Myndlistarsýning týnd í pósti

Myndlistarsýning týnd í pósti

Gunn Nordheim Morstøl opnar myndlistasýningu í Mjólkurbúðinni í Listagilinu á Akureyri á morgun, laugardaginn 18.ágúst kl. 14.

Það sem er sérstakt við þessa opnun er að ekki er komið í ljós hvaða myndir verða á sýningunni því fyrir sýninguna, sem ber heitið Delicious, vann Gunn sérstaklega myndaröð sem átti að standa yfir 150 ára afmæli Akureyrarbæjar.  Myndröðin fór með pósti þann 2.ágúst frá heimabæ Gunn, Åndalsnes en er enn ókomin til Akureyrar. Dagrún Matthíasdóttir, eigandi Mjólkurbúðarinnar, hefur verið í sambandi við starfsmenn Póstsins sem leitað hafa sýningarinnar en ekkert hefur til hennar spurst síðan hún var skráð í tollafgreiðslu í  Osló þann 8. ágúst.

„Ég er auðvitað búin að bíða alla vikuna og vona að pósturinn hringi í mig og segi mér að verkin séu fundin, en Gunn lét þetta ekki slá sig út af laginu og tók í snarheitum til verk í aðra sýningu sem hengd verður upp í fyrramálið“ segir Dagrún og bætir því við að upphengitíminn verði knappur því Gunn flýgur til landsins í kvöld og til Akureyrar með fyrsta flugi í fyrramálið. „Við verðum á síðustu stundu með hamar og nagla á lofti að klára upphenginguna upp úr hádegi á morgun,“ segir Dagrún og hlær, „svona getur alltaf komið upp og það er ekkert annað að gera en að taka þessu með jafnaðargeði og reyna að vinna úr því sem best.

„Gunn er að leysa þetta mjög vel. Það veltur allt á listamanninum sjálfum, hvað hann er tilbúinn til að gera í svona aðstöðu, það er annað hvort að hrökkva eða stökkva,“ segir Dagrún og bætir því við að það hefði auðvitað verið mjög leiðinlegt ef sjálfri afmælissýningunni hefði verið alveg aflýst.

„Þetta verður ok, ég er með málverk í vinnslu og ég tek þau með í flug og vona bara að upphenging nái fyrir auglýstan opnunartíma” segir Gunn en hún lendir í Keflavík í kvöld. Hún hefur meiri áhyggjur af listaverkum Dagrúnar Matthíasdóttur  sem eiga að skila sér heim í sömu sendingu eftir sýningu í Noregi. Gunn er jákvæð þrátt fyrir óvissuna með listaverkin og vonar hún að pakkinn skili sér á meðan á dvöl hennar stendur svo enn er ekki útilokað að myndröðin hennar  nái á veggi Mjólkurbúðarinnar meðan sýningin stendur yfir.

Um Gunn Nordheim Morstøl:
Gunn Nordheim Morstøl lærði myndlist í Gerlesborgsskolan i Bohuslän í Svíþjóð og starfar ásamt myndlistinni sem kennari í Åndalsnes Ungdomsskole. Hún heldur einnig utan um listviðburðinn “Kunst I Natur” sem er árlegur listahátíð (fjellfestival) í fjöllunum í kringum heimabæ Gunn, þar sem listamenn koma víða að og taka þátt. Gunn hefur verið öflug í sýningarhaldi í Noregi og einnig sýnt verk sín víða um heim, m.a. í New York, Ísrael, Japan, Rússlandi, Spáni, Englandi, Frakklandi og hér á Íslandi. Gunn hefur hlotið menningarverðlaun  Rauma Kommunes kulturpris  2003 og hlaut einnig verðlaunin ”Jerusalemprint 2000,” sem voru veitt í tengslum við alþjóðleg grafíklistasýningu í Ísrael 1998. Gunn hefur áður komið til Íslands og tók þá þátt í stórri samsýningu Staðfugl-Farfugl í Eyjarfirði 2008 þar sem útiskúlptúr var hennar framlag auk þess sem hún hélt námskeið fyrir börn og fyrirlestur ásamt sænsku listakonunni Helen Molin í Deiglunni á Akureyri.

Sýning Gunn Nordheim Morstøl stendur yfir Akureyrarvöku sem nú er 150 ára afmælishátíð Akureyrarbæjar og henni lýkur 2.september. Opið laugardaga og sunnudaga kl.14-17 og eftir samkomulagi – Allir velkomnir.

