Uglan, bókakaffi í Fnjóskadal opnar á morgun

Uglan, bókakaffi í Fnjóskadal opnar á morgun

Tassajara brauðin tilbúin

Á morgun, 14. júní, opnar nýtt kaffihús að Skógum í Fnjóskadal, í húsnæði gamla barnaskólans. Kaffihúsið hefur fengið nafnið Uglan og er bókakaffi, þar sem gestir geta gluggað í gamlar og nýjar bækur og tímarit og hægt er að kaupa notaðar bækur á lágu verði.

Á Uglunni verður boðið upp á hefðbundið íslenskt góðgæti í félagsskap við heimskræsingar. Þriðjudaga til fimmtudaga verður kaffihúsið opið frá klukkan tvö til sex, en um helgar verður opið fram á kvöld og þá er einnig boðið upp á kvöldverð og árbít á sunnudögum frá kl.10.

Í allt sumar verða listsýningar  og ýmis konar uppákomur og viðburðir s.s. tónleikar, sagnastundir og örnámskeið og fleira. Það er Guðrún H. Bjarnadóttir (Hadda) sem ríður á vaðið með sýningu sína sem hún nefnir „Verkkunnátta og verklag er þjóðararfur. Ber okkur að varðveita hann?“ og flytur erindi með sömu yfirskrift á opnunardaginn.

Gamli barnaskólinn Skógum var barnaskóli sveitarinnar á árunum 1916-1972 en einnig var í Skógum símstöð sveitarinnar, póstafgreiðsla, ferjustaður áður en gamla bogabrúin var byggð yfir Fnjóská, áningarstaður, þingstaður, samkomustaður og fundarstaður allt fram á þennan dag.

Allri opinberri starfsemi var hætt í Skógum eftir að símstöðin var lögð niður. Sjálfseignarstofnun um Gamla barnaskólann tók við rekstri húsnæðisins 2011 og unnið er að því að safna munum til að halda uppi minningu skólans, um leið og húsnæðið er gert aðgengilegt fyrir almenning. Kvenfélagið rak kaffihús um helgar sumarið 2011 og sjálfseignarfélagið sá um sýningarhald, en nú hefur UGLAN tekið við því hlutverki.

Kaffihúsið er rekið í skólastofunni/borðsalnum, en það rými sem áður var svefnskáli er nú nýtt fyrir listsýningar, námskeið og aðra viðburði. Þar er einnig úrval bóka, handverks og listmuna.

Húsfreyja Uglunnar, Valgerður Bjarnadóttir, segir áherslu lagða á að nýta eftir föngum innlent hráefni og sem mest úr héraði, vistvænt og árstíðabundið. Heimabakað brauð og kökur,  heimagerðar kæfur, sultur og safar verða í boði auk þess sem boðið verður upp á úrvalskaffi og -te, uppáhellt og rjúkandi. „Gestir geta valið seyði úr staðbundnum jurtum, blóðbergi, birki, vallhumli, lyngi svo eitthvað sé nefnt, auk brenndra og óbrenndra tejurta erlendis frá.  Á föstudögum og laugardögum verður hægt að fá matarmiklar súpur, salöt og fleiri létta rétti og á sunnudagsmorgnum er tilvalið að skella sér í sveitina og fá sér árbít, hlaðborð, pönnukökur eða eggjakökur.  Við reynum alltaf að eiga líka eitthvað gott fyrir þau sem ekki vilja eða geta borðað kjöt, fisk, mjólkurmat eða glúten“.

„Uglan býður hvorki upp á áfengi né gosdrykki, en bæði ljúffenga rabbarbarasaft og vatn, og svo er gestum velkomið að taka með sér uppáhaldsveigarnar sínar til að dreypa á með matnum,“ bætir Valgerður við.

Á góðviðrisdögum verður hægt að sitja úti við og jafnvel fá sérútbúna nestiskörfu til lautarferðar sunnan undir vegg eða í móum og skógum.

Í Skóga er um 20 mínútna akstur frá Akureyri um Víkurskarð, en tilvalið er einnig að aka, hjóla eða ganga gamla Vaðlaheiðarveginn, sem liggur í hlaðið á Skógum.

Húsfreyjan er einnig aðalkokkur Uglunnar en ýmsir gestakokkar munu heimsækja Skóga reglulega og töfra fram sína bestu rétti.

