Mjög slæmt veður er nú um mest allt land og svo er einnig á Norðurlandi. Stórhríð er milli Blönduóss og Skagastrandar, á Þverárfjalli, við utanverðan Skagafjörð og á Tröllaskaga.
Öxnadalsheiði er ófær og Víkurskarðið líka. Stórhríð er í Ljósavatnsskarði og á Tjörnesi og óveður áfram þaðan austur á Raufarhöfn. Ófært er bæði á Hófaskarði og Brekknaheiði.
Færð innanbæjar á Akureyri er í góðu lagi en tekið er að hvessa með snjókomu.































