Ferðafélag Akureyrar er 75 ára gamalt. Gróska er í félaginu að sögn Hólmfríðar Guðmundsdóttur og hefur það gefið út blaðið Ferðir, um ferðamál í 70 ár. Einnig hefur félagið byggt og haldið við skálum á sjö mismunandi stöðum í óbyggðum. Þá gefur félagið árlega út ferðaáætlun með ferðum sem boðið er upp á ár hvert.
„Ferðirnar sem félagið stendur fyrir eru allt frá því að vera kvöldgöngur og upp í fimm daga gönguferðir (trússferðir) um Öskjuveginn svokallaða. Ferðirnar eru af ýmsum gerðum og segja má að allir geti fundið eitthvað við sitt hæfi. Flestar ferðirnar eru gönguferðir en miserfiðar. Á vetrum er einnig boðið upp á skíðaferðir. Félagið beitir sér líka fyrir því að mennta fararstjóra sína með námskeiðahaldi. Það verður að játa að það er mikið sama fólkið sem fer í ferðirnar okkar en við erum meira en tilbúin að ferðast með fleira „ungt fólk“ á öllum aldri,“ segir Hólmfríður.
Á toppnum með Ferðafélagi Akureyrar
Blásið hefur verið til átaks sem nefnist „Á toppnum“. „Tilgangurinn með þessu verkefni sem við höfum kallað “Þaulaverkefnið”okkar á milli er að hvetja fleiri Akureyringa og aðra til að kynnast umhverfi bæjarins betur. Það sem við þekkjum svo vel af götunni lítur allt öðruvísi út þegar maður er kominn svolítið upp fyrir bæinn . Við erum líka að gera okkur vonir um að fjölskyldur með stálpaða krakka eða unglinga geti haft gaman af þessum leik saman,“ segir Hólmfríður.
Leikurinn felst í því að fara á sex staði og fyrsti staðurinn er skrifstofa Ferðafélags Akureyrar Strandgötu 23. Þar fá þátttakendur bækling með kortum sem sýna hvernig hægt er að komast á hina fimm staðina og leiðbeiningar um leyniorð fyrir hvern stað. Á hverjum stað þarf að gata þátttökuspjaldið á réttum stað. Þegar búið er að fara á alla staðina þá er þátttökuspjaldið sent á skrifstofuna og þau sem hafa allt rétt fá viðurkenningarskjal sem segir að viðkomandi sé Þauli.
„Þauli er sá sem þekkir í þaula og í þessu tilfelli er það nágrenni Akureyrar sem hann þekkir. Að lokum verða dregnir nokkrir happdrættisvinningar. Það eru fyrirtæki og stofnanir hér á Akureyri sem hafa styrkt okkur á ýmsa vegu og viljum við þakka þeim kærlega fyrir stuðninginn,“ segir Hólmfríður.
Þeir sem hafa hug á að slást í för með Ferðafélagi Akureyrar eru velkomnir, að sögn Hólmfríðar. Skrifstofa félagsins í Strandgötu 23 er opin frá kl. 15:00 til 18:00 og til kl 19:00 á föstudögum. Einnig er hægt að hafa samband í síma 462 2720 eða með tölvupósti í netfang ffa@ffa.is. Svo er hægt að fara á heimasíðuna og lesa ferðasögur eða skoða fallegar myndir.






























