Í dag, kvenréttindadaginn 19. júní, fer fram kvennasöguganga á Akureyri. Gangan hefst við nýja kaffihúsið í Lystigarðinum, Café Björk, kl. 16:30 og endar við Minjasafnið á Akureyri.
Björgvin Steindórsson, forstöðumaður Lystigarðsins mun ávarpa göngufólk. Leiðsögumaður kvennasögugöngunnar í ár er Hörður Geirsson, safnavörður Minjasafnsins.
Boðið verður uppá kaffi að göngu lokinni og eru bæjarbúar og gestir hvattir til að mæta og upplifa hluta af sögu kvenna í Innbænum.
Kvennasögugangan er nú gengin í sjötta sinn á Akureyri en þátttaka hefur alltaf verið mjög góð. Í fréttatilkynningu frá jafnréttisstofu er gangan sögð hafa myndað nýja tengingu við Innbæinn og varpar ljósi á líf kvenna sem höfðu margar hverjar mikil áhrif á bæjarlífið á sínum tíma.
Þann 19. júní 1915 fengu íslenskar konur 40 ára og eldri kosningarétt og kjörgengi til Alþingis. Baráttan hafði staðið frá árinu 1885 þó fyrsta opinbera krafan um kosningarétt kvenna hafi ekki komið fram fyrr en árið 1895. Í ár eru liðin 97 ár frá því konur öðluðust kosningarétt og kjörgengi á við karla.




























