Bærinn iðaði af lífi um helgina og mikið var af gestum enda tvö fótboltamót í gangi og mikið af erlendum ferðamönnum. Lögreglumenn á vakt um helgina segja allt hafa gengið mjög vel og lítið að gera miðað við allan þann mannfjölda sem í bænum var, „Svona á þetta að vera,“ sagði lögreglumaður á vakt aðspurður hvernig helgin hefði gengið.
Ljósmyndari Akureyrar vikublaðs fór á stúfana og smellti nokkrum myndum af mannlífinu og íþróttalífinu
- Kandífloss á Ráðhústorgi
- Slakað á á Ráðhústorgi
- Gosinn í Hafnarstæti
- Slakað á fyrir utan Akureyri Backpackers
- Góð stemmning fyrir utan Bláu könnuna
- Ferðalangar á þráðlausu neti
- Fótboltalið á röltinu í miðbænum
- Foreldrar fylgdust spenntir með leikjum á N1 mótinu
- Keppendur á N1 mótinu sýndu mikil tilþrif
- Slakað á milli leikja
- Góð stemmning í „stúkunni“ á KA vellinum
- Þjálfarinn fylgist með gangi mála
- Gulir og glaðir leggja á ráðin í leikhléi
- Liðsheildin efld í leikhléi
- Góð tilþrif
- Það var mikið stuð á pollum á öllum aldri í Hamri
- Góð stemmning í Hamri















































