Búið er að opna helstu vegi á Norðurlandi. Í Eyjafirði er snjóþekja og skafrenningur, þæfingsfærð og skafrenningur á Siglufjarðarvegi og Öxnadalsheiði. Snjóþekja og skafrenningur er á Víkurskarði og hálka og skafrenningur á Grenivíkurvegi.
Bíllinn sem meðferðis hefur Akureyri vikublað lagði af stað í morgun. Dreifing ætti því að byrja um miðjan dag í dag á Akureyri og líklega eitthvað seinna utan Akureyrar.





























