Sýning Ingu Bjarkar, Draumeindir opnar í dag, laugardaginn 14. júlí klukkan 15 í Mjólkurbúðinni Kaupvangsstræti.
Þetta er fimmta einkasýning Ingu Bjarkar og hún hefur tekið þátt í átta samsýningum.
„Innblástur minn hefur verið íslensk náttúra og umhverfi en nú kveður við annað tón og ég leita inn á við, efni þessarar sýningar kemur frá tilfinningum. Baráttu hamingju og gleði við depurð og angist. Á sýningunni mun ég einnig birta ljóð eftir móður mína Önnu Maríu,“ segir Inga Björk
Sýningin verður opin til 29. júlí.





























