Í dag, laugardaginn 14.júlí kl. 14 opnar Joris Rademaker sýninguna Kartöflur í geymslu í Festarkletti-listhúsi í Kaupvangsstræti 29 á Akureyri.
Joris sýnir málverk unnin út frá kartöflum og fannst þetta tilvalinn staður til að sýna þau vegna þess að á þessum stað var um árabil kartöflugeymslur bæjarbúa.
Logi Einarsson arkitekt endurbyggði húsnæðið og breytti í arkitektastofu en síðar breytti Óli G. Jóhannsson því í Festarklett-listhús. J
oris sýnir ný málverk sem hann vinnur út frá hringforminu.
Sýningin er aðeins opin þessa einu helgi, laugardag og sunnudag frá kl. 14-17.






























