Í dag opna tvær myndlistasýningar í Gilinu. Annars vegar er það sýningin Samspil í Ketilhúsi og hins vegar sýning Maríu Óskar í Deiglunni.
Sýningin Samspil opnar kl. 15 í dag
Samspil er sýning tveggja þekktra nafna í hagvirkri myndsköpun, þeirra Sigríðar Ágústsdóttur og Ragnheiðar Þórsdóttur. Báðar hafa þær helgað sig listagyðjunni og útbreiðslu á fagnaðarerindi hennar með sköpun, kennslu og virkri þátttöku í menningarlífi bæjarins, en þó eftir ólíkum leiðum.
Ragnheiður hefur einbeitt sér að rauða þræðinum í listinni, ef svo má segja, og sýnir hér ofin verk sem gjarnan eiga sjónrænar rætur að rekja allt aftur til landnáms og teygja sig æðruleysislega inn í hamagang og sundurlyndi 21. aldar, en undir það síðasta hefur röggvarfeldurinn átt hug hennar allan.
Sigríður heldur sig hins vegar við brothættara svið hlutveruleikans, leirkerasmíðina, og eru verk hennar einföld og sígild að formi og bera með sér andblæ sem við þekkjum vel úr íslenskri náttúru; lágmælta tóna svarðar og foldar sem framkallast á yfirborðinu við reykbrennslu.
Sýning Maríu Óskar opnar kl. 13 í dag
María Ósk lætur hér í fyrsta sinn að sér kveða á opinberum vettvangi og sýnir bæði teikningar og málverk. Verk Maríu eru margvísleg að gerð en eiga það þó sameiginlegt að vera öll figurative, í dansandi litum og sveipuð dulúð. María fæddist á Akureyri árið 1987 og útskrifaðist með B.A. gráðu í myndskreytingum frá Designskolen í Kolding í Danmörku í lok júní 2012.
Báðar sýningarnar eru opnar miðvikudaga til sunnudaga frá kl. 13-17






