Hér má sjá myndir frá Uglunni og undirbúningi opnunarinnar

 

umferdarlokanir_vegna_brunnavinnu_24_mai_2013

Uppfærðar upplýsingar vegna viðhaldsvinnu Norðurorku í miðbænum

Á morgun, föstudag 24. maí hefjast framkvæmdir við að fjarlægja þrjá hitaveitubrunna í Miðbænum, tvo í Kaupvangsstræti og einn í Skipagötu. Nánar tiltekið eru brunnarnir á ... Lesa »

image001

Markaðsstofa Norðurlands vill gjaldtöku af ferðamönnum

Aðalfundur Markaðsstofu Norðurlands var haldinn á Akureyri í dag og sendi fundurinn frá sér ályktun þar sem skorað er á stjórnvöld að bregðast við yfirvofandi hættu á óafturkræfum ... Lesa »

Lundargata 9

Hús vikunnar: Lundargata 9

Síðastu Hús vikunnar voru Lundargata 7 og Gránufélagsgata 10 og nú er það bara næsta hús en það stendur á horni þessara tveggja gatna og afmarkast lóðin af bílaplaninu við ... Lesa »

943230_10151348786432330_139907257_n

Uppákoma á Backpackers

Föstudaginn 24. og laugardaginn 25. maí verður einvala lið tónlistarmanna á Akureyri Backpackers. Þeir Stefán Ingólfsson, Matti Saarinen og Halldór Gunnlaugur Hauksson eru sannkallaðir ... Lesa »

Gilið. Mynd: Daníel Starrason

Gilið lokar á morgun vegna viðhalds

Um miðjan dag á morgun, föstudaginn 24. maí, hefjast starfsmenn Norðurorku handa við að skipta um götubrunna í Gilinu (Kaupvangsstræti) og Strandgötu á Akureyri. Þar af leiðandi geta ... Lesa »

Gilið. Mynd: Daníel Starrason

Gilið lokað vegna viðhaldsvinnu

Um miðjan dag á morgun, föstudaginn 24. maí, hefjast starfsmenn Norðurorku handa við að skipta um götubrunna í Gilinu (Kaupvangsstræti) og Strandgötu á Akureyri. Þar af leiðandi geta ... Lesa »

Í anda Smáranna

Í anda aldraðra

Fyrirhugaðir eru tónleikarnir “Í anda Smáranna” í Menningarhúsinu Hofi, Akureyri laugardaginn 25.maí næstkomandi. Þar munu félagarnir Gunnar Björn Jónsson, Birgir Björnsson, Snorri ... Lesa »

Oddur Helgi Halldórsson

Enn er Oddur Helgi skammaður

Frétt Akureyrar vikublaðs í síðustu viku þar sem haft var eftir Oddi Helga Halldórssyni hjá L-listanum á Akureyri að aukin sátt væri um Dalsbraut hefur vakið nokkur viðbrögð. Jóhannes ... Lesa »

Glatað listapleis?

Karl Th. Birgisson ritstjóri Herðubreiðar, blaðamaður og fv. kosningastjóri Samfylkingarinnar á Akureyri ritar pistil á eyjan.is sem vakið hefur athygli. Þar segir Karl það furðu sæta ... Lesa »

Börn í Árskóla. Mynd af vef skólans

Börnin fá ekki áheyrn í Skagafirði

Á fundi byggðarráðs Skagafjarðar í morgun, lagði fulltrúi Samfylkingarinnar, Þorsteinn Broddason fram bókun vegna þess að erindi frá 6. bekk Árskóla hefur ekki verið sinnt. Bókunin ... Lesa »

Lögreglubíll. Mynd úr safni

Of hraður akstur í Kjarnagötu

Myndavélabíll lögreglunnar á Akureyri er nú staðsettur í Kjarnagötu á Akureyri og hvetur lögreglan ökumenn til að virða hámarkshraða, sem þar er 30 km/klst. Við eftirlitsstörf í ... Lesa »

Við andapollinn á Akureyri

Andapollurinn merki um rasisma?

