Í dag fagna Akureyringar 100 ára afmæli Lystigarðsins. Lystigarðurinn var stofnaður árið 1912 og var rekinn sem skrúðgarður eingöngu fyrstu áratugina, en árið 1957 keypti bærinn plöntusafn Fífilgerðisbræðra, þeirra Jóns og Kristjáns Rögnvaldssonar og í kjölfarið hefur starfsemi hans sem grasgarður aukist smám saman.
Auk erlendra skrautplantna var komið upp safni allra íslenskra jurta og nokkru hefur verið safnað af plöntum frá öðrum norðlægum löndum, einkum Grænlandi. Hvergi er jafn stórt safn íslenskra plantna saman komið á einum stað eins og í Lystigarðinum.
Á vefsíðu Lystigarðsins segir að garðurinn hafi mikilvægu hlutverki að gegna í sambandi við erlenda ferðamenn, „enda dregur hann að sér fleiri ferðamenn á sumrin en nokkur annar staður í bænum. Í augum margra erlendra ferðamanna er íslenska plöntusafnið eitt það markverðasta í Lystigarðinum. Þeir sjá í sínum heimalöndum fegri skrúðgarða, og fegurð Lystigarðsins verður því í þeirra augum fyrst og fremst, sýnishorn af því, hvað hægt ,sé að gera við erfiðar aðstæður á svona norðlægri breiddargráðu. Safn merktra, hánorrænna jurta er þeim hins vegar nýnæmi. Margir fá þar kærkomið tækifæri til að átta sig á íslenskum jurtum, sem hafa vakið athygli þeirra á ferðum um landið, enda er oftast tilgangslaust fyrir þá að spyrja íslenska leiðsögumenn þeirra um plöntur“.
Í dag kl. 14 hefst afmælishátíð í Lystigarðinum þar sem stemmningin verður fjölskylduvæn og boðið er í „lautartúr“ í anda liðinna tíma. Harmonikka hljómar áður en hátíðin verður sett en hljómsveit Ingu Eydal mun svo leika fyrir gesti og gangandi fram eftir degi.
Búast má við uppákomum í hléi tónleikanna og Café Björk verður með nestiskörfur og teppi fyrir þá sem vilja.





























