum á Akureyri auk fleiri starfa innan stofnunarinnar og nú er ... Lesa »

Skoða meira