Dýrleif Skjóldal, leikskólakennari og sundkennari á Akureyri, telur að með breytingum sem gerðar hafa verið á einu helsta kennileiti Akureyrar, andapollinum neðan við Sundlaug Akureyrar, ... Lesa »

Rafmagnslínur í Naustaborgum. Mynd: Jón Ingi Cæsarsson

Úr rafmagni í olíubrennslu

Stærri notendur rafmagns á Akureyri hafa lent í vandræðum vegna rafmagnsskorts síðustu mánuði. Hefur MS þurft að keyra á olíukötlum vegna þess að ekki fæst nóg rafmagn. Vífilfell ... Lesa »

Björn Þorláksson

Að rifta lýðræði

Guðbjörg Hildur Kolbeins, doktor í fjölmiðlafræðum, henti um hvítasunnuhelgina sprengju inn í hefðbundna orðræðu um mikilvægi fjölmiðla í veröldinni. Hún vék sérstaklega sjónum ... Lesa »

Kristján Þór Júlíusson

Tveir ráðherrar úr norðaustur kjördæmi

Kristján Þór Júlíusson þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi verður heilbrigðisráðherra og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson verður forsætisráðherra í ríkisstjórn ... Lesa »

Sandra Marín Kristínardóttir

Að vera aðstandandi kynferðisafbrotamanns

Ég skrifa þessa grein í ljósi mikillar umræðu sem hefur orðið á síðastliðnum mánuðum um kynferðisafbrot í samfélaginu. Umræðan um kynferðisafbrot er þarft málefni og henni er ... Lesa »

Ragnar Hólm Ragnarsson

Fjölskyldufjandsamleg flugfargjöld

Nú er svo komið vegna fargjaldahækkana í innanlandsflugi að ekki er lengur á færi venjulegra daglaunamanna að fljúga innanlands. Þetta segir Ragnar Hólm, upplýsingafulltrúi ... Lesa »

Í málverkum sínum kannar listakonan tengsl myrkurs og abstraktsjónar við upplifun okkar á stöðum.

Katherine Pickering sýnir í Populus tremula á Akureyri

  Laugardaginn 25. maí kl. 14.00 opnar Katherine Pickering myndlistarsýninguna Parts of a Waterfall as Seen at Night í Populus tremula á Akureyri. Katherine er fædd í ... Lesa »

Blöndulína

Stórsigur fyrir umhverfisvernd í landinu

Hjónin Ólafur Valsson og Sif Konráðsdóttir íbúar á Hólum í Öxnadal fagna því nú að í gær úrskurðaði umhverfis- og auðlindaráðherra um að kerfisáætlun Landsnets skuli sæta ... Lesa »

gestir

Síðasti þáttur vetrarins af Gestum út um allt

Eins og margir vita er útvarpsþátturinn Gestir út um allt á Rás 2 sendur út í beinni útsendingu frá menningarhúsinu Hofi einu sinni í mánuði. Í þættinum taka þau Margrét Blöndal og ... Lesa »

264593_10151651763836093_1387169229_n

Vetrarríki á Siglufirði

Það var fátt sem minnti Siglfirðinga á vorið þegar þeir fóru á fætur í morgun. Eins og sjá má af þessum myndum sem Guðmundur Ingólfsson tók á Siglufirði í morgun. ... Lesa »

Dagbjört Katrín Jónsdóttir

Hvað er svona hræðilegt við femínista?

Nú ætla ég að fara að röfla. Það er svo gaman. Því að ég er femínisti. Ég hirði ekkert um útlitið heldur nöldra endalaust vegna þess að ég er bitur. Ég vil skemma alla stemmingu ... Lesa »

Snjór og krapi í Dimmuborgum í maí 2013. Mynd af vef Umhverfisstofnunar. Myndataka: Bergþóra Kristjánsdóttir

Búið að opna stórahring í Dimmuborgum

Nú er búið að opna Stórahring í Dimmuborgum. Stórihringur er hringleið sem tekur 20-30 mínútur að ganga og liggur meðal annars að Gatkletti. Á vef Umhverfisstofnunar kemur fram að ... Lesa »

Nokkrir handhafar viðurkenninganna. Mynd af vef Akureyrarbæjar

Viðurkenningar fyrir æskulýðs- og tómstundastarf veittar í fyrsta skiptið

Í síðustu viku afhenti samfélags- og mannréttindaráð Akureyrarbæjar viðurkenningar fyrir starf á sviði æskulýðsstarfs og tómstunda. Veittar voru fimm viðurkenningar, þrjár til ... Lesa »

Jón Gunnar Þórðarson

Sumarleikhús í undirbúningi

Nú er hafinn undirbúningur Skapandi sumarstarfa sem er verkefni rekið af Akureyrarbæ og miðar að því að gera ungu fólki á Akureyri kleyft að starfa við skapandi og skemmtileg störf í ... Lesa »

Skoða meira