Last fær Umhverfisstofnun fyrir að ráða landverði sem eru í fullu starfi sem kennarar, segir karl sem hafði samband við blaðið. Hann segir að með þessu taki stofnunin vinnu frá atvinnulausum. Ríkið sem reki Umhverfisstofnun greiði svo atvinnulausum atvinnuleysisbætur í staðinn. Því ættu opinberir starfsmenn að vera í tvöfaldri vinnu? Spyr karlinn…
Lof fær starfsfólk Sundlaugar Akureyrar fyrir þjónustulipurð og stimamýkt. En last fær laugin fyrir að loka rennibrautum vegna viðhalds nú yfir háönn. Maður furðar sig á því að þetta skuli ekki hafa verið gert fyrr, segir karl sem hafði samband við blaðið…
Lof fær Bautinn fyrir hnökralausa framkvæmd á hátíðarkvöldverðum í Íþróttahöllinni, sagði kona sem sendi blaðinu póst. Hún vildi einnig hrósa MA og nemendum á öllum aldri fyrir frábæra skemmtun og skipulag eins og best gat orðið á hátíðarhöldum um helgina…
Lof fá þeir sem hafa barist fyrir Vaðlaheiðargöngum og er gleðiefni að baráttumálið sé í höfn. Þarf ekki að fjölyrða um öll þau jákvæðu áhrif sem verða af framkvæmdinni fyrir Norðurland. Last fá hins vegar ungir sjálfstæðismenn sem hafa sakað þingmenn kjördæmisins um pot og popúlisma í því skyni að tryggja endurkjör. En einhver myndi líka segja að það þyrfti meir en eitt gat inn í fjall til að tryggja sumum þingmönnum kjördæmisins endurkjör…
Last fá þeir sem hætta öryggi íslenskra borgara. Í síðustu viku sprakk tvisvar á sjúkrabíl í Bárðardal vegna stórgrýtis í veginum og varð að kalla til bíl frá Akureyri. Betur fór en á horfðist en auðvitað er svona framkoma við vegfarendur ekki bjóðandi – hreinlega lífshættulegt gáleysi. Greiðar samgöngur ættu að vera keppikefli allrar þjóðarinnar, alls staðar…
Lof fær Sigríður Hafstað frá Tjörn, Svarfaðardal fyrir riddarakross sem hún hlaut nú í vikunni fyrir störf í þágu heimabyggðar, félagsmála og menningar. Er fólk kunnugt Sigríði sammála um að þessum heiðri sé Sigríður sérlega vel komin…




























