Nú styttist í Fiskidaginn mikla á Dalvík en það er laugardagurinn 11. ágúst sem er aðal dagurinn þrátt fyrir að hátíðin sé farin að spanna heila helgi. Undibúningur er í fullum gangi og Júlíus Júlíusson, framkvæmdastjóri Fiskidagsins mikla, sagði okkur frá helstu atriðum sem eru í undirbúningi:
Samherji og Fiskidagurinn bjóða börnum að skapa nýja fiskiveröld.
Náttúran hefur skapað marga fiskana og í hafinu leynast þúsundir tegunda. Samherji veiðir t.d. um 50 þeirra. Á Fiskidaginn mikla milli kl 11.00 og 17.00 í Allahúsinu verður börnum boðið að skapa og nota hugmyndaflugið til að búa til enn fleiri fiska. Öll börn á öllum aldri eru hvött til að teikna fisk, gefa honum nafn og hengja hann upp. Þegar líður á daginn verður orðinn til mögnuð fiskasýning sem stækkar sífellt. Samherji, Fiskidagurinn mikli og börnin bjóða alla velkomna á sýningu í nýja fiskiveröld sem fer ört stækkandi er líður á daginn.
Fiskidagsgönguvika.
Kristján E Hjartarson verður með Fiskidagsútgáfu af gönguvikunni góðu. Gjald er greitt á staðnum í hverri ferð.
7. ágúst:10.00 Bæjarfjallið
8 ágúst:kl.10.00 Karlsárfjall
9. ágúst kl. 20.00 Húsaganga farið frá Hvoli.
Fiskasýningin
Skarphéðinn Ásbjörnsson áhugamaður um fiska er veiðimaður mikill og hefur staðið fyrir í afar áhugaverðri fiskasýningu í ellefu ár á Fiskidaginn mikla í samstarfi við heimafólk. Þar eru sýndir ferskir fiskar á ís. Fiskasýningin í ár hefur að geyma um 200 tegundir. Þess má geta að hákarlinn á sýningunni verður skorinn kl. 15:00
Fornbíladeild Bílaklúbbs Akureyrar
Fornbíladeild bílaklúbbs Akureyrar verður sérstakur gestur Fiskidagsins í ár. Á Fiskidaginn mikla munu þau sýna flotta, fornfræga fægða fáka ef fallegri gerðinni.
Vatnsbrunnur vígður á Fiskidaginn mikla
Þegar Dalvíkingurinn Jón Ægir Jóhannsson sem býr í Kanada var polli og lék sér á bryggjunum á Dalvík fékk hann sér alltaf vatn að drekka úr slöngunum þar, fyrir honum er þetta besta vatn í heimi. Hann vill að allir gestir Fiskidagsins, innlendir sem erlendir, fái að njóta þeirra forréttinda að geta fengið sér sopa og eða fyllt á flöskur. Hann fékk Jóhannes Hafsteinsson til að smíða vatnsbrunn sem verður á bryggjunni á Fiskidaginn mikla og Jón Ægir ætlar að gefa íbúum Dalvíkur því honum finnst að svona brunnur ætti að vera á öllum bryggjum landsins.
Fiskidagssýning 66 norður – líf og fjör í miðstöð Artic Sea Tours.
66 norður í samvinnu við Fiskidaginn mikla og Artic Sea Tours, sem er hvalaskoðunarfyrirtæki okkar Dalvíkinga, setur upp upp skemmtilegan viðburð á Fiskidaginn mikla þar sem að samspil vatns, fata og sjóklæða mun njóta sín. Vatnið í sýningunni verður fengið úr snjóbyssum Skíðafélags Dalvíkur. Fylgist með og ekki missa af. Miðstöð Artic Sea Tours við smábátahöfnina er opin alla daga, þar er hægt að njóta léttra tóna, 66 norður verslunar með Fiskidagstilboðum, kaffihúsastemmningar og að sjálfsögðu er hægt að kaupa miða í hvalaskoðun.
Fiskisúpukvölds tilraun.
Áttunda árið í röð fara Fiskidagurinn mikli og íbúar Dalvíkurbyggðar af stað með súpukvöldið góða. Súpukvöldið hefst kl 20:15 en í ár ætlum við til gamans að gera tilraun með að opna súpustaði í útjaðrinum, ef svo má segja, örlítið fyrr eða um 19:30. Hvetjum við alla til að koma á þessa staði hvort sem það er á undan eða síðar um kvöldið.
Eftirtaldir staðir verða með í tilrauninni:
Anna Stella, Jónas og börn í Öldugötunni á Dalvík, frést hefur af stórum potti og ýmsu góðgæti í súpunni á þeim bænum.
Húni II verður við bryggjuna á Dalvík og þar verður boðið um borð í súpu
Inga og Bjössi á Hauganesi klikka ekki á súpunni, og nýr súpuaðili er heimilisfólkið á Birnunesi, afleggjari rétt ofan við Hauganes, upplagt fyrir þá sem eru að koma frá Akureyri að líta við á þessum stöðum áður en þeir koma til Dalvíkur.
Að venju verður súpa út allan bæ á Dalvík og fjöldi þátttökufjölskyldna aldrei verið meiri, til gamans má geta að hópur Tælenskra kvenna sem býr á Dalvík mun bjóða uppá fiskinúðlur í Goðabrautinni og einnig er gaman að segja frá því að allar fjölskyldur í túnunum eru með og settu saman eina stóra súpustöð þar sem að allir koma með sína útgáfu af súpu.
Það eru íbúar sem bjóða heim í súpu en eftirtalin fyrirtæki leggja verkefninu lið: MS með rjóma, Ömmubakstur með brauði, Samherji með fiski og Fiskidagurinn mikli með áhöldum og fleiru.
- Íþróttaálfurinn og Solla stirða á Fiskidaginn. Mynd HSH
- Fiskasýning á Fiskidaginn mikla. Mynd: HSH
- Hressir kaffibrúsakarlar á Fiskidaginn mikla. Mynd: HSH
- Lostæti á borðum á Fiskidaginn mikla. Mynd: HSH


































