„Aron rétti út hönd sína yfir vötn Egyptalands. Komu þá upp froskar og huldu Egyptaland. En spásagnamennirnir gjörðu slíkt hið sama með fjölkynngi sinni og létu froska koma yfir Egyptaland.“
Svo segir í 2. Mósebók um plágu tvö í biblíunni og hefur ekki síðan þótt gott að rigni froskum. Í Hrísey hefur það aldrei gerst, sem er gott, en í síðustu viku rigndi einni grásleppu og vakti viðburðurinn furðu og gleði meðal eyjaskeggja. Ung móðir var ásamt barni að hengja út þvott þegar undrið varð. Spriklandi en örsmá grásleppa lá allt í einu í grasinu rétt við snúrustaur og gat ekki hafa komið frá öðrum stað en sjálfum himninum líkt og í Mósebók forðum. Ráðagóður eyjaskeggi hljóp niður að strönd og sótti sjó í skál þar sem litlu geimverunni var boðið að busla. Hresstist sú stutta fljótt innan um þara og fóður sem Hríseyingar báru af rausn í hana og degi síðar náði harðsnúinn ljósmyndari Akureyrar vikublaðs þessu undri á mynd.
Hríseyingar kalla ekki allt ömmu sína þegar kemur að furðum og þá ekki síst þeim sem sjórinn hefur fært eyjaskeggjum. En þeir vita ekki til að sambærilegt atvik hafi orðið áður í eynni.
„Það hefur þurft margar ótrúlega margar tilviljanir til að þetta gæti gerst. Sennilega hefur fugl gripið grásleppuna í kjaftinn og er út af fyrir sig magnað að grásleppan hafi ekki skaðast við það. Svo þurfti fuglinn að missa hana úr gogginum þar sem hún kom niður án þess að drepast og svo þurfti einhver að reka augun í hana strax og bjarga henni,“ segir heimamaður. „Eigum við ekki að segja að hér sé nú formlega hafið fyrsta grásleppueldið í Hrísey,“ bætti hann við.