Brynhildur Þórarinsdóttir

Talandi vefur styrktur

Úthlutun þróunarsjóðs námsgagna fyrir árið 2013 hefur farið fram. Sjóðnum bárust 144 umsóknir, samanlagðar fjárbeiðnir námu tæplega 190 millj. kr. en til ráðstöfunar voru um 43 ... Lesa »

Ian_Anderson_OJT_1200

Erlendar stórstjörnur í Hofi

Menningarhúsið Hof lýkur sínu þriðja starfsári í júní með glæsilegum tónleikum bresku rokkhljómsveitarinnar Jethro Tull. Hljómsveitarmeðlimir bætast þar með í hóp þeirra nær ... Lesa »

IMG_1489

600 björgunarsveitarmenn á Akureyri um helgina

  Ein stærsta grillveisla landsins var haldin í gærkvöldi þegar um 600 sjálfboðaliðar Slysavarnafélagsins Landsbjargar gæddu sér á hamborgurum sem frambjóðendur til stjórnar ... Lesa »

IMG_0713-21-770x450

Salatdressingar fyrir sumardaga

Hér koma fjórar einfaldar uppskriftir af dásamlegum dressingum fyrir sumarsalatið. Ein með öllu 2 dl majones 2 dl sýrður rjómi 1 msk ólífuolía 1/2 sítróna, safi og börkur 1 ... Lesa »

Ragnar Hólm Ragnarsson

Ég er sennilega dálítið mikil tilfinningavera

Ragnar Hólm er mörgum kunnur. Í röskan áratug hefur hann séð um kynningar- og upplýsingamál hjá Akureyrarbæ og ann sinni heimabyggð ákaflega. Í viðtali við Akureyri vikublað ræðir ... Lesa »

Kvennakór Akureyrar

Konur syngja á Blönduósi

Kvennakór Akureyrar sækir Blönduós heim þann 25. maí næst komandi en þá heldur kórinn sína fyrri vortónleika í Blönduóskirkju kl 15:00. Síðari vortónleikarnir verða daginn eftir ... Lesa »

Úr Héðinsfjarðargöngum. Mynd af vef Vegagerðarinnar

Héðinsfjarðargöng lokuð á morgun kl. 10-11

Á morgun, laugardaginn 25. maí milli kl. 10:00 og 11:00 verður Slökkvilið Fjallabyggðar með slökkviliðsæfingu í Héðinsfjarðargöngum. Göngin verða því lokuð meðan á æfingunni ... Lesa »

9779724_s

Ódýrt að fá lús á Siglufirði!

Þótt nú sé ekki kjörlendi fyrir vetrargestinn lúsina á íslenskum heimilum kannaði Verðlagseftirlit ASÍ verð á lúsarsjampói, smokkum og unaðsolíu nýverið. Farið var í 18 apótek en ... Lesa »

13273515_s

Lifrarbólgufaraldur rakinn til frosinna jarðarberja

Niðurstöður rannsókna á lifrarbólgu tilfellum sem greinst hafa í Skandinavíu undanfarna mánuði gefa til kynna að frosin jarðarber séu orsakavaldur lifrarbólgunnar. Matvælastofnun og ... Lesa »

bjorgun

Bíll lenti út í á vestan Öxnadalsheiðar

Betur fór en á horfðist nú í hádeginu þegar tilkynning barst um að bíll hefði lent úti í Norðurá, vestan Öxnadalsheiðar. Svo vel vildi til að Björgunarsveitin Klakkur frá ... Lesa »

Lof og last

Lof og last vikunnar

Last fá Icelandair og Flugfélag Íslands fyrir að mismuna farþegum, segir kona af Brekkunni sem sendi blaðinu póst. Hún segir að kennari sem kom með Icelandair frá Bandaríkjunum til að ... Lesa »

Thorka_2011

Flestir halda með Þór/KA

MMR kannaði stuðning við knattspyrnulið í efstu deild karla og kvenna á Íslandi (Pepsideildin). Þór/KA var það knattspyrnulið í efstudeild á Íslandi, karla eða kvenna, sem flestir ... Lesa »

