Á meðfylgjandi mynd eru Helgi Þórsson listamaður og Björgvin Steindórsson forstöðumaður Lystigarðsins að opna pakkann en Kristín Þóra Kjartansdóttir formaður Garðyrkjufélags Akureyrar bíður spennt eftir að sjá innihaldið.
Á þessu ári er 100 ára afmæli Lystigarðsins á Akureyri fagnað. Af því tilefni ákváðu félagar í Garðyrkjufélagi Akureyrar að færa garðinum veglega gjöf fyrir hönd Garðyrkjufélags Íslands.
Listamaðurinn Helgi Þórsson í Kristnesi var fenginn til að smíða bekk sem afhentur var aðstandendum og unnendum Lystigarðsins við hátíðlega afmælisathöfn garðsins þann 29. júlí síðastliðinn. Bekkurinn forláti var þá borinn á sinn stað við norðurhlið hringstígsins um gamla gosbrunninn og fer hann afar vel þar enda sérhannaður inn í umhverfið. Viðurinn í bekkinn, sem er lerki, var fenginn úr Vaðlareit en Beate Stormo útbjó skínandi áletraðan skjöld.
Bekkurinn er þannig úr garði gerður að heilu fjölskyldurnar eða vinahóparnir komast fyrir á honum og eins er hægt að leggja sig í sólinni og hlusta á þyt í laufi. „Unnendur Lystigarðsins eru hvattir til þess að líta gripinn augum og njóta hans sem skyldi, en gott er að hvíla þarna lúin bein á rölti um Lystigarðinn á Akureyri,“ segir í fréttatilkynningu.




























