Þorgerður Ólafsdóttir opnar sýninguna Happy Endings eftir í sal Myndlistarfélagsins á Akureyri í dag, laugardaginn 14. júlí kl. 15.
Þorgerður útskrifaðist með BA gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2009. Hún hefur tekið þátt í fjölda sýninga hér heima og erlendis og ber þar að nefna sýningar í Listasafni Reykjavíkur, Listasafni Reykjanesbæjar og Kling og Bang ásamt verkefnum í Varsjá, Kaupmannahöfn, Ósló, Stokkhólmi, Glasgow og Edinborg. Síðastliðið haust hóf Þorgerður meistarnám í myndlist við The Glasgow School of Art.






