Girnilegur, hollur og staðgóður morgungrautur

Fjórði hver borðar ekki reglulega morgunmat

Ríflega þriðjungur svarenda stundar enga líkamsrækt samkvæmt könnun sem Háskólabrú gerði í síðasta mánuði. Byggt er á ríflega 400 svörum, þar af var meirihlutinn Akureyringar. ... Lesa »

lavamynd

Telur ólíklegt að listamaður sé að verki

Hlynur Hallsson myndlistarmaður á Akureyri telur ólíklegt að listamaður eða listamenn hafi verið að verki í Mývatnssveit undanfarið. Alls er búið að skemma þrjú náttúrufyrirbrigði ... Lesa »

umferdarlokanir_vegna_brunnavinnu_24_mai_2013

Uppfærðar upplýsingar vegna viðhaldsvinnu Norðurorku í miðbænum

Á morgun, föstudag 24. maí hefjast framkvæmdir við að fjarlægja þrjá hitaveitubrunna í Miðbænum, tvo í Kaupvangsstræti og einn í Skipagötu. Nánar tiltekið eru brunnarnir á ... Lesa »

image001

Markaðsstofa Norðurlands vill gjaldtöku af ferðamönnum

Aðalfundur Markaðsstofu Norðurlands var haldinn á Akureyri í dag og sendi fundurinn frá sér ályktun þar sem skorað er á stjórnvöld að bregðast við yfirvofandi hættu á óafturkræfum ... Lesa »

Lundargata 9

Hús vikunnar: Lundargata 9

Síðastu Hús vikunnar voru Lundargata 7 og Gránufélagsgata 10 og nú er það bara næsta hús en það stendur á horni þessara tveggja gatna og afmarkast lóðin af bílaplaninu við ... Lesa »

943230_10151348786432330_139907257_n

Uppákoma á Backpackers

Föstudaginn 24. og laugardaginn 25. maí verður einvala lið tónlistarmanna á Akureyri Backpackers. Þeir Stefán Ingólfsson, Matti Saarinen og Halldór Gunnlaugur Hauksson eru sannkallaðir ... Lesa »

Gilið. Mynd: Daníel Starrason

Gilið lokar á morgun vegna viðhalds

Um miðjan dag á morgun, föstudaginn 24. maí, hefjast starfsmenn Norðurorku handa við að skipta um götubrunna í Gilinu (Kaupvangsstræti) og Strandgötu á Akureyri. Þar af leiðandi geta ... Lesa »

Gilið. Mynd: Daníel Starrason

Gilið lokað vegna viðhaldsvinnu

Um miðjan dag á morgun, föstudaginn 24. maí, hefjast starfsmenn Norðurorku handa við að skipta um götubrunna í Gilinu (Kaupvangsstræti) og Strandgötu á Akureyri. Þar af leiðandi geta ... Lesa »

Í anda Smáranna

Í anda aldraðra

Fyrirhugaðir eru tónleikarnir “Í anda Smáranna” í Menningarhúsinu Hofi, Akureyri laugardaginn 25.maí næstkomandi. Þar munu félagarnir Gunnar Björn Jónsson, Birgir Björnsson, Snorri ... Lesa »

Oddur Helgi Halldórsson

Enn er Oddur Helgi skammaður

Frétt Akureyrar vikublaðs í síðustu viku þar sem haft var eftir Oddi Helga Halldórssyni hjá L-listanum á Akureyri að aukin sátt væri um Dalsbraut hefur vakið nokkur viðbrögð. Jóhannes ... Lesa »

Glatað listapleis?

Karl Th. Birgisson ritstjóri Herðubreiðar, blaðamaður og fv. kosningastjóri Samfylkingarinnar á Akureyri ritar pistil á eyjan.is sem vakið hefur athygli. Þar segir Karl það furðu sæta ... Lesa »

Börn í Árskóla. Mynd af vef skólans

Börnin fá ekki áheyrn í Skagafirði

Á fundi byggðarráðs Skagafjarðar í morgun, lagði fulltrúi Samfylkingarinnar, Þorsteinn Broddason fram bókun vegna þess að erindi frá 6. bekk Árskóla hefur ekki verið sinnt. Bókunin ... Lesa »

Lögreglubíll. Mynd úr safni

Of hraður akstur í Kjarnagötu

Myndavélabíll lögreglunnar á Akureyri er nú staðsettur í Kjarnagötu á Akureyri og hvetur lögreglan ökumenn til að virða hámarkshraða, sem þar er 30 km/klst. Við eftirlitsstörf í ... Lesa »

Skoða meira