Gunnar Gíslason og Ragnhildur Steinsdóttir voru nýflutt til Sauðárkróks frá Reykjavík þegar blaðamenn Akureyrar vikublaðs voru á ferð í síðustu viku. Hjónin tóku stórt skref um síðustu mánaðamót. Ákváðu að taka að sér reksturinn á eðalsjoppunni Bláfelli, sem stendur í hjarta Sauðárkróks og afgreiddi annað ís en hitt pylsu þegar blaðið leit við. Gunnar sagði galdurinn við pylsurnar að hita ekki fleiri en tvær í einu.
Hvað varð til þess að þú ákvað að koma hingað norður í óvissuna og afgreiða eina með öllu, Gunnar?
„Það hafði blundað í mér lengi að fara út á land og svo gafst þetta tækifæri og við létum vaða eftir að kunningi minn lét mig vita af tækifærinu. Skeljungur sem áður rak þetta hefur breytt um stefnu. Nú er þeirra lína að reka engar sjoppur úti á landi. „
En eru svona vistaskipti ekki heilmikið vesen?
„Þú getur rétt ímyndað þér. Við búum núna í lítilli stúdíóíbúð, höfum bara rúmið okkar og tvo stóla.“
Gunnar hefur komið víða við. Hann hefur unnið sem leigubílstjóri og hann hefur líka höndlað með peninga. Hann vann átta ár hjá Kaupþingi.
Það hefur verið meira undir hjá þér þá?
„Já.“ (hlær) En þetta ævintýri leggst vel í okkur. Rosalega vel. Okkur er tekið svakalega vel. Ég er hreinlega orðlaus yfir því.“
Finnurðu ekkert fyrir því að þú sért „aðkomumaður“?
„Nei.“
En þarftu ekki að kaupa þér aðgöngumiða að hjarta Skagfirðinga með því að ganga í kór, kaupa þér hest eða eitthvað svoleiðis?
„Ég á hesta!“
Nú, þar er þá komin ein ástæða fyrir flutningunum hingað norður!
„Ekki segi ég það nú, við eigum eftir að leita okkur að hesthúsi hér og allt – en það má svo sem segja að hestaáhugi Skagfirðinga hafi ekki latt okkur.“
Þú barst þig nokkuð faglega að með pylsuna áðan – hafðirðu afgreitt pylsu áður en þú komst í Bláfell?
„Já, við rákum einu sinni Grillskálann í Ólafsvík. En ég var ótrúlega stirður þegar ég var að rifja handbragðið upp hérna fyrst, ég viðurkenni það.“
Hvað munu starfa hér margir í sumar?
„Ellefu manns, flestir í hlutastarfi.“
Og með það er Gunnar rokinn aftur til starfa, hamingjusamur með pylsu á lofti á Króknum.